Ekki geðveila heldur alvarlegur sjúkdómur

Lilja Sif Þóris­dóttir er félags­ráðgjafi hjá Akur­eyr­ar­klíník­inni en hún segir ME og langtíma Covid-sjúklinga gjarnan hafa mætt algjöru skilnings­leysi þó að sjúkdóms­einkennin hafi verið hörmuleg. Stjórn­völd og samfélagið þurfi að koma til móts við þetta fólk, til dæmis með því að bjóða upp á aukin hluta­störf, þegar við á, það sé dýrt að missa svo marga úr vinnu eins og raun ber vitni.

Sem félags­ráðgjafi liðsinnir Lilja Sif Þóris­dóttir fólki með réttindamál í heilbrigðis­kerfinu til að finna viðeigandi farveg í flóknu kerfi réttinda-, lífeyris- og trygginga­mála. Hún segir starfið krefjandi þar sem ME-sjúk­dómurinn eða langvinnt Covid sé ekki nægilega viðurkennt.

„Þetta er mest krefjandi sjúklinga­hópur sem ég hef unnið með þegar kemur að réttinda­málum því lagaramminn sem við búum við hefur verið mjög óhag­stæður fyrir þessa einstaklinga hingað til en nú 1. september komu ný lög sem munu breyta heilmiklu fyrir okkar skjólstæðinga.“

Í ofanálag hefur hún sinnt greiningar­viðtölum með læknum, auk þess að vera tíma­bundið teymis­stjóri, en hlutverk hans er að halda utan um allt skipulag. „Þetta er töluvert miðað við starfs­hlutfallið sem ég er í.“

Allt annað viðhorf til þessa hóps

Hún segir að sjúklingar með ME og langvinnt Covid sitji ekki við sama borð og aðrir sjúklingar, til dæmis krabbameins­sjúklingar, þegar kemur að réttindum. „Alls ekki, …

Kjósa
29
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • LDA
    Lilja Dögg Arnþórsdóttir skrifaði
    Ekki geðveila heldur alvarlegur sjúkdómur !! Með þessari fyrirsögn er verið að ýta undir þá fordóma að geðsjúkdómar séu ekki sjúkdómar. Sjálfsvíg algengasta dánarorsök ungs fólks á Íslandi var fyrirsögn á Rúv 4 sept 2025. Gerið betur.
    4
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

ME-faraldur

ViðtalME-faraldur

Eini sjúk­dómurinn sem kenndur er við Ísland

„Þegar hann sá passann hennar hrópaði hann upp yfir sig: Iceland, Icelandic disease! og hún sagði honum að hún hefði sjálf veikst af sjúk­dómnum,“ segir Óskar Þór Halldórsson, sem skrifaði bók um Akureyrar­veikina þar sem ljósi er varpað á alvarleg eftirköst veiru­sýkinga. Áhugi vísinda­manna á Akureyrar­veikinni sem geisaði á miðri síðustu öld hefur verið töluverður eftir Covid-faraldurinn.
ÚttektME-faraldur

Ungu fólki í blóma lífsins er allt í einu kippt út úr samfélaginu

Þó svo að ME-sjúk­dómurinn hafi sennilega verið til í aldir hefur hann lengi farið hljótt og verið lítt viðurkenndur. Ástæða þess er væntanlega sú að þar til nú hefur verið erfitt að skilja meingerð sjúk­dómsins. Þrátt fyrir að mjög skert lífsgæði og að byrði sjúk­dómsins sé meiri en hjá sjúklingum með aðra alvarlega sjúkdóma er þjónusta við þá mun minni en aðra sjúklinga­hópa.

14 mín. lestur

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár