Leitin að upprunanum

Höfundur
Höfundur Bryn­hildur Þór­ar­ins­dóttir fékk meðal ann­ars Norrænu barna­bóka­verð­launin fyrir end­ur­sagnir sínar á Íslend­inga­sög­unum. Mynd: Forlagið / Gassi
Bók

Silf­ur­gengið

Höfundur Brynhildur Þórarinsdóttir
Mál og menning
262 blaðsíður
Gefðu umsögn

ÁÁrið er 2022 og kór­óna­veiru­far­ald­ur­inn er loks í rénun. Sigríður Lei, eða Sirrýlei eins og hún er kölluð, fær gamla silf­ur­nælu í 15 ára afmæl­is­gjöf frá ömmu sinni. Á bak­hlið næl­unnar er nafnið Sigríður áletrað en Sirrýlei heitir í höf­uðið á ömmu sinni, Dídí, sem heitir í höf­uðið á ömmu sinni, Siggu, sem hét í höf­uðið á ömmu sinni, Sigríði. Þessi for­móðir Sirrý­leiar var upp­haf­legur eig­andi næl­unnar og nöfn­urnar þrjár sem á eftir komu hafa allar á ein­hverjum tíma­punkti fengið næl­una að gjöf. 

Ættfræðirannsóknir

Silf­ur­gengið er örlaga­saga þess­ara kvenna og eiga þær ýmis­legt fleira en nafnið sam­eig­in­legt, líkt og kemur hægt og rólega í ljós. Bókin flakkar um í tíma – allt frá síð­ari hluta 19. aldar til dags­ins í dag – og snertir á mörgu. Fólks­flutn­ingar Íslend­inga vestur um haf, ástandsárin, stríð og heims­far­aldur móta líf per­són­anna. Sögurnar sem amma Dídí segir af for­tíð­inni vekja for­vitni Sirrý­leiar …

Kjósa
8
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

4
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár