Vísitala neysluverðs lækkar – verðbólga 3,8%

Sé horft til síð­ustu tólf mán­aða hefur vísi­tala neyslu­verðs hækkað um 3,8%, sem jafn­gildir árlegri verð­bólgu. Vísitala án hús­næðis hefur á sama tíma­bili hækkað um 2,8%

Vísitala neysluverðs lækkar – verðbólga 3,8%

Vísi­tala neyslu­verðs, sem mælir verð­breyt­ingar á neyslu­vörum og þjón­ustu, mæld­ist 657,6 stig í ágúst 2025 . Hún lækk­aði um 0,15% frá fyrri mán­uði. Vísitala neyslu­verðs án hús­næðis var 526,5 stig og lækk­aði um 0,38% frá júlí. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá Hagstofu Íslands. 

Þróunin milli mán­aða end­ur­speglar nokkuð skörp áhrif ein­stakra liða. Húsgögn og heim­il­is­bún­aður hækk­uðu um 6,6% og höfðu áhrif upp á 0,10% á vísi­töl­una. Lækkun á flug­far­gjöldum til útlanda sem dróg­ust saman um 12,0% lækk­uðu vísi­töl­una um 0,35%.

Mynd: Hagstofa Íslands

Sé horft til síð­ustu tólf mán­aða hefur vísi­tala neyslu­verðs hækkað um 3,8%, sem jafn­gildir árlegri verð­bólgu. Vísitala án hús­næðis hefur á sama tíma­bili hækkað um 2,8%. Þetta bendir til þess að hús­næð­islið­ur­inn hafi áfram nokkuð mikil áhrif á þróun verð­bólgu, líkt og verið hefur und­an­farin ár.

Lít­ils­háttar lækkun vísi­töl­unnar frá júlí til ágúst gefur þó vís­bend­ingu um að þrýst­ingur á verð­bólgu sé að minnka að hluta. Flug­far­gjöld og alþjóð­leg þróun á flutn­ings- og ferða­kostn­aði virð­ast hér vega þungt, á meðan verð á inn­lendum vörum eins og hús­gögnum heldur áfram að hækka.

Samkvæmt útreikn­ingum Hag­stof­unnar gildir vísi­tala neyslu­verðs í ágúst, 657,6 stig, til verð­trygg­ingar í októ­ber 2025.

Kjósa
2
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • MM
    Markus Moller skrifaði
    Ekki fara með vitleysu eins og í fyrirsögninni. Vísitalan hækkaði um 3,8%, en hækkunin var minni en mældist síðast.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár