Snorri býður sig fram til varaformanns

Snorri Másson, þing­maður Mið­flokks­ins, hefur ákveðið að gefa kost á sér í emb­ætti vara­for­manns flokks­ins.

Snorri býður sig fram til varaformanns

„Að und­an­förnu hef ég fengið afar ein­dregna hvatn­ingu frá flokks­mönnum til þess að gefa kost á mér í þetta hlut­verk. Sú áskorun er komin frá ungum sem öldnum úr öllum áttum. Nið­ur­staða mín er sú að fram sé komið raun­veru­legt ákall innan flokks­ins um end­ur­nýjun í ásýnd for­yst­unnar.“

Þetta segir Snorri Másson, þing­maður Mið­flokks­ins, í til­kynn­ingu til fjöl­miðla en hann hefur ákveðið að gefa kost á sér til emb­ættis vara­for­manns Mið­flokks­ins.

Þing­menn­irnir Bergþór Ólason og Ingi­björg Dav­íðs­dóttir hafa einnig gefið kost á sér til vara­for­manns. Lands­þing flokks­ins mun fara fram dag­ana 11.-12. októ­ber.

„Nú vex úr grasi kyn­slóð Íslend­inga sem er lík­lega póli­tísk­ari en nokkru sinni fyrr og tæki­færin fyrir Mið­flokk­inn í þessum hópi eru meiri en flestir gera sér grein fyrir. Líklega hefði maður upp­skorið hlátur fyrir aðeins örfáum árum ef maður hefði spáð því að árið 2024 væri Mið­flokk­ur­inn far­inn að vinna Krakka­kosn­ingar, en svona eru tím­arnir að breyt­ast.

„Verði ég kjör­inn vara­for­maður Mið­flokks­ins, mun ég róa að því öllum árum með núver­andi for­ystu að nýta þetta dauða­færi. Við þurfum núna að færa út kví­arnar og halda áfram stækka flokk­inn á okkar trausta grunni,“ segir Snorri.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár