Ingibjörg Rósa Björnsdóttir, fyrrverandi starfsmaður Sólheima, segir Sigurjón Örn Þórsson, stjórnarformann Sólheima, hafa vænt sig um lygar í grein Heimildarinnar frá því fyrr í mánuðinum.
Lygarnar segir hún felast í ummælum Sigurjóns um grein hennar um málefni Sólheima sem birtist síðastliðið haust. Þar rakti hún reynslu sína af staðnum, hvernig framkvæmdastjóraskipti hefðu haft áhrif á mannauðsmál og fann vinnubrögðum stjórnar margt til foráttu.
Við Heimildina hafði Sigurjón það um greinina að segja að hann harmaði það að starfsmaður færi fram á opinberum vettvangi „með tilhæfulausar ásakanir og órökstuddar dylgjur af þessu tagi.“ Ingibjörg segir hins vegar að Sigurjón færi engan rökstuðning fyrir yfirlýsingum sínum um það sem hún haldi fram. Hann hafi ekki hrakið neitt sem hún hafi haldið fram í grein sinni. „Hann er ekki með nein dæmi, engar bókanir.“
Fyrr í mánuðinum vildi Sigurjón enn fremur meina að örfáir starfsmenn hefðu …















































Athugasemdir