„Fólk þarf að muna að þetta er frí“

Dr. Drífa Björk Guð­munds­dóttir er klínískur sál­fræð­ingur. Hún segir sýni­legt daga­tal, fasta punkta yfir dag­inn og svefn geta hjálpað til við að draga úr streitu þeirra sem eru með ADHD yfir sum­ar­tím­ann.

„Fólk þarf að muna að þetta er frí“

Sumarið er komið. Þessi tími ein­kenn­ist oft af mik­illi úti­veru, sam­veru­stundum með fjöl­skyld­unni, ferðum og gleði. En sum­ar­tím­anum geta líka fylgt áskor­anir. Fyrir þau sem eru með ADHD (e. Attention Deficit Hyperactivity Disorder) getur sum­ar­tím­inn valdið streitu. 

Dr. DrífaSegir algengt að ófyr­ir­sjá­an­leik­inn á sumrin reyn­ist fólki með ADHD erf­iður. Hún mælir með að sum­ar­fríið sé und­ir­búið og mán­að­ar­yf­ir­lit sýni­legt.

Dr. Drífa Björk Guð­munds­dóttir er klínískur sál­fræð­ingur og starfar á Barna­spít­al­anum. Hún hélt á dög­unum erindi hjá ADHD-sam­tök­unum um sum­ar­fríið og ADHD. Í sam­tali við Heim­ild­ina sagði hún mik­il­vægt að fólk muni eftir því að hvíla sig og ná slökun í frí­inu.

Hvað er ADHD?

„ADHD er tauga­þroska­röskun sem ein­kenn­ist af þrenns lags ríkj­andi ein­kennum,“ segir Drífa. Ein­kennin eru athygl­is­brestur, ofvirkni og hvat­vísi. Það er ólíkt á milli ein­stak­linga hvort öll þrjú ein­kennin eru til staðar og hvernig þau birt­ast. Drífa segir ADHD gjarnan líkt við Ferrari-bíl með …

Kjósa
8
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár