Landið sem enginn á

Græn­lend­ingar og Danir hafa staðið þétt saman and­spænis hót­unum Donalds Trump að eign­ast Grænland en flókið nýlendu­sam­band þjóð­anna er óupp­gert. Grænland hefur reynt að laða að fjár­fest­ingar, styrkur efna­hagur er und­ir­staða sjálf­stæðis. En nú virð­ast Banda­ríkja­menn vera að reyna að „bíta sig inn í Grænland.“

Landið sem enginn á
Hvert liggur leið græn­lenskrar stelpu? Mynd: Golli

IAlþjóðaflugvöllurinn í Nuuk

Á nýja alþjóða­flug­vell­inum kenndum við Nuuk má sjá um tutt­ugu þýska her­menn í ein­kenn­is­bún­ingi, á leið heim af NATO-æfingu. Einn þeirra kaupir sér sæl­gæti: Gajol og súkkulaði. Hótanir Trumps liggja í loft­inu þegar blaða­menn og ljós­mynd­ari Heim­ild­ar­innar lenda á landi sem á sig sjálft því á Græn­landi á eng­inn land, fólk fær aðeins skika til afnota; Grænland á sig sjálft.

Sú stað­reynd ein lýsir upp and­stæður veru­leika þeirra sem heims­pressan hefur fjallað um síð­ustu vikur. Annars vegar fyrrum fast­eigna­mó­guls í for­seta­emb­ætti umluk­inn þef af kap­ít­al­isma í hana­stélsboðum á Man­hattan. Hins vegar sam­fé­lag með inn­byggða sjálf­bærni í lifn­að­ar­háttum sínum, nefni­lega Grænland.

Í fyrr­nefndum veru­leika þrífst erf­ingi Estée Lauder, hinn 81 árs Ronald Lauder, sem þekkt hefur Trump í sex­tíu ár og verið kall­aður sparr­ing-partner hans, eins konar box­þjálf­ari í iðu Man­hattan.  Orð Johns nokk­urs Bolton, fyrrum þjóðar­ör­ygg­is­ráð­gjafa Trumps, eru höfð fyrir því að það hafi verið Lauder …

Kjósa
13
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Landið sem enginn á

Rödd framtíðarinnar – lifði af sjálfsvígstilraun
ViðtalLandið sem enginn á

Rödd fram­tíð­ar­innar – lifði af sjálfs­vígstil­raun

Aqqalukkuluk Fontain býr yfir rödd sem hann nýtir til þess að miðla upp­lýs­ingum, grein­ingum og hugs­unum til sam­landa sinna. Hann er hin nýja rödd Græn­lands, ungur hug­sjóna­maður sem nýtir sam­fé­lags­miðl­ana til að fá fólk til að hugsa og setja hlut­ina í rétt sam­hengi. Og eftir að hafa lifað af sjálfs­vígstil­raun hjálpar hann öðrum til að lifa af – og tala um til­finn­ingar.
„Ég var ofbeldisfullur“
ViðtalLandið sem enginn á

„Ég var ofbeld­is­fullur“

Þegar Embla Krist­jáns­dóttir hóf sam­búð með Niels Thom­as­sen fékk hún að kynn­ast nýrri hlið á mann­inum sem hún elskaði, þar sem stjórn­semi, afbrýði­semi og reiði réðu ríkjum. Hann gekkst við ofbeld­inu, axl­aði ábyrgð og hefur unnið þrot­laust í sjálfum sér síð­asta ára­tug. Nú miðlar hann reynslu sinni og hvetur aðra karl­menn sem glíma við sama vanda að tjá til­finn­ingar sínar og standa ber­skjald­aðir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár