Greene segir hótanir aukast eftir árásir Trump

Marjorie Taylor Greene, sem lengi var helsti banda­maður Donalds Trump, segir að hótanir gegn sér hafi stig­magnast eftir að forsetinn snerist opinber­lega gegn henni og gagnrýndi hana harðlega á samfélags­miðlum.

Vinir
Vinir Banda­ríska þing­konan Marjorie Taylor Greene var um langa hríð einn helsti stuðn­ings­maður Trump. Nú eru uppi vanga­veltur hvort hún hygg­ist bjóða sig fram til emb­ættis for­seta í næstu kosn­ingum. Mynd: ELIJAH NOUVELAGE / AFP

Marjorie Taylor Greene, sem hefur verið einn nánasti banda­maður Donalds Trump Bandaríkja­forseta, segist hafa orðið fyrir bylgju hótana eftir að Trump réðist að henni á samfélags­miðlum.

Hin 51 árs gamli þingkona Repúblikana­flokksins hafði áður verið einn af burða­rásum MAGA-hreyfingu Trumps, en forsetinn tilkynnti á föstudag að hann væri að draga allan stuðning sinn til baka frá „Klikkuðu Marjorie“.

Hann fylgdi því svo eftir snemma í morgun með fjölda færslna á Truth Social þar sem hann kallaði Greene meðal annars „léttvæga“ og jafnvel „svikara“ við Repúblikana­flokkinn.

Greene sagði síðar á X að hún væri „að fá ábendingar frá öryggis­fyrirtækjum sem vara mig við öryggi mínu þar sem hótanir gegn mér eru að aukast og valda­mesta maður heims kyndir undir“.

Greene hefur undan­farnar vikur fjarlægst forsetann, á sama tíma og gagnrýni á hann vex vegna áhyggja af framfærslu­kostnaði í Banda­ríkjunum og Epstein-hneykslinu. 

Deila þeirra markar jafnframt …

Kjósa
15
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár