Átta íbúar með samanlagðan milljarð í tekjur í Vík í Mýrdal

Átta íbúar í Mýr­dals­hreppi eru á Hátekju­lista Heim­ild­ar­innar, þar á meðal skatta­kóngur Suð­ur­lands.

Átta íbúar með samanlagðan milljarð í tekjur í Vík í Mýrdal
Dyr­hólaey Það er margt að sjá í Vík í Mýrdal sem er sann­kölluð perla í ferða­mennsk­unni. Vel yfir milljón ferða­menn sækja bæinn heim ár hvert og skilar það bæði miklum tekjum, en ekki síst tölu­verðu álagi á þorps­búa. Mynd: Golli

Átta ein­stak­lingar búsettir í Mýr­dals­hreppi eru á Hátekju­lista Heim­ild­ar­innar og eru sam­an­lagðar tekjur þess­ara ein­stak­linga rétt um millj­arður króna, en um 881 ein­stak­lingur er búsettur í Mýr­dals­hreppi.

Tveir athafna­menn eru þar atkvæða­mestir, ann­ars vegar skatta­kóngur Suð­ur­lands, hót­el­eig­and­inn Sigurður Elías Guð­munds­son, sem var með um 430 millj­ónir í árs­tekjur, og svo Ágúst Þór Eiríks­son, eig­andi Icewear, sem var með 318 millj­ónir í heild­ar­tekjur.

Þessi átta manna hópur er rétt undir einu pró­senti af heild­ar­fjölda íbúa á svæð­inu, eða 0,82 pró­sent. Á annað hund­rað manns starfa hjá Sigurði Elíasi og um 250 manns hjá Ágústi Þór sem á og rekur Icewear.

Arðbært þorp

Tekju­bilið á milli þeirra sem fá hæstu tekj­urnar á svæð­inu rokka úr um 36 millj­ónum upp í ríf­lega 400 millj­ónir en sá sem er með lægstar tekjur í þessum fámenna hópi er bóndi og land­eig­andi að Reyn­is­fjöru, Ólafur Steinar Björns­son. …

Kjósa
8
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Hátekjulistinn 2024

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár