Fleiri möguleikar fyrir Trump á Grænlandi

Ef Donald Trump, for­seta Banda­ríkj­anna, er alvara með að styrkja stöðu Banda­ríkj­anna á Græn­landi, hefur hann ýmsa val­kosti – en hann gæti kosið þann sem ögrar mest.

Fleiri möguleikar fyrir Trump á Grænlandi

Donald Trump, for­seti Banda­ríkj­anna, hefur ítrekað haldið því fram að Banda­ríkin þurfi á Græn­landi að halda, sökum hern­að­ar­legs mik­il­vægis vegna þess að Rússland og Kína hafi aukið hern­að­ar­um­svif sín í nágrenn­inu, auk þess sem ís á norð­ur­slóðum er að bráðna vegna lofts­lags­breyt­inga.

Aftur og aftur hefur hann neitað að úti­loka beit­ingu valds til að ná Græn­landi á sitt vald, sem hefur vakið mikla reiði í Danmörku, traustum banda­manni Banda­ríkj­anna og stofn­að­ila NATO, sem fer með yfir­ráð yfir sjálf­stjórn­ar­svæð­inu á Græn­landi.

Nú þegar hafa Banda­ríkin hern­að­ar­lega við­veru á Græn­landi. Þar er Pituffik-her­stöðin, sem á rætur sínar að rekja til síð­ari heims­styrj­ald­ar­innar þegar Banda­ríkin sendu her­lið til að verja Grænland eftir að Danmörk féll í hendur nas­ista.

Um 150 her­menn eru var­an­lega stað­settir á þess­ari ísköldu stöð, en á tímum kalda stríðs­ins voru Banda­ríkin með allt að 6.000 her­menn sem voru vítt og breitt um Grænland, aðal­lega af ótta …

Kjósa
11
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár