Aðgerðir sem lagðar hafa verið fram í tengslum við svokallaða leikskólaleið í Reykjavík eru áætlaðar kosta samtals 257 milljónir króna á ári, samkvæmt tillögunni eins hún var lögð fyrir borgarráð.
Gjaldskrárbreytingarnar sjálfar eru metnar á 162 milljónir króna á ári. Þar af eru 137 milljónir vegna borgarrekinna leikskóla og 25 milljónir vegna sjálfstætt starfandi leikskóla.
Á móti er gert ráð fyrir tekjuaukningu upp á 115 milljónir króna á ári vegna svonefndra skráningardaga, þegar foreldrar greiða sérstaklega fyrir vistun barna á frídögum. Að teknu tilliti til þess er áætlaður nettókostnaður vegna gjaldskrárbreytinganna 47 milljónir króna á ári.
Til viðbótar við breytingar á gjaldskrá er gert ráð fyrir 30 milljónum króna árlega vegna nýrra stöðugilda umsjónarmanna fasteigna í leikskólum. Þeim er ætlað að sinna minniháttar viðhaldi og létta á stjórnendum.
Einnig er áætlað að verja 50 milljónum …














































Athugasemdir