Ísland fordæmir löggjöf Ísraels gagnvart UNRWA

Ísland for­dæmir lög­gjöf Ísraels sem hefur lokað fyrir vatn, raf­magn og fjar­skipti Palest­ínu­flótta­manna­að­stoð­ar­innar. „Slíkar aðgerðir grafa undan umboði Sam­ein­uðu þjóð­anna, brjóta í bága við alþjóða­lög og ganga gegn nið­ur­stöðum Alþjóða­dóm­stóls­ins,“ segir í yfir­lýs­ingu.

Ísland fordæmir löggjöf Ísraels gagnvart UNRWA
Yfir­lýs­ingar Íslands Ísland for­dæmir aðgerðir Ísraels gagn­vart Palest­ínu­mönnum. Mynd: Golli

Í land ásamt Írlandi, Lúx­em­borg, Möltu, Noregi, Slóveníu og Spáni hafa for­dæmt nýj­ustu lög­gjöf Ísraels gegn Palest­ínu­flótta­manna­að­stoð­inni, UNRWA, þar á meðal aðgerðir til að loka fyrir vatn, raf­magn og fjar­skipti til starfs­stöðva stofn­un­ar­innar. Ísrael lagð­ist í slíkar aðgerðir á gaml­árs­dag.

Í til­kynn­ingu á vef stjórn­ar­ráðs­ins segir: „Slíkar aðgerðir grafa undan umboði Sam­ein­uðu þjóð­anna, brjóta í bága við alþjóða­lög og ganga gegn nið­ur­stöðum Alþjóða­dóm­stóls­ins, en hætta er á alvar­legum mann­úð­ar­legum afleið­ingum fyrir palest­ínska borg­ara og flótta­menn.“

Við skorum einnig á Ísrael að tryggja að alþjóð­legum frjálsum félaga­sam­tökum verði áfram heim­ilt að starfa á Gaza og að öllum afskrán­ingum verði hætt. Frjálsum félaga­sam­tökum er veru­legur hluti af allri mann­úð­ar­þjón­ustu og sér­stak­lega heil­brigð­is­þjón­ustu á Gaza og Vest­ur­bakk­anum.“ 

Gaza eftir vopna­hléUNRWA hefur aðstoðað Palest­ínu­menn á Gaza.

Þau segja starf SÞ, sér í lagi UNRWA, ásamt öðrum mann­úð­ar­stofn­unum og frjálsum félaga­sam­tökum, nauð­syn­legt „til að takast á við hörmu­legar mann­úð­ar­að­stæður og veita lífs­nauð­syn­lega aðstoð og nauð­syn­lega þjón­ustu til borg­ara á Gaza, hernumdu palest­ínsku svæð­unum og svæð­inu í heild.“

Þá segir í til­kynn­ing­unni: „Við und­ir­strikum skyld­una til að tryggja fulla, örugga og óhindr­aðan aðgang að mann­úð­ar­að­stoð og gera mann­úð­ar­að­gerðum Sam­ein­uðu þjóð­anna og sam­starfs­að­ila þeirra kleift að halda áfram starf­semi sinni, í sam­ræmi við mann­úð­ar­rétt og við­eig­andi alþjóð­legar laga­legar skuld­bind­ingar.

Virðing fyrir for­rétt­indum og frið­helgi Sam­ein­uðu þjóð­anna og alþjóð­legum mann­úð­ar­lögum er nauð­syn­leg.“

Fordæma landtökubyggðir

Er þetta þriðja yfir­lýs­ing Íslands er varðar mál­efni Palest­ínu á tveimur vikum. Á jóla­dag birt­ist yfir­lýs­ing sextán ríkja sem for­dæma nítján fyr­ir­hug­aðar land­náms­byggðir á Vest­ur­bakka.

Þar segir: „Við minnum á að slíkar ein­hliða aðgerðir, sem eru hluti af víð­tæk­ari hern­aði land­nema­byggð­ar­stefnu á Vest­ur­bakk­anum, brjóta ekki aðeins gegn alþjóða­lögum heldur geta einnig kynt undir óstöð­ug­leika. Þær geta grafið undan fram­kvæmd heild­rænu áætl­un­ar­innar fyrir Gaza [e. Comprehensive Plan for Gaza] nú í kjöl­far þeirrar við­leitni sem hefur ríkt til að kom­ast á 2. áfanga [áætl­un­ar­innar] og skaðað áform um langvar­andi frið og öryggi á svæð­inu.“

Í nýrri skýrslu segir mann­rétt­inda­skrif­stofa Sam­ein­uðu þjóð­anna að „kerf­is­bundin mis­munun“ gegn Palest­ínu­mönnum á hernumdu palest­ínsku svæð­unum hafi „versnað veru­lega“ á und­an­förnum árum. Mann­rétt­inda­stjóri Sam­ein­uðu þjóð­anna hefur nú í fyrsta sinn lýst fram­ferði Ísraela sem aðskiln­að­ar­stefnu.

Þungar áhyggjur af borgurum

Í lok árs tók Ísland þátt í yfir­lýs­ingu ell­efu ríkja þar sem alvar­legum áhyggjum vegna alvar­legs mann­úð­ar­á­stands á Gaza var lýst yfir.

„Nú þegar vetur gengur í garð standa óbreyttir borg­arar á Gaza frammi fyrir hræði­legum aðstæðum með mik­illi úrkomu og lækk­andi hita­stigi. 1,3 millj­ónir manna þurfa enn á skjóli að halda. Meira en helm­ingur heil­brigð­is­stofn­ana er aðeins að hluta til starf­hæfur og stendur frammi fyrir skorti á nauð­syn­legum lækn­is­bún­aði og vistum. Hrein­læt­is­inn­viðir hafa algjör­lega hrunið og eru 740.000 manns því í við­kvæmri stöðu vegna eit­ur­efna­flóða,“ segir meðal ann­ars í yfir­lýs­ing­unni. 

Kjósa
18
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
1
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
6
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár