Bandaríkin og Kína ná samkomulagi um tímabundna lækkun tolla

Banda­ríkin og Kína hafa náð samkomu­lagi um að lækka gagnkvæma tolla tíma­bundið og halda áfram viðræðum, sem markar mikilvægt skref í að draga úr viðskipta­deilu sem raskað hefur fjármála­mörkuðum á heimsvísu.

80
80 Donald Trump, for­seti Banda­ríkj­anna, gaf í skyn að 80 pró­senta tollur væri „hæfi­legur“ en sam­þykkti nú víð­tækt skref til að draga úr spennu í við­skiptum. Mynd: AFP

Banda­ríkin og Kína tilkynntu í gærkvöldi að þau hefðu náð samkomu­lagi um að lækka gagnkvæma tolla verulega næstu 90 dagana. Það er liður í að milda viðskipta­deilu ríkjanna sem hefur raskað fjármála­mörkuðum og vakið ótta um samdrátt í heims­búskapnum.

Þetta er niður­staða fyrstu beinu viðræðna ríkjanna frá því að Donald Trump Bandaríkja­forseti hóf tolla­stríð gegn Kína. Samkvæmt sameiginlegri yfir­lýsingu munu tollar sem áður náðu upp í þriggja stafa tölur lækka niður í tvo stafi og áfram­haldandi viðræður standa til boða.

Scott Bessent, fjármála­ráðherra Banda­ríkjanna, lýsti viðræðunum um helgina við kínverska vara­forsætis­ráðherrann He Lifeng og utan­ríkis­viðskipta­ráðgjafann Li Chenggang sem „árangurs­ríkum og yfirgrips­miklum“.

„Það ríkti gagnkvæmt virðingar­samband á milli aðila,“ sagði Bessent við fjölmiðla.

Trump hafði í síðasta mánuði hækkað tolla á innflutningi frá Kína upp í 145 prósent, saman­borið við 10 prósent á önnur ríki í þeirri tolla­herferð sem hann hóf. Kína svaraði …

Kjósa
3
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár