Metinn ósakhæfur í manndrápsmáli í Neskaupstað

Alfreð Erling Þórð­ar­son, sem réði hjónum bana í Nes­kaup­stað í ágúst, hefur verið met­inn ósak­hæfur um verkn­að­inn vegna geð­rofs. Hann mun sæta ótíma­bund­inni örygg­is­gæslu á við­eig­andi stofnun.

Metinn ósakhæfur í manndrápsmáli í Neskaupstað

Dómur er fall­inn í máli Norð­firð­ings­ins Alfreðs Erlings Þórð­ar­sonar. Hér­aðs­dómur Aust­ur­lands komst að þeirri nið­ur­stöðu að hann hefði framið tvö­falt mann­dráp í Nes­kaup­stað í ágúst í fyrra en að hann væri ósak­hæfur vegna alvar­legs geð­rofs.

Í dómnum segir að gögn máls­ins sýni fram á að eng­inn annar en sá ákærði hefði getað verið að verki þegar hjónin Rósa G. Bene­dikts­dóttir og Björgvin Ólafur Sveins­son voru svipt lífi á heim­ili sínu þann 21. ágúst. Sannað væri að hann hefði veist að hjón­unum líkt og lýst væri í ákæru. 

Þar segir þó að Alfreð hefði verið í djúpu geð­rofi við verkn­að­inn og ekk­ert hafi bent til þess að hann hefði skipu­lagt að ráða hjón­unum bana.

Alfreð var því tal­inn ósak­hæfur og sýkn­aður af kröfu ákæru­valds­ins um refs­ingu í mál­inu. Honum verður þó gert að sæta örygg­is­vistun á við­eig­andi stofnun til ófyr­ir­séðrar fram­tíðar og verður ekki lát­inn laus nema geð­læknar meti hann hæfan til þess. 

Þá var Alfreð sak­felldur fyrir vopna­laga­brot en hann hafði í för með sér hníf með 15 sm blað­lengd á opin­berum stað án lög­mætrar ástæðu í maí 2024, vorið áður en hann svipti hjónin lífi.

Börn hjón­anna fóru fram á skaða­bóta­kröfu við aðal­með­ferð máls­ins í síð­asta mán­uði. Dæmdi hér­aðs­dómur þeim í vil og Alfreð verður því gert að greiða aðstand­endum sam­tals um 31 milljón króna í miska­bætur. Þá var allur sak­ar­kostn­aður lagður á Alfreð – þar með talin málsvarn­ar­laun lög­manna og kostn­aður vegna rann­sóknar og geð­mats. 

Kjósa
2
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • P
    Piotr skrifaði
    Ég skil ekki hvers vegna manneskja sem er undanþegin refsiábyrgð ætti að bera fulla borgaralega ábyrgð á verknaði sem hann framdi ekki vísvitandi?
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár