Þessi grein birtist fyrir meira en mánuði.

Tæplega þúsund reykvísk börn búa við fátækt

Á síð­asta ári fengu for­eldr­ar 953 barna í Reykja­vík fjár­hags­að­stoð til fram­færslu. Slík fjár­hags­að­stoð er veitt þeim sem ekki geta séð sér og sín­um far­borða án að­stoð­ar.

Tæplega þúsund reykvísk börn búa við fátækt

Á árinu 2024 fengu alls 528 foreldrar með 953 börn fjárhagsaðstoð til framfærslu frá Reykjavíkurborg en árið 2023 var fjöldi þeirra 637 með 1.115 börn.  Fjölmennasti hópurinn er einstæðar mæður. Af þessu má áætla að tæplega þúsund reykvísk börn, hið minnsta, búi við fátækt.

Þetta kemur fram í gögnum sem lögð voru fram á síðasta fundi velferðarráðs Reykjavíkur þar sem farið var yfir stöðuna á innleiðingu aðgerðaáætlunar gegn sárafátækt barna og fjölskyldna þeirra. Aðgerðaáætlunin var samþykkt árið 2020. 

Eins og sést í meðfylgjandi töflu voru á síðasta ári 288 einstæðar mæður með alls 477 börn á framfæri sem fengu fjárhagsaðstoð frá Reykjavíkurborg til framfærslu, 222 hjón eða sambýlisfólk með alls 455 börn og 18 einstæðir feðir með samtals 21 barn á framfæri. 

Fjárhagsaðstoð til framfærslu eftir fjölskyldugerðÚr minnisblaði sviðsstjóra velferðarsviðs Reykjavíkurborgar til velferðarráðs

Samkvæmt lögum um félagsþjónustu sveitarfélaga er þeim skylt að veita fjárhagsaðstoð til framfærslu einstaklinga og fjölskyldna sem ekki geta séð sér og sínum farborða án aðstoðar. 

Fjárhagsaðstoð til einstaklinga getur verið allt að 247.572 kr. á mánuði. Fjárhagsaðstoð til hjóna eða fólks í sambúð getur verið allt að 396.115 kr. á mánuði. Til viðbótar við grunnfjárhæð skal í hverjum mánuði greidd sérstök fjárhagsaðstoð fyrir hvert barn sem er með lögheimili og á framfæri foreldris sem fær fjárhagsaðstoð til framfærslu. Skal aðstoðin mæta kostnaði vegna dvalar barna í leikskóla í allt að átta tíma og dvalar barna á frístundaheimili, fimm daga í viku, auk greiðslu kostnaðar vegna skólamáltíða og síðdegishressingar. Um þjónustugreiðslur er að ræða sem greiðast til skóla- og frístundasviðs Reykjavíkurborgar.

Í bókun sem fulltrúar Samfylkingar, Pírata og Sósíalistaflokksins lögðu fram á fundinum kemur fram að halda þurfi áfram með vinnu samkvæmt aðgerðaáætlun gegn sárafátækt barna og bregðast við. „Mikil áhersla er lögð á húsnæðisöryggi í samstarfsyfirlýsingu Samfylkingarinnar, Pírata, Sósíalistaflokksins, Vinstri grænna og Flokks fólksins.  Ljóst er að vinna þarf gegn háum húsnæðiskostnaði í aðgerðum gegn fátækt og ójöfnuði og þar þarf meðal annars að stórauka félagslegt húsnæði,“ segir einnig í bókuninni.

Engin skilgreining á fátækt barna

Í svari við fyrirspurn borgarráðsfulltrúa Sósíalistaflokksins árið 2023 um fjölda barna sem búa við fátækt í Reykjavík segir sviðsstjóri velferðarsviðs:  „Velferðarsvið býr ekki yfir upplýsingum um heildarfjölda barna sem búa við fátækt í Reykjavík eða um fjölda barna sem búa á heimilum undir lágtekjumörkum.“

Samkvæmt málaskrá velferðarsviðs var fjöldi barna þeirra foreldra sem fengu fjárhagsaðstoð til framfærslu árið 2022 1353 börn. Á tímabilinu janúar og febrúar 2023 var fjöldinn 667 börn. Á biðlista yfir félagslegt leiguhúsnæði voru alls 649 börn í árslok 2022. Skörun kunni að vera á milli þessara hópa. Leiða megi líkum að því að umrædd börn búi við fátækt sé litið til tekna foreldra.

Þá er í svarinu sömuleiðis vakin athygli á því að á Íslandi er ekki til nein skilgrening á fátækt barna. Fræðimenn hafi fjallað um ýmsar leiðir til að skilgreina barnafátækt en fátækt er hægt að nálgast með ólíkum mælingum. Algengast sé að miða við ákveðinn punkt í tekjudreifingunni sem kallast lágtekjumörk og eru mæling á lífskjörum. Lágtekjumörk byggja á 60% miðgilda ráðstöfunartekna heimila og þá teljast þau sem eru fyrir neðan þessi mörk á tilteknum tímapunkti búa við hættu eða auknar líkur á fátækt. Ekki er því sjálfgefið að þau sem eru undir lágtekjumörkum búi við fátækt eða skort en að hætta sé á því. Þegar talað er um lágtekjuhlutfall er það hlutfall þeirra sem eru undir lágtekjumörkum. Önnur mæling á fátækt er skortur á efnislegum gæðum. Skilgreind eru sjö viðmið og ef fólk telur að þrennt af þeim eigi við er það talið búa við fátækt eða vera í aukinni áhættu. Ef fleiri atriði en þrjú eiga við er talað um að fólk búi við sárafátækt

Samkvæmt skýrslu UNICEF, Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna, bjuggu 12,4% barna á Íslandi við fátækt við árslok 2021, en það voru 10.500 börn. Í skýrslunni, sem birt var 2023, segir að yfirvöld margra ríkra landa hafi sofið á verðinum á góðæristímum. Að í stað þess að uppræta fátækt í efnahagslegri velsæld hafi hún aukist í mörgum efnuðustu ríkjum heims. Í skýrslunni kemur fram að fátækt barna á Íslandi jókst næstmest í ESB-OECD ríkjunum eða um rúm 11% þegar borin voru saman árin 2012-2014 og 2019 -2021. Bretland skar sig þó algjörlega úr því þar hefur fátækt barna aukist um nær 20%. Frakkland, Sviss og Noregur komu rétt á eftir Íslandi.

Kjósa
10
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Helga Óskarsdóttir skrifaði
    Takk fyrir góða grein. Þú ert ein af örfáum góðum blaðamönnum. Og þetta málefni er nokkuð sem öllum kemur við.
    1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Ég var bara glæpamaður“
1
Viðtal

„Ég var bara glæpa­mað­ur“

„Margt af því sem ég hef gert mun ég aldrei geta bætt fyr­ir,“ seg­ir Kristján Hall­dór Jens­son, sem var dæmd­ur fyr­ir al­var­leg­ar lík­ams­árás­ir. Hann var mjög ung­ur að ár­um þeg­ar ljóst var í hvað stefndi og fann ekki leið­ina út fyrr en ára­tug­um síð­ar. Í dag fer hann inn í fang­els­in til þess að hjálpa öðr­um, en það er eina leið­in sem hann sér færa til þess að bæta fyr­ir eig­in brot.
Þakklátur fyrir að vera á lífi
2
Viðtal

Þakk­lát­ur fyr­ir að vera á lífi

Þor­lák­ur Mort­hens, Tolli, hef­ur marga fjör­una sop­ið í lífs­ins ólgu­sjó. Æsku­ár­in höfðu sín áhrif en þá byrj­aði hann að teikna og var ljóst að dreng­ur­inn væri gædd­ur hæfi­leik­um. Óregla og veik­indi lit­uðu fjöl­skyldu­líf­ið og á unglings­ár­un­um sá hann um sig sjálf­ur. Um ára­bil var hann sjómað­ur, verka­mað­ur og skóg­ar­höggs­mað­ur. Eft­ir mynd­list­ar­nám hef­ur hann lif­að af mynd­list­inni. Nú er Tolli far­inn að mála í ljós­ari tón­um. Hann gaf nýra, greind­ist síð­an með krabba­mein og sigr­aði.

Mest lesið í mánuðinum

„Ég var bara glæpamaður“
3
Viðtal

„Ég var bara glæpa­mað­ur“

„Margt af því sem ég hef gert mun ég aldrei geta bætt fyr­ir,“ seg­ir Kristján Hall­dór Jens­son, sem var dæmd­ur fyr­ir al­var­leg­ar lík­ams­árás­ir. Hann var mjög ung­ur að ár­um þeg­ar ljóst var í hvað stefndi og fann ekki leið­ina út fyrr en ára­tug­um síð­ar. Í dag fer hann inn í fang­els­in til þess að hjálpa öðr­um, en það er eina leið­in sem hann sér færa til þess að bæta fyr­ir eig­in brot.
Íslendingar vísa trans konu á flótta frá Bandaríkjunum úr landi
6
Fréttir

Ís­lend­ing­ar vísa trans konu á flótta frá Banda­ríkj­un­um úr landi

Kona sem er á flótta frá Banda­ríkj­un­um með son sinn sótti um al­þjóð­lega vernd á Ís­landi. Fyr­ir Út­lend­inga­stofn­un lýsti hún því hvernig hat­ur hafi far­ið vax­andi þar í landi gagn­vart kon­um eins og henni – trans kon­um – sam­hliða að­gerð­um stjórn­valda gegn trans fólki. Sjálf hafi hún orð­ið fyr­ir að­kasti og ógn­un­um. „Með hverj­um deg­in­um varð þetta verra og óhugn­an­lega.“

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár