Vitni í Minneapolis: „Ég horfði á hann deyja“

„Þetta var morð fyr­ir allra aug­um, úti á miðri götu,“ seg­ir Stella Carl­son sem varð vitni að því þeg­ar ICE-lið­ar skutu Al­ex Pretti til bana í Minn­ea­pol­is á laug­ar­dag. Hún seg­ir lýs­ing­ar rík­is­stjórn­ar Don­alds Trumps um mál­ið ósann­ar.

Vitni í Minneapolis: „Ég horfði á hann deyja“
Stella Carlson Varð vitni að því þegar ICE-liðar skutu Alex Pretti til bana. Mynd: CNN / Skjáskot

„Ég horfði á hann deyja,“ segir Stella Carlson með tárin í augunum í viðtali við Anderson Cooper á CNN.

Hún varð vitni að því þegar ICE-liðar skutu Alex Pretti til bana í Minneapolis síðastliðinn laugardag. Carlson segir Pretti ekki hafa verið ógn við öryggi ICE-liða. „Þetta var morð fyrir allra augum, úti á miðri götu,“ segir hún. Pretti var 37 ára gamall hjúkrunarfræðingur og bandarískur ríkisborgari.

Carlson var ein af þeim sem tóku aðdraganda morðsins og morðið sjálft upp á myndband sem hægt verður að notast við sem sönnunargagn í rannsókn á málinu. Hún hafði sést á öðrum upptökum af morðinu og var kölluð „konan í bleika jakkanum“ en ákvað að stíga fram. „Ég trúi því að Bandaríkin vilji heyra sannleikann.“

Alex PrettiVar skotinn til bana af ICE-liðum í Minneapolis.

Lýsingar yfirvalda ósannar

Ríkisstjórn Donalds Trumps Bandaríkjaforseta varði árás ICE-liða en Kristi Noem heimavarnarráðherra Bandaríkjanna sagði …

Kjósa
18
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Anna Bjarnadóttir skrifaði
    Í viðtölum við Stellu Carlson og Kayla Schultz kemur fram að alríkislögreglan hafi ekkert verið í sambandi við þær út af rannsókn málsins. Það finnst mér mjög skrítið. Þær eru lykil vitni í málinu. Hér er viðtalið við Kayla https://youtu.be/jxI-QohWDBQ?si=u9UlK8sKkPreka2c
    1
  • GH
    Greg Hill skrifaði
    Þakka þér fyrir að halda áfram að segja frá frásögnum sjónarvotta þegar aðrir fjölmiðlar hafa að mestu hætt því. Mér finnst mjög skrýtið að ég þurfi að fá frekari upplýsingar frá Íslandi en ekki Bandaríkjunum. Ég vildi óska ​​að ég vissi hvað leiddi til þess að konan sem Pretti kom til að vernda var ýtt svona harkalega og beitt táragasi af ICE? Hún var á gangstéttinni, það er engin skýring á því hvers vegna þeir hljópu svona á hana.
    2
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

„Við ætlum ekki að vakna upp við þá martröð“
4
Innlent

„Við ætl­um ekki að vakna upp við þá mar­tröð“

Nú­tím­inn birti yf­ir­lýs­ingu frá nafn­laus­um ein­stak­lingi sem seg­ist bera ábyrgð á því að hafa mál­að yf­ir hinseg­in fán­ann á kirkjutröpp­um Grafa­vogs­kirkju. Þar seg­ist hann hafa vilj­að sjá við­brögð­in við því sem hann kall­ar „mynd­list­ar­gjörn­ing“. Ráð­herra gef­ur lít­ið fyr­ir þessi skrif og seg­ir ras­ista vilja end­ur­skil­greina ís­lenska fán­ann. Hún hvet­ur fólk til að standa gegn sundr­ungu.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Sagt upp í Ráðhúsinu þar sem hún lá á bráðamóttöku
1
Innlent

Sagt upp í Ráð­hús­inu þar sem hún lá á bráða­mót­töku

Þeg­ar Hólm­fríð­ur Helga Sig­urð­ar­dótt­ir lagði hjólandi af stað í vinn­una í síð­ustu viku grun­aði hana ekki hvað var í vænd­um. Hún varð fyr­ir bíl og þar sem hún lá slös­uð á bráða­mót­töku var henni sagt upp störf­um sem upp­lýs­inga­full­trúi í Ráð­hús­inu. Hún seg­ir frá því þeg­ar hún fékk „ tvö rot­högg á ein­um ör­laga­rík­um degi“.

Mest lesið í mánuðinum

Milljarða fjárfestingar Guðbjargar sem ekki sjást í skýrslunni
1
Úttekt

Millj­arða fjár­fest­ing­ar Guð­bjarg­ar sem ekki sjást í skýrsl­unni

Við­skipta­veldi Guð­bjarg­ar Matth­ías­dótt­ur bygg­ir fyrst og fremst á hagn­aði í sjáv­ar­út­vegi. Frá því að hún sett­ist í stjórn Ís­fé­lags­ins hafa nærri 15 millj­arð­ar streymt úr Ís­fé­lag­inu í Vest­manna­eyj­um til Guð­bjarg­ar og fjöl­skyldu. Hvorki hún né fjár­fest­ing­ar henn­ar koma fram í skýrslu sem unn­in var að beiðni Al­þing­is um eign­ir, eig­end­ur og fjár­fest­ing­ar stærstu út­gerð­ar­fé­laga lands­ins.
Samherjabörnin greiddu lán foreldra sinna með eignarhlut í stærsta eiganda Samherja
3
Viðskipti

Sam­herja­börn­in greiddu lán for­eldra sinna með eign­ar­hlut í stærsta eig­anda Sam­herja

Lán­ið sem Þor­steinn Már Bald­vins­son og Helga Stein­unn Guð­munds­dótt­ir veittu börn­um sín­um til að kaupa nærri helm­ings hlut í Sam­herja af þeim hef­ur ver­ið gert upp. Börn­in, þau Bald­vin, for­stjóri Sam­herja, og Katla Þor­steins­börn eru nú orðn­ir með­eig­end­ur for­eldra sinna í fé­lög­un­um sem lán­uðu þeim fyr­ir kaup­un­um. Sam­þykkt­ir fé­lags­ins tryggja þeim fast­ar arð­greiðsl­ur úr K&B á hverju ári.
Halldór Jörgen Olesen
5
Aðsent

Halldór Jörgen Olesen

Hver borg­ar fyr­ir arð­semi bank­anna?

Ís­lensku bank­arn­ir græða nærri tvö­falt meira á hverri lán­aðri krónu en evr­ópsk­ir bank­ar. Há­ir stýri­vext­ir Seðla­bank­ans juku hagn­að­inn, en bjuggu hann ekki til. Skýr­ing­in ligg­ur í þrennu: að­eins þrír stór­ir bank­ar skipta mark­aðn­um á milli sín, verð­tryggð lán færa verð­bólgu­áhætt­una frá bönk­un­um yf­ir á heim­il­in, og krón­an lok­ar land­inu fyr­ir sam­keppni að ut­an. Töl­urn­ar stand­ast skoð­un og spurn­ing­arn­ar sem þær vekja gera það líka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár