Bandaríkin eru stærsti ógnvaldurinn

Óút­reikn­an­leg fram­koma Don­alds Trump gagn­vart Græn­landi vek­ur ekki að­eins spurn­ing­ar um fram­tíð sjálf­stjórn­ar eyj­unn­ar held­ur hef­ur hún líka graf­ið und­an þeirri ör­ygg­is­skip­an sem norð­ur­slóð­ir hafa byggt á í ára­tugi. Þrátt fyr­ir að lík­ur á beinni inn­rás eða inn­limun séu enn litl­ar, seg­ir sér­fræð­ing­ur við Há­skóla Græn­lands að sú stað­reynd að þær séu ekki „núll” breyti öllu. „Það eitt að þurfa að taka slíka sviðs­mynd al­var­lega er al­var­legt í sjálfu sér,“ seg­ir dr. Rasmus Niel­sen. „Við er­um vön því að stór­veldi virði ákveð­in grunn­við­mið. Trump ger­ir það ekki.“

Bandaríkin eru stærsti ógnvaldurinn

Dr. Rasmus Leander Nielsen er forstöðumaður Miðstöðvar um utanríkis- og öryggismál í háskólanum í Nuuk og prófessor við félagsvísinda- og hagfræðideild norðurslóða. Þar sem hann situr á skrifstofu sinni bregst hann við með hlátrasköllum þegar hann er spurður að því hvort Grænland sé öruggt: „Nei.“

Þegar hláturinn fjarar út segir hann: „Okkur líður eins og við getum verið aðeins öruggari núna en undanfarna daga, en um leið vitum við að þótt ástandið róist um stund getur forseti Bandaríkjanna síðan sagt eitthvað allt annað.“

Á blaðamannafundi með forsætisráðherra Grænlands, Jens-Frederik Nielsen, var hann inntur svara við því hvort hann treysti hundrað prósent orðum Trumps þess efnis að hann myndi ekki taka Grænland með hervaldi, líkt og hann lýsti yfir á Davos. Fram að því hafði Trump ekki útilokað þann möguleika. Forsætisráðherrann kvaðst verða að trúa því – en hvað segir fræðimaðurinn? „Nei.“ Því trúir hann ekki. „En líkurnar hafa alltaf verið …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Landið sem enginn á

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár