Sérfræðingar í suðuramerískum eiturörvafroskum segjast halda að eitrið sem talið er hafa orðið rússneska andófsmanninum Alexei Navalny að bana hafi líklega verið tilbúin eftirlíking framleidd á rannsóknarstofu frekar en að því hafi verið safnað beint úr náttúrunni.
Stjórnvöld í nokkrum Evrópulöndum héldu því fram á laugardag að Navalny – sem var mikill gagnrýnandi Vladimirs Pútíns Rússlandsforseta – hafi verið drepinn með taugaeitrinu epibatidíni, sem finnst í „eiturörvafroskum í Suður-Ameríku“.
Talið er að nokkrar suðuramerískar eiturörvafroskategundir beri eitrið, en líklegasti sökudólgurinn finnst í frumskógum Ekvador og Perú.
Auðvelt er að nálgast froskana sjálfa, bæði löglega með leyfum og ólöglega fyrir nokkra dollara.
„Það er ekki erfitt að finna þá á hvaða markaði sem er,“ sagði Andrea Teran, frá Jambatu-miðstöðinni fyrir froskdýrarannsóknir og verndun í Ekvador.
Á síðustu tíu árum hafa meira en 800 eintök af þeirri tegund sem grunur leikur á – Epipedobates anthonyi, einnig þekkt sem eiturörvafroskur Anthonys – …












































Athugasemdir