Leggja inn á jólareikning í hverjum mánuði

Mik­il­vægt er að sníða sér stakk eftir vexti þegar kemur til dæmis að jóla­gjafa­kaupum. Þær þurfa ekki að vera dýrar, hægt er að kaupa gam­alt eða notað, búa eitt­hvað til eða gefa sam­veru­stundir. Björn Berg Gunn­ars­son fjár­mála­ráð­gjafi varar við því að dreifa greiðslum en mælir með því að leggja mán­að­ar­lega inn á jóla­reikn­ing.

Leggja inn á jólareikning í hverjum mánuði
Vegna sam­an­burðar Sumum finnst þeir þurfa að kaupa dýrar jóla­gjafir vegna þess að þá finnst þeim þeir gleðja við­tak­and­ann meira en ella. Björn segir að við séum hvött til þess vegna sam­an­burðar. „Við erum ekki endi­lega að met­ast eða monta okkur og kannski finnst okkur við vera að bregð­ast ef við gerum ekki eins og náung­inn.“ Mynd: Golli

Miklar freist­ingar fylgja jól­unum og und­ir­bún­ingi þeirra, mikið er lagt í aug­lýs­ingar á hinum ýmsu vörum og boðið upp á afslætti. Björn Berg Gunn­ars­son fjár­mála­ráð­gjafi segir áreitið ekki endi­lega til þess fallið að hjálpa fólki að velja réttu gjaf­irnar, heldur ein­fald­lega til að fá það til að versla meira.

„Það sem hjálpar fólki að verj­ast þessu og öðrum heim­il­is­út­gjöldum, er að skipu­leggja sig betur, skrifa hlut­ina niður og vera þá búinn að ákveða hversu mikið á að fara í hitt og þetta. Eins og hversu miklu má verja í jóla­gjafir, skreyt­ingar og jóla­mat. Það þýðir að þegar við förum í versl­anir þá kaupum við það sem var búið að ákveða að kaupa. Ann­að­hvort var búið að ákveða hvað átti að kaupa eða hvað það mátti kosta. Þannig getum við stað­ist áætl­anir okkar.“

Með góðu skipu­lagi og hug­mynda­auðgi sé margt hægt að gera sem felur í sér meiri …

Kjósa
8
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár