Innri endurskoðun og ráðgjöf (IER) Reykjavíkurborgar telur rétt að skoða hvort sækja eigi skaðabætur til verktaka eða ráðgjafa sem komu að byggingu leikskólans Brákarborgar.
Borgarráð fjallaði um úttekt IER á fundi sínum í dag og samþykkti að skipa starfshóp til að vinna að umbótum er varða eftirfylgni á hönnun, framkvæmdum og eftirliti með framkvæmdum á vegum borgarinnar.
Í úttektinni kemur meðal annars fram að Arkamon ehf., fyrirtækið sem hannaði burðarvirki leikskólans, hafi ekki mætt kröfum. „IER telur að burðarvirkishönnuður hafi ekki uppfyllt hæfisskilyrði fyrir burðarvirkishönnun skólabyggingar en hann var valinn á grundvelli lægsta verðs,“ segir í samantekt IER.
„Hann var valinn á grundvelli lægsta verðs“
Þá lágu burðarvirkisuppdrættir ekki fyrir þegar útboð í byggingu skólans voru opnuð 2021. „IER telur mikilvægt að ekki vanti í útboðsgögn veigamikla verkþætti í mannvirkjagerð eins og burðarvirkisuppdrætti og greinargerð um burðarhæfni byggingarinnar m.t.t. fyrirhugaðrar notkunar.“
Eftirlitsaðili verkefnisins, Verksýn hf., fær einnig gagnrýni. „IER telur að umsjónar- og eftirlitsaðili hafi ekki staðið að öllu leyti skil á sínum verkefnum samkvæmt útboðsgögnum,“ segir í úttektinni. „Helst ber þar að nefna að ekki var unnin eftirlitsáætlun, lokaskýrsla eða skilagrein og aðeins ein framvinduskýrsla.“
Loks er það gagnrýnt að verktakinn, Þarfaþing ehf., hafi einnig verið í hlutverki byggingarstjóra, sem á að hafa eftirlit með verkinu.
Hundruð milljóna í lagfæringar
Reykjavíkurborg flutti leikskólann Brákarborg í endurbyggt húsnæði við Kleppsveg 150-152 þar sem áður var kynlífstækjabúðin Adam og Eva. Kaup á eignunum voru samþykkt 2020 og starfsemi leikskólans hófst í lok sumars 2022. Fljótlega um haustið bárust tilkynningar um sprungur í hleðsluveggjum leikskólans. Niðurstaða könnunar leiddi í ljós að byggingarnar uppfylltu hvorki fyrir né eftir framkvæmdir gildandi jarðskjálftastaðla og einnig var gerð athugasemd varðandi þök húsanna í tengibyggingu.

Einar Þorsteinsson, þáverandi borgarstjóri, taldi nauðsynlegt að rýma húsnæðið á meðan lagfæring á burðarvirki húsanna færi fram og óskaði eftir úttekt á því hvar ábyrgðin lægi í málinu. Var starfsemin flutt í bráðabirgðarhúsnæði í Ármúla.
Endanlegur kostnaður við lagfæringarnar liggur ekki enn fyrir en skrifstofa framkvæmda og viðhalds mannvirkja (SFV) bauð verkið út í nóvember 2024 og var lægsta tilboð 223,2 milljónir króna. Verklok eru áætluð í sumar. „Þá er ótalinn kostnaður við skýrslur ráðgjafa, hönnun, umsjón og eftirlit og flutning leikskólans og leigu á öðru húsnæði,“ segir í úttektinni.
17 milljónir fyrir hvert leikskólapláss
Heildarkostnaður við leikskólann vegna endurbóta á húsnæði og lóð og kaupa á fasteignum við Kleppsveg 150-152 nam samtals rúmum 2 milljörðum króna. Þá er ótalinn kostnaður á þeim viðgerðum og endurbótum sem standa yfir. Verkið fór því langt yfir áætlun. „Miðað við þau 100 börn sem innrituð voru hjá Brákarborg árið 2022 kostaði hvert pláss 17 m.kr., eða 1,7 m.kr. á hvern fermetra,“ segir í úttektinni.
„Kostaði hvert pláss 17 m.kr., eða 1,7 m.kr. á hvern fermetra“
„IER telur mikilvægt að umhverfis- og skipulagssvið (USK) meti heildarkostnað vegna tjónsins þegar framkvæmdum við Brákarborg lýkur og hvort sækja eigi skaðabætur til verktaka og/eða ráðgjafa,“ segir í úttektinni.
Þarfaþing ehf. var valið verktaki í framkvæmdirnar en sinnti einnig hlutverki byggingarstjóra, sem hefur þá ábyrgð að hafa virkt eftirlit með þeim sem koma að byggingunni og framkvæma reglulegar úttektir. „IER telur að það að fela verktakanum að annast lögbundið hlutverk byggingarstjóra veiki eftirlitshlutverk hans,“ segir í úttektinni. „Færi betur á því að hlutverkið væri í höndum umsjónar- og eftirlitsaðila.“
Fjórtán úrbótatillögur
IER leggur að lokum til 14 úrbótatillögur og listar þar fyrst upp hugmyndina að sækja skaðabætur til verktaka og/eða ráðgjafa. Þá er USK hvatt til að gera ítarlega skoðun á burðarvirki við kaup á eldra húsnæði og mælt með því að fara ekki í útboð nema útboðsgögn liggi fyrir með veigamiklum þáttum á borð við burðarvirkisteikningar.
Þá er lagt til að USK aðskilji hlutverk verktaka og byggingastjóra til að forðast hagsmunaárekstra við eftirlit. Verklag við kostnaðar- og tímaáætlanir er gagnrýnt, auk þess sem ábendingar um stjórnskipulag, gæðakerfi og mönnun eru lagðar fram.
Athugasemdir