Fara fram á fangelsisdóm yfir heimsþekktum áhrifavaldi

Harvard Business School hefur notað feril hennar sem dæmi um tækifærin sem felast í því að færa frægð og vinsældir á samfél­gs­miðlum yfir í arðbæran rekstur. Nú fara saksókn­arar á Ítalíu fram á að einn þekktasti áhrifa­valdur tísku­heimsins, Chiara Ferragni, verði dæmd í fangelsi verði hún fundin sek um svik í tengslum við markaðs­setningu á vörum sem seldar voru til styrktar góðgerðar­mála.

Hin Ítalska Chiara Ferragni var táknmynd konunnar sem átti allt og gat allt. Hún var gift þekktum rappara og tónlistar­fram­leiðanda að nafni Federico Leonardo Lucia, eða Fedez, og átti með honum tvö börn. Hún fæddist árið 1987 og ólst upp í Cremona í Lombardy-héraðinu, 72 þúsund manna borg sem er best þekkt sem heimaland fiðlunnar, en öðlaðist vinsældir á samfélags­miðlum þar sem hún var með um 29 milljónir fylgjenda þegar mest lét. 

Vinsældirnar nýtti hún til þess að byggja upp viðskipta­veldi í tísku, lífsstíl og markaðs­setningu. Hún rak verslanir víða um heim, seldi skó, fatnað og fylgi­hluti. Hún ferðaðist um, gekk í hátísku­fötum og lifði svo spennandi lífi að um hana hafa bæði verið gerðir raun­veruleika­þættir og heimildar­mynd.

Harvard Business School notaði feril hennar sem dæmi um hvernig hægt er að yfirfæra vinsældir á samfélags­miðlum yfir í stórt fyrirtæki sem skilar miklum hagnaði. Árið 2017 var hún efst …

Kjósa
14
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár