Spurningaþraut Illuga 23. maí 2025 – Hvað er athugavert við þessa mynd? og 16 aðrar spurningar

Hér geta les­endur spreytt sig á spurn­inga­þraut­inni.

Spurningaþraut Illuga 23. maí 2025 – Hvað er athugavert við þessa mynd? og 16 aðrar spurningar
Fyrri mynda­spurn­ing: Hvað er athuga­vert við mynd­ina?
Seinni mynda­spurn­ing:Hvað hét þessi kona?

  1. Hvaða hljóm­sveit flutti fyrst lagið Hey Jude?
  2. Hver er þriðja fjöl­menn­asta borg á Íber­íu­skaga/Pýrene­a­skaga?
  3. Hversu margir eru hæsta­rétt­ar­dóm­arar á Íslandi?
  4. Með hvaða fót­boltaliði á Englandi hefur Dagný Brynjars­dóttir leikið und­an­farin ár?
  5. Akita, Mastiff og Samoyed. Hvað er þetta?
  6. En um hvað eru hug­tökin Squoval, Coffin, Almond, Stiletto og Lipstick notuð?
  7. Einn fræg­asti ball­ett tón­listar- og dans­sög­unnar er kenndur við fugla. Hvaða fugla?
  8. Innan hvaða ríkis er sér­stakt sjálf­stjórn­ar­svæði Gyðinga, þótt þar búi raunar fremur fáir Gyðingar?
  9. Hvað heitir vin­sæl sjón­varps­s­ería þar sem eldri karl­maður og ung stúlka eiga í höggi við upp­vakn­inga eða zombía?
  10. Í hvaða sjón­varps­þáttum leikur Natasha Lyonne per­sónu sem sér strax ef ein­hver er að ljúga?
  11. Hvað er eina sam­eig­in­lega starfið sem Hanna Katrín Frið­riks­son, Jóhann Páll Jóhanns­son, Kristrún Frosta­dóttir og Þorbjörg Sigríður Gunn­laugs­dóttir hafa gegnt áður en þau urðu þing­menn?
  12. Nemó-punkt­ur­inn er sá staður á jarð­ríki sem er lengst frá nokk­urri manna­byggð. Hvar er Nemó-punkt­ur­inn: Í Sahara – Síberíu – Suð­ur­skauts­land­inu – Suður-Kyrra­hafi?
  13. Einhver efni­leg­asti fót­bolta­maður heims heitir Lamine Yamal. Fyrir hvað þjóð spilar hann?
  14. Tuttugu þús­und manna borg sem einu sinni hét Godthåb, hvað heitir hún núna?
  15. Brók­ar­jök­ull, Fall­jök­ull, Fjalls­jök­ull og Flóa­jök­ull eru hlutar af stærri jökli, sem nefnd­ist ... hvað?

Svör við mynda­spurn­ingum:
Á fyrri mynd­inni gægist Eif­fel­turn­inn upp úr Aþenu. En hann er vita­skuld í París. Á seinni mynd­inni er Bríet Bjarn­héð­ins­dóttir.
Svör við almennum spurn­ingum:
1. Bítl­arnir.  —  2.  Valencia.  —  3.  Sjö.  —  4.  West Ham.  —  5.  Hunda­teg­undir.  —  6.  Gervi­neglur.  —   7.  Svani (Svana­vatnið).  —  8.  Rúss­lands.  —  9.  The Last of Us.  —  10..  Pocer Face.  —  11.  Þau voru öll blaða­menn.  —  12.  Suður-Kyrra­hafi.  —  13.  Spán­verja.  —  14.  Nuuk á Græn­landi—  15.  Vatna­jök­ull
Kjósa
17
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir (3)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

2
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.
4
Viðskipti

Hagnaður Krón­unnar jókst um 500 millj­ónir en afkoma N1 versn­aði

Krónan hagn­að­ist um 2,6 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins, um hálfum millj­arði meira en á sama tíma í fyrra. Versl­un­ar­keðjan hefur aukið sölu sína og frysti í sept­em­ber verð á 647 vörum í tengslum við bar­átt­una gegn verð­bólgu. Á sama tíma hefur hagn­aður N1 dreg­ist veru­lega saman og heild­ar­hagn­aður móð­ur­fé­lags­ins Festis minnkað.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

1
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár