Missti heilsuna eftir alvarleg andleg veikindi yngri systur sinnar

Gísella Hann­es­dóttir fékk tauga­á­fall og missti heils­una í sumar í kjöl­far sjálfs­vígstil­raunar yngri systur sinnar. Hún upp­lifir að aðstand­endur sjúk­linga með alvar­leg geð­ræn veik­indi fái ekki nægan stuðn­ing í heil­brigð­is­kerf­inu. „Það er kannski einn fjöl­skyldu­með­limur sem er veikur en allir í fjöl­skyld­unni fara í hyl­dýpið með þeim,“ segir hún.

Missti heilsuna eftir alvarleg andleg veikindi yngri systur sinnar
Þurfa verk­færi „Það eru aðstand­endur sem geta kannski stutt mest við – en þeir þurfa þá að fá verk­færin,“ segir Gísella. Mynd: Golli

Gísella Hann­es­dóttir er eldri systir 17 ára stúlku sem hefur glímt við sjálfs­skaða og sjálfs­vígs­hegðun und­an­farið eitt og hálft ár.  „Þetta hefur verið mjög erfitt fyrir mína and­legu heilsu og hefur haft mikil áhrif á mig,“ segir Gísella, sem er aðeins 22 ára, en hún fékk tauga­á­fall og fór í svo­kall­aða kulnun í líf­inu í ágúst í kjöl­far síð­ustu sjálfs­vígstil­raunar systur sinnar.

Hún upp­lifir að aðstand­endur ein­stak­linga með geð­ræn veik­indi séu skildir eftir í heil­brigð­is­kerf­inu. „Það er svo fárán­legt því að aðstand­endur eru inni í aðstæð­unum allan tím­ann,“ útskýrir hún og segir: „Það eru aðstand­endur sem geta kannski stutt mest við – en þeir þurfa þá að fá verk­færin.“     

Rann­sóknir hafa sýnt fram á að alvar­leg geð­ræn veik­indi hafi ekki ein­ungis áhrif á sjúk­ling­inn sjálfan heldur hafi mikil áhrif á aðstand­endur þeirra. Fjöl­skyldu­með­limir búa sjálfir við verri lík­am­lega heilsu en almennt gengur og ger­ist og leita oftar eftir lækn­is­að­stoð en önnur. Meðal ein­kenna sem fjöl­skyldu­með­limir upp­lifa eru svefn­leysi, höf­uð­verkir og gíf­ur­leg þreyta. Þá eru fjöl­skyldu­með­limir oft í umönn­un­ar­hlut­verki en slíku fylgir mikið and­legt álag. 

Aðstand­endur útsettirAðstand­endur eins og Gísella upp­lifa mörg heilsu­bresti vegna álags sem fylgir því að eiga alvar­lega and­lega veika ást­vini.

Músíkalskar og nánar systur

„Við eigum rosa náið sam­band og það hefur alltaf verið þannig,“ segir Gísella um sam­band sitt við Huldu Guð­björgu, yngri systur sína. „Ég er mjög náin fjöl­skyldu minni og mér þykir vænt um fólkið mitt. Þannig að maður er alltaf að reyna að passa upp á það.“

Syst­urnar eru bestu vin­konur og á milli þeirra er strengur vegna sam­eig­in­legs áhuga þeirra á tón­list. Gísella spilar á píanó og stund­aði söng­nám í Söng­skól­anum í Reykja­vík og Hulda stundar fiðlu­nám við Tón­list­ar­skóla Kópavogs og er í ungsveit Sin­fón­íu­hljóm­sveitar Íslands. „Hún er mjög töff fiðlu­leik­ari. Hún getur spilað hvað sem er eftir eyr­anu,“ lýsir Gísella af aðdáun og heldur áfram: „Það er mjög gaman að spila saman.“ 

Kjósa
18
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Kristjana Magnusdottir skrifaði
    Er kólnun þá ekki bara leti hjá þeim sem þykjast detta í það ástand ?
    0
  • SIB
    Sigurður I Björnsson skrifaði
    Gangi þeim sem allra best, andleg veikindi eru ekkert grín.
    2
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár