Hefur ferðast til allra landa í heiminum tvisvar

Harry Mitsidis hefur helgað lífi sínu ferða­lögum um heim­inn. Hann hefur þegar heim­sótt öll lönd í heim­inum tvisvar og stofn­aði vef­síðu fyrir fólk sem deilir áhuga hans á ferða­lögum. Sam­fé­lagið sem Harry bjó til telur tugi þús­unda. Hann segir fólk alls staðar að úr heim­inum líkt hvað öðru og að flestir vilji það sama út úr líf­inu.

Hefur ferðast til allra landa í heiminum tvisvar
Harry Mitsidis Staddur í Machu Picchu á síð­asta ári. Harry byrj­aði ungur að ferð­ast vegna þess að for­eldrar hans eru frá Suður-Afríku og Grikk­landi en hann fædd­ist í Bret­landi. Mynd: Harry Mitsidis

Harry Mitsidis hefur ferð­ast til allra landa í heim­inum tvisvar, og ekki nóg með það heldur skipti hann heim­inum upp í 1.301 svæði og hefur þegar farið til 1.296 þeirra. Harry er félags­fræð­ingur að mennt og seg­ist horfa á heim­inn með augum félags­fræð­innar. 

Hirðingjar heimsins

„Ég er drif­inn áfram af for­vitni,“ segir ferða­lang­ur­inn Harry og stofn­andi sam­fé­lags­ins Nomad­Mania. Hann hefur ferð­ast um allan heim til að svala for­vitn­inni og þegar Heim­ildin náði tali af honum var Harry nýkom­inn heim frá Asíu. 

Frá unga aldri hefur Harry ferð­ast meira en flestir. Móðir hans er frá Suður-Afríku og faðir hans Grikk­landi en sjálfur fædd­ist Harry í Bret­landi. Fjöl­breyttur bak­grunnur Harrys gerði það að verkum að hann sýndi snemma áhuga á landa­fræði og ólíkum menn­ing­ar­heimum. 

Á ferð og flugiHér er Harry staddur í Tajikistan. Hann hefur komið til allra landa í heim­inum tvisvar.
Kjósa
9
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár