Stendur með Grænlandi og lýsir nýrri heimsskipan

Þjóð­ar­leið­togar rísa upp gegn yfir­gangi Trumps. Mark Carney, for­sæt­is­ráð­herra Kanada, skil­greinir nýja heims­skipan og hvernig brjót­ast megi undan und­ir­okun stór­veld­anna.

Stendur með Grænlandi og lýsir nýrri heimsskipan
Carney á Davos For­sæt­is­ráð­herra Kanada úr Frjáls­lynda flokknum, náði kjöri eftir að for­veri hans og flokks­bróðir, Justin Trudeau, ákvað að gefa ekki kost á sér vegna fallandi fylgis. Eftir árásir og hót­anir Banda­ríkja­for­seti reis fylgi flokks hans á ný. Mynd: AFP

For­sæt­is­ráð­herra Kanada, Mark Carney, hélt tíma­móta­ræðu um ástand heims­ins á Alþjóða­efna­hags­ráð­stefn­unni í Davos í dag. Hann lýsti afdrátt­ar­lausum stuðn­ingi við full­veldi Græn­lands.

Þjóð­ar­leið­togar hafa gert upp við yfir­gang Banda­ríkja­stjórnar á ráð­stefn­unni og gefið til kynna að þeir muni ekki sætta sig við hann.

Carney, sem er hag­fræð­ingur og fyrr­ver­andi seðla­banka­stjóri Eng­lands­banka, lýsti marg­vís­legum aðgerðum Kanada til þess að takast á við breytta heims­skipan.

„Gamla heims­skip­anin kemur ekki aftur. Við ættum ekki að syrgja það. For­tíð­ar­þrá er ekki stefna. En úr brot­unum getum við byggt eitt­hvað betra, sterkara og rétt­lát­ara,“ sagði hann í ræðu sinni.

Carney sagði að frá því hann tók við emb­ætti hafi hann unnið að því að breyta stefnu Kanada: tvö­faldað útgjöld til varn­ar­mála, aukið fjöl­breytni í við­skiptum með því að und­ir­rita 12 við­skipta- og örygg­is­samn­inga í fjórum heims­álfum á sex mán­uðum og styrkt böndin enn frekar við Evr­ópu­sam­bandið.

Hann lýsti aðkomu að nýju örygg­is­kerfi Evr­ópu­sam­bands­ins og sam­starfs­samn­ingi við Kína. Þá sagð­ist hann vinna með lýð­ræð­is­ríkjum að aðhaldi með gervi­greind.

„Kanada stendur þétt með Græn­landi og Danmörku og styður full­kom­lega ein­stakan rétt þeirra til að ákveða fram­tíð Græn­lands,“ sagði Carney við dynj­andi lófa­klapp.

Án þess að nefna Donald Trump, for­seta Banda­ríkj­anna, á nafn sagði Carney að „stór­veldi“ not­uðu efna­hags­legan sam­runa sem „vopn“, en Trump boðar refsi­tolla á þau ríki sem rísa gegn því að hann inn­limi Grænland í Banda­ríkin. Með því yrði Kanada umkringt Banda­ríkj­unum, hvers for­seti hótar að inn­lima einnig Kanada, úr öllum áttum öðrum en norðri.

„Kanada­menn vita að sú gamla og þægi­lega for­senda okkar að land­fræði­leg lega okkar og aðild að banda­lögum tryggði sjálf­krafa vel­megun og öryggi er ekki lengur í gildi,“ sagði Carney.

Þegar Kanada glímir við þessa nýju stöðu sagði Carney að landið yrði að sýna „prinsipp­festu og raun­sæi“ og snúa sér inn á við til að byggja upp landið og auka fjöl­breytni í við­skipta­sam­böndum til að verða minna háð löndum eins og Banda­ríkj­unum, nú þegar ljóst er að efna­hags­legur „sam­runi“ getur leitt til „und­ir­ok­unar“.

Carney sagði að fjöl­þjóða­hyggja og „skipu­lag sam­eig­in­legrar lausn­a­leitar“ – sem byggir á stofn­unum eins og Alþjóða­við­skipta­stofn­un­inni, Sam­ein­uðu þjóð­unum og aðild­ar­ríkja­ráð­stefnu (COP) um lofts­lags­mál – hafi „hnignað“ og lönd verði að sætta sig við að þau gætu þurft að standa meira ein og sér en áður.

„Mörg lönd eru að draga sömu álykt­anir. Þau verða að þróa meira stefnu­mark­andi sjálf­ræði: í orku­málum, mat­vælum, mik­il­vægum málmum, í fjár­málum og aðfanga­keðjum.“

„Land sem getur ekki fætt sig, séð sér fyrir elds­neyti eða varið sig hefur fáa kosti. Þegar regl­urnar vernda þig ekki lengur verður þú að vernda þig sjálfur,“ sagði Carney.

Carney sagði að þessi ein­angr­un­ar­stefna, þar sem heim­ur­inn er fullur af „virkjum“, muni gera lönd fátæk­ari, við­kvæm­ari og minna sjálf­bær. En hún sé engu að síður yfir­vof­andi og Kanada verði að vinna með banda­mönnum með svipað hug­ar­far þar sem það er mögu­legt til að sporna gegn yfir­ráðum stærri, rík­ari og vel vopn­aðra landa.

„Þetta er ekki barna­leg fjöl­þjóða­hyggja. Né er það að treysta á hnign­andi stofn­anir. Það er að byggja upp banda­lög sem virka, í hverju máli fyrir sig, með sam­starfs­að­ilum sem eiga nægi­lega mikið sam­eig­in­legt til að bregð­ast við saman. Með­al­stór ríki verða að bregð­ast við saman því ef þú situr ekki við borðið ertu á mat­seðl­inum,“ sagði Carney.

Kjósa
29
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Bandaríki Trumps

Rógburður og ruglingur í kosningabaráttunni í Bandaríkjunum
ErlentBandaríki Trumps

Róg­burður og rugl­ingur í kosn­inga­bar­átt­unni í Banda­ríkj­unum

Rang­færslum var dreift með orðrómi um veik­indi fram­bjóð­anda, kosn­inga­aug­lýs­ing birt­ist í rangri borg og grun­sam­legar send­ingar til kosn­inga­skrif­stofu inni­héldu duft. Allt setti þetta svip sinn á kosn­inga­bar­átt­una í Banda­ríkj­unum und­an­farna viku. Í ofaná­lag hefur Donald Trump for­seti boðað pen­inga­greiðslur til kjós­enda skömmu fyrir þing­kosn­ing­arnar 3. nóv­em­ber.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár