Spurningaþraut Illuga 16. maí 2025: Úr hvaða bíómynd er þetta? — og 16 aðrar spurningar

Hér geta les­endur spreytt sig á spurn­inga­þraut­inni.

Spurningaþraut Illuga 16. maí 2025: Úr hvaða bíómynd er þetta? — og 16 aðrar spurningar
Fyrri mynda­spurn­ing: Úr hvaða banda­rísku bíó­mynd er þetta?
Seinni mynda­spurn­ing:Hver er konan?

  1. Hvað hét lag Daða og Gagna­magns­ins sem keppti í Eurovision árið 2021?
  2. Í hvaða sæti lenti lagið?
  3. Efna­hvati sem sér um að brjóta niður prótein í maga manns­ins heitir af hreinni til­viljun næstum sama nafni og vin­sæll gos­drykkur. Hvað heitir hvat­inn?
  4. En hvaða frum­efni er táknað með O?
  5. Hver er nýr rektor Háskóla Íslands?
  6. Hvað heitir móð­ur­fé­lag Íslenskrar erfða­grein­ingar?
  7. Hvað heitir kon­ungur Sví­þjóðar?
  8. En hvað heitir vænt­an­legur arf­taki kon­ungs­ins?
  9. Mikhail Gor­bat­sjov, síð­asti leið­togi Sov­ét­ríkj­anna, hóf umbætur sem hann kall­aði glasnost og ... hvað?
  10. Hvað eiga bresku hljóm­sveit­irnar Oasis, Stone Roses, Smiths, 808 State og Simply Red sér­stak­lega sam­eig­in­legt?
  11. Hvaða lið sló Barcelona út í Meist­ara­deild Evrópu í karla­flokki á dög­unum?
  12. Hver söng lagið As It Was árið 2022?
  13. Um hvað sner­ist Maastricht-sátt­mál­inn?
  14. Hvaða Evr­ópu­ríki er land­lukt (hefur ekki landa­mæri að sjó) og á ein­göngu landa­mæri að löndum sem eru líka land­lukt?
  15. Hann fædd­ist árið 1972, lærði stjórn­mála­fræði og sótt­ist um tíma eftir því að verða borg­ar­stjóri í Reykja­vík. Hann dró sig í hlé frá stjórn­málum fyrir 12 árum og tók þá aftur að sér starf sem hann hafði gegnt áður. Hann heitir ... hvað?
Svör við mynda­spurn­ingum:
Fyrri myndin sýnir per­sónur úr mynd­inni Græna mílan, eða Green Mile. Á þeirri seinni er Guðrún Eva rit­höf­undur.
Svör við almennum spurn­ingum:
1.  Ten Years.  —  2.  Fjórða.  —  3.  Pepsín.  —  4.  Súrefni.  —  5.  Silja Bára.  —  6.  Amgen.  —  7.  Karl Gústaf. Númerið þarf ekki að þessu sinni.  —  8.  Viktoría.  —  9.  Per­estrojka.  —  10.  Þær eru frá Manchester.  —  11.  Inter Mílanó.  —  12.  Harry Styles.  —  13. Evr­ópu­sam­bandið.  —  14.  Liechtensen er inni­lokað af Sviss og Aust­ur­ríki.  —  15.  Gísli Marteinn.  
Kjósa
14
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir (4)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

2
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.
4
Viðskipti

Hagnaður Krón­unnar jókst um 500 millj­ónir en afkoma N1 versn­aði

Krónan hagn­að­ist um 2,6 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins, um hálfum millj­arði meira en á sama tíma í fyrra. Versl­un­ar­keðjan hefur aukið sölu sína og frysti í sept­em­ber verð á 647 vörum í tengslum við bar­átt­una gegn verð­bólgu. Á sama tíma hefur hagn­aður N1 dreg­ist veru­lega saman og heild­ar­hagn­aður móð­ur­fé­lags­ins Festis minnkað.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

1
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár