Norð­fjörð-frændur í blíð­unni Nökkvi Norð­fjörð og Leó Norð­fjörð, sonur Ísoldar, systur hans, eru hluti af einni öfl­ug­ustu þrí­þraut­ar­fjöl­skyldu lands­ins. Leó hefur fylgt fjöl­skyld­unni í keppni og æfingar frá fæð­ingu. Kepp­endur tóku sun­dæf­ingar í sjónum dag­ana fyrir keppni til að kynn­ast aðstæðum vel. Mynd: Golli

Járnvilji, vonir og vinskapur

Járn­karl­inn er þrekraun sem krefst þess að synda 3.800 metra, hjóla 180 kíló­metra og hlaupa heilt mara­þon, en hver þrautin tekur við af annarri. Fyrr fáeinum dögum flykkt­ust hund­rað Íslend­ingar til Portú­gals til að keppa í heilum eða hálfum Járn­karli og sigr­ast á sjálfum sér.

Fimm þús­und manns standa þétt á og við litla sand­strönd við bæinn Cascais í Portúgal eldsnemma á laug­ar­dags­morgni í októ­ber. Öll eru klædd níð­þröngum sund­göllum með sund­hettur á höfði og sund­gler­augu yfir. Spennustigið er hátt og fæst hafa náð að sofa vel nótt­ina áður, þurft að rífa sig upp löngu fyrir birt­ingu til að næra sig og kom­ast á stað­inn. Þau hafa und­ir­búið sig lengi fyrir þessa stund, að geta, þegar bjallan klingir, hlaupið út í sjó og synt í átt að sól­ar­upp­kom­unni. Þau stefna öll að því að verða Járn­karlar, heilir eða hálfir, en það eiga eftir að líða margir klukku­tímar þangað til þau geta fagnað þeim titlum, klukku­tímar af sundi, hjóli og hlaupi.

Í þessum risa­hópi sem hefur raðað sér ber­fættur á sand­strönd­ina eru tæp­lega hund­rað Íslend­ingar til­búnir í slag­inn, reynslu­boltar og nýgræð­ingar. Í áhorf­enda­sk­ar­anum, sem hefur yfir­tekið mið­borg­ina í þessum fal­lega strandbæ, má sjá íslenska fána og …

Kjósa
6
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár