Trump slær saman Íslandi og Grænlandi

Donald Trump Banda­ríkja­for­seti rugl­aði saman Íslandi og Græn­landi í ræðu sinni í Davos og kenndi land­inu um lækk­anir á hluta­bréfa­mörk­uðum.

„Hluta­bréfa­mark­að­ur­inn okkar tók fyrstu dýf­una í gær vegna Íslands,“ sagði Donald Trump, for­seti Banda­ríkj­anna, í ræðu sinni á alþjóða­efna­hags­ráð­stefn­unni í Davos. Var það í miðri ræðu um af hverju Banda­ríkin ættu að fá að kaupa Grænland. 

Virtist hann þarna slá saman Íslandi og Græn­landi, sem hann hefur lagt mikla áherslu á að eign­ast. Hluta­bréfa­mark­aðir vest­an­hafs hafa lækkað, sem talið er merki um óvissu fjár­festa vegna yfir­lýs­inga Trump um að taka yfir Grænland, þvert á vilja Evr­ópu­þjóða.

En Trump kenndi Íslandi um. „Þannig að Ísland er þegar búið að kosta okkur mikla pen­inga,“ sagði hann. 

Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Trump minn­ist á Ísland þegar hann talar um Grænland. Í ræð­unni í Davos vís­aði hann líka til Græn­lands sem klaka. „Það er ekki hægt að tala um þetta sem land,“ sagði hann á einum tíma­punkti og sagði að Grænland væri „stór og fal­legur ísjaki“.

…
Kjósa
6
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Greg Hill skrifaði
    Kapteinn .. uhh ... stór og fallegur ísjaki (ekki alveg úr kvikmyndinni Titanic en nógu nálægt).
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Grænlandsmálið

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

4
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár