„Við erum að stíga risastórt skref í áttina að endurgjaldslausum leikskóla“

Ekk­ert dval­ar­gjald verð­ur fyr­ir 36 stund­ir á viku í leik­skól­um borg­ar­inn­ar, gangi til­lög­ur stýri­hóps um leik­skóla­mál í borg­inni eft­ir. Há­marks­dval­ar­tími barna verð­ur ekki stytt­ur en tekn­ir verða upp hvat­ar til að for­eldr­ar sæki börn fyrr á föstu­dög­um.

„Við erum að stíga risastórt skref í áttina að endurgjaldslausum leikskóla“

Ekkert dvalargjald verður rukkað fram að 36 stundum á hverri viku í leikskólum borgarinnar og hvatar verða settir til að stytta dvalartíma barna á föstudögum. Vistun umfram það mun hækka í þrepum fyrir hverjar þrjátíu mínútur sem bætt er við. Þetta er meðal þess sem stýrihópur um leikskólamál í Reykjavíkurborg leggur til.

Samkvæmt borginni getur sparnaður numið allt að 168 þúsund krónum á ári fyrir fjölskyldur sem nýta sér úrræðið. Sem dæmi mun gjald fyrir 38 tíma vistun verða 7.000 krónur á mánuði auk fæðisgjalds. Borgin segir gjaldið mun lægra en í fyrri tillögum og að tekið hafi verið tillit til athugasemda í samráði.

„Við erum ekkert að skerða leikskóladaginn,“ sagði Helga Þórðardóttir, oddviti Flokks fólksins og meðlimur stýrihópsins, og bætti við að „það er bara breytt gjaldskrá“. Hámarksdvalartími helst óbreyttur, 42,5 klukkustundir á viku, og ekki er gert ráð fyrir fækkun leikskólaplássa.

Skoðuðu leiðir hinna sveitarfélaganna

Borgin segir breytingarnar ætlaðar til að draga úr fáliðun, auka fyrirsjáanleika og tryggja stöðuga mönnun yfir árið. Samkeppni um starfsfólk á höfuðborgarsvæðinu og stytting dvalartíma annars staðar hafi skapað áskoranir í Reykjavík.

„Markmiðið okkar er að ná umbótum í leikskólum,“ sagði Líf Magneudóttir, formaður stýrihóps um leikskólaleiðina og oddviti Vinstri grænna, þegar tillögurnar voru kynntar. „Við erum að stíga risastórt skref í áttina að endurgjaldslausum leikskóla.“

Líf sagði að leiðir annarra sveitarfélaga hefðu verið skoðaðar og að mikið samráð hefði verið haft við starfsfólk, stjórnendur og foreldra í gegnum foreldrafélög skólanna. Helga sagði að „langt og strangt samráðsferli“ hefði farið fram og að tillögurnar nú væru ólíkar þeim sem lagðar voru fram í samráðsgátt í byrjun árs. Fjöldi umsagna hefði borist sem hefðu haft áhrif á vinnu stýrihópsins.

Mátu sérstaklega áhrif á konur

Sérstakt jafnréttismat var framkvæmt á tillögunum og segir Líf það hafa verið gert til að meta hvaða áhrif breytingarnar hefðu á konur. „Við viljum alls ekki að breytingar sem við ráðumst í komi niður á konum, að það skekki jafnrétti kynjanna,“ sagði Líf. Horft hafi verið til þess að taka tillit til stöðu einstæðra og einstakra foreldra og fólks með lítið bakland.

Samkvæmt tilkynningu borgarinnar verða nýir afsláttarflokkar teknir upp fyrir einstæða foreldra og tekjulágar fjölskyldur sem þurfa lengri vistun. Samkvæmt jafnréttismati borgarinnar leiðir ný gjaldskrá til verulegra lækkana fyrir stóran hóp foreldra. Hækkanirnar snerta einkum lengstu vistunartímana og tekjuhærri foreldra.

„Þetta eru ekki einu aðgerðirnar sem við þurfum að ráðast í,“ sagði Líf um framhaldið. „Þetta er bara fyrsti áfangi. Við þurfum auðvitað að gera meira, og það kemur þá á næsta kjörtímabili.“

Systkini sameinuð á leikskólum

Tillögurnar gera ráð fyrir að systkinasameining verði tryggð með ákveðnum skilyrðum í „stóru innrituninni“ í mars. Skilyrðin fela meðal annars í sér að viðkomandi leikskóli sé fyrsta val, að eldra systkini verði áfram í að minnsta kosti sex mánuði og að börnin séu með sama fjölskyldunúmer í þjóðskrá.

„Við bíðum eftir að fá formlega lagaheimild,“ sagði Skúli Helgason, borgarfulltrúi Samfylkingarinnar sem átti sæti í hópnum, og benti á að fyrir þinginu lægi lagafrumvarp sem heimilaði systkinaforgang.

Einnig verða stofnuð ný stöðugildi umsjónarfólks leikskólahúsnæðis sem sinna minniháttar viðhaldi og daglegum rekstri húsnæðis. Með því er ætlað að létta á stjórnendum.

Kjósa
4
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Sáu sárin sem hún faldi
1
Viðtal

Sáu sár­in sem hún faldi

Þann 7. júní verða fimm ár lið­in frá frá­falli Emblu Arn­ars Katrín­ar­dótt­ur. And­lát henn­ar var harma­fregn fyr­ir sam­fé­lag­ið, en fjöl­skyld­an sat eft­ir með sorg­ina. Löngu áð­ur en Embla fékk grein­ingu var fjöl­skyld­unni orð­ið ljóst að hún væri orð­in al­var­lega veik, en vegna þess hve þög­ul veik­ind­in voru tók tíma að fá áheyrn. Jafn­vel þá skorti skiln­ing á stöðu barns­ins, sem svipti sig lífi og var jörð­uð á fimmtán ára af­mæl­is­dag­inn sinn.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Sáu sárin sem hún faldi
2

Fleiri tilvik og háar upphæðir í fjárdráttarmáli lögmannsins
5
Innlent

Fleiri til­vik og há­ar upp­hæð­ir í fjár­drátt­ar­máli lög­manns­ins

Lög­mað­ur­inn Guð­rún Björg Birg­is­dótt­ir starf­aði sem ráðs­mað­ur fólks sem svipt hafði ver­ið fjár­ræði og er sök­uð um að hafa nýtt sér stöðu sína til að fremja auðg­un­ar­brot. Ólaf­ur Hauks­son hér­aðssak­sókn­ari seg­ir meint­an fjár­drátt henn­ar vera til með­ferð­ar hjá embætt­inu og vel­ferð­ar­sviði Reykja­vík­ur­borg­ar var gert við­vart þar sem hún sá um fjár­mál minnst tveggja ein­stak­linga.

Mest lesið í mánuðinum

Sáu sárin sem hún faldi
4
Viðtal

Sáu sár­in sem hún faldi

Þann 7. júní verða fimm ár lið­in frá frá­falli Emblu Arn­ars Katrín­ar­dótt­ur. And­lát henn­ar var harma­fregn fyr­ir sam­fé­lag­ið, en fjöl­skyld­an sat eft­ir með sorg­ina. Löngu áð­ur en Embla fékk grein­ingu var fjöl­skyld­unni orð­ið ljóst að hún væri orð­in al­var­lega veik, en vegna þess hve þög­ul veik­ind­in voru tók tíma að fá áheyrn. Jafn­vel þá skorti skiln­ing á stöðu barns­ins, sem svipti sig lífi og var jörð­uð á fimmtán ára af­mæl­is­dag­inn sinn.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár