Læknirinn stefnir Hödd fyrir meiðyrði

Hödd Vil­hjálms­dóttir greindi frá því í dag að Hörður Ólafsson, maður sem hún hafði ásakað opin­ber­lega um nauðgun, hefði stefnt sér fyrir meið­yrði.

Læknirinn stefnir Hödd fyrir meiðyrði

Hödd Vil­hjálms­dóttur, lög­fræð­ingi og almanna­tengli, hefur verið stefnt fyrir meið­yrði af Herði Ólafs­syni, lækni sem hún sak­aði opin­ber­lega um að hafa nauðgað sér meðan hún var í háskóla­námi.

Þessu greinir Hödd frá í Facebook-færslu fyrr í dag. 

„Á dög­unum afhenti afskap­lega almenni­legur stefnu­vottur mér stefnu sem þing­fest verður í Hér­aðs­dómi Reykja­víkur þann 4. sept­em­ber. Sá sem stefnir er Hörður Ólafsson og þó ég hélt ég myndi nú aldrei hrósa honum þá verð ég nú að segja að það kom mér skemmti­lega á óvart að hann hefði pung í þetta. Litli kall­inn fær prik hjá mér fyrir og enn meira prik fyrir að hafa það fyrir aðal­kröfu að pistlar mínir er hann varða verði í heild dæmdir dauðir og ómerkir.“

Hödd sagði á sam­fé­lags­miðlum þann 18. júlí að sér hefði verið byrlað og nauðgað í tvö aðskilin skipti meðan hún nam lög­fræði við Háskóla Íslands. Þar nafn­greindi hún Hörð sem ger­anda sinn.

Segir lækninn krefjast tveggja ára fangelsisvistar

Segir Hödd að Hörður krefj­ist þess að hún sitji í fang­elsi í tvö ár, greiði honum fimm millj­ónir í miska­bætur auk þriggja millj­óna til að standa straum af birt­ingu nið­ur­stöðu dóms­ins í fjöl­miðlum.

„Mér þótti hann nú sjaldan fynd­inn en honum tókst árið 2025 að láta mig hlæja. [...] Ég stend keik og mæti vit­leysu Harðar Ólafs­sonar og er stolt af því að hafa loks­ins gert það sem ég þurfti til að fá frið í hjartað mitt. Ég trúi því að sann­leik­ur­inn sigri að lokum en ef svo ólík­lega vill til að hann gerir það ekki þá tek ég glöð á móti heim­sóknum á Hólms­heiði á meðan ég sit inni,“ skrifar Hödd.

Kjósa
24
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár