Lögregla leitar eftir myndefni vegna rannsóknar á mannsláti í Kópavogi

Lög­regl­an leit­ar sér­stak­lega eft­ir mynd­efni frá veg­far­end­um sem fóru um bíla­stæði við Kópa­vogs­laug og göt­urn­ar Skjól­braut, Borg­ar­holts­braut, Með­al­braut og Kópa­vogs­braut föstu­dag­inn 28. nóv­em­ber, á tíma­bil­inu frá klukk­an 18 til mið­nætt­is.

Lögregla leitar eftir myndefni vegna rannsóknar á mannsláti í Kópavogi
Vill aðstoð Lögreglan leitar til almennings vegna rannsóknar á andláti manns í Kópavogi. Myndin tengist frétt ekki beint. Mynd: Golli

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu óskar eftir myndefni í tengslum við rannsókn á andláti karlmanns sem fannst látinn í heimahúsi í Kópavogi í lok nóvember. Fyrr í dag var gæslurvarðhald yfir manni sem handtekinn var fyrr í desember vegna málsins, framlengt fram í janúar. 

Í tilkynningu lögreglu kemur fram að leitað sé sérstaklega eftir myndefni frá vegfarendum sem fóru um bifreiðastæði við Kópavogslaug og göturnar Skjólbraut, Borgarholtsbraut, Meðalbraut og Kópavogsbraut föstudaginn 28. nóvember, á tímabilinu frá klukkan 18 til miðnættis.

Bent er á að mörg ökutæki séu búin myndavélum og því mögulegt að myndefni frá umræddum tíma sé til staðar hjá einstaklingum. Jafnframt eru forsvarsmenn öryggismyndavéla á svæðinu beðnir um að athuga hvort upptökur kunni að skipta máli fyrir málið.

Þeir sem hafa upplýsingar eða myndefni eru beðnir um að senda tölvupóst á netfangið r2a@lrh.is og gefa þar upp nafn sitt og símanúmer. Lögregla …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Íslensku fyrirtæki líkt við hertæknifyrirtækið Palantir
2
Viðskipti

Ís­lensku fyr­ir­tæki líkt við her­tæknifyr­ir­tæk­ið Pal­ant­ir

Stofn­end­ur ís­lenska hug­bún­að­ar­fyr­ir­tæk­is­ins Strat­is vilja ekki taka und­ir nafn­bót­ina „Pal­ant­ir Evr­ópu“ en hug­bún­að­ur þess hef­ur ver­ið not­að­ur af Úkraínu­her í drón­ar­hern­að. Smári McCart­hy, fyrr­ver­andi þing­mað­ur Pírata, er stofn­andi en sjóð­ur­inn Darkst­ar, sem sér­hæf­ir sig í hern­að­ar­mál­um, fjár­fest­ir.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Greiddu fyrrverandi oddvita 7 milljónir eftir að Framsókn fékk bæjarstjórastólinn
2
Stjórnmál

Greiddu fyrr­ver­andi odd­vita 7 millj­ón­ir eft­ir að Fram­sókn fékk bæj­ar­stjóra­stól­inn

Ný­stofn­að fé­lag Ág­ústs Bjarna Garð­ars­son­ar, fyrr­ver­andi odd­vita Fram­sókn­ar­flokks­ins í Hafnar­firði, fékk greiðsl­ur fyr­ir ráð­gjafa­störf eft­ir að flokks­bróð­ir hans, Valdi­mar Víð­is­son, tók við sem bæj­ar­stjóri. Ráð­gjafa­störf fyrr­um bæj­ar­stjóra Mos­fells­bæj­ar, Har­ald­ur Sverris­son, hóf­ust í tíð Rósu Guð­bjarts­dótt­ur, flokks­syst­ur hans.
Var settur á samheitalyf, steyptist út í sárum og lést
4
Viðtal

Var sett­ur á sam­heita­lyf, steypt­ist út í sár­um og lést

Sig­ur­laug Gísla­dótt­ir, móð­ir manns með hvít­blæði sem lést haust­ið 2023, seg­ir son sinn hafa ver­ið lát­inn þjást að óþörfu þeg­ar hann var tek­inn af frum­lyfi og sett­ur á sam­heita­lyf þrátt fyr­ir að lækn­ir hans hefði ósk­að eft­ir áfram­hald­andi lyfja­skír­teini fyr­ir frum­lyf­ið. Eft­ir að hann skipti um lyf steypt­ist hann út í sárs­auka­full­um sár­um. „Hann bara gat ekki meir,“ seg­ir hún.
Frjálshyggjumenn úr viðskiptalífinu gefa „þekktum hugsuðum“ sviðið
5
Innlent

Frjáls­hyggju­menn úr við­skipta­líf­inu gefa „þekkt­um hugs­uð­um“ svið­ið

Stjórn­end­ur Reykja­vík Fin­tech og Bæj­ar­ins Beztu Pyls­ur hafa stofn­að við­burða­fyr­ir­tæki eft­ir að hafa hald­ið fyr­ir­lestra með Jor­d­an Peter­son. Fyrstu við­burð­irn­ir eru með Frosta Sig­ur­jóns­syni um lofts­lags­mál og Bjórkast­inu, hlað­varpi þar sem stjórn­end­ur kenna sig við öfga­hægri og „kyn­þátt­ar­aun­sæi“.

Mest lesið í mánuðinum

Leynifundur Sigmundar Davíðs með Repúblikönum
4
RannsóknMAGA-tengingar Miðflokksins

Leynifund­ur Sig­mund­ar Dav­íðs með Re­públi­kön­um

Þrýsti­hóp­ur MAGA-hreyf­ing­ar­inn­ar borg­aði fyr­ir Norð­ur­landa­ferð hóps hátt­settra Re­públi­kana til að hitta Sig­mund Dav­íð Gunn­laugs­son og aðra áhrifa­menn af hægri væng stjórn­mál­anna. Með­al skipu­leggj­enda voru að­il­ar grun­að­ir um að reyna að stela for­seta­kosn­ing­un­um 2020 fyr­ir Don­ald Trump. Heim­ild­in rek­ur tengsl hug­veitna sem fjár­magn­að­ar eru af banda­rísk­um auð­mönn­um til Ís­lands.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár