Það hefði verið auðvelt að svara spurningunni um hvað gerist árið 2026 á öðrum degi árs og segjast bíða eftir því að friðarsamkomulag – eða að minnsta kosti vopnahlé náist í Úkraínu og á Gasa. Og þótt það hafi kannski ekki komið eins og þruma úr heiðskíru lofti að Trump vildi skipta um valdhafa í Venesúela þá skekkir innrás Bandaríkjanna og ránið á Maduro þann 3. janúar sýn mína á alþjóðapólitíkina í ár. Hið svokallaða frjálslynda alþjóðakerfi hefur verið að veikjast undanfarin ár og þessi innrás sýnir að Bandaríkin eru að endurvekja Monroe-kennisetninguna frá 19. öld og vilja hafa óskorað vald yfir sínum nágrannalöndum.
„Þá sæta háskólar víða um heim árásum, í eiginlegri og óeiginlegri merkingu
Mikið hefur verið rætt um mögulega yfirtöku á Grænlandi en ég tel líklegra að önnur spænskumælandi lönd verði á undan. Erfiðustu skilaboðin sem koma út úr þessum aðgerðum eru auðvitað til annarra stórvelda, …























































Athugasemdir