Harmleikurinn í Neskaupstað: Sagan öll

Harmleikurinn í Neskaupstað: Sagan öll

Sam­fé­lagið í Nes­kaups­stað reyndi að gera veikum manni sem þar bjó lífið bæri­legra með því að gefa honum mat, föt og fá fyrir hann nauð­syn­lega aðstoð. Hann var nauð­ung­ar­vi­staður í allt að tólf vikur en útskrif­aður fyrir þann tíma. Sem end­aði með skelf­ingu.

Neskaupstað, 21. ágúst 2024

Grann­vax­inn og skeggj­aður maður á fimm­tugs­aldri situr við lítið borð inni á bens­ín­stöð Olís í Nes­kaup­stað klukkan korter yfir sex að kvöldi mið­viku­dags 21. ágúst 2024. Hann er klæddur í jakka og innan undir honum er hann í dökku vesti. Á vinstra auga er hann með gam­alt glóð­ar­auga. 

Maðurinn, sem hefur setið inni á bens­ín­stöð­inni í dágóða stund við kaffi­drykkju, hugar að ein­hverju í hægri vasa sínum. Hann gengur að afgreiðslu­borð­inu, fer rólega um og virð­ist ekki vera að flýta sér. 

Stuttu síðar stendur mað­ur­inn, Alfreð Erling Þórð­ar­son, fyrir utan bens­ín­stöð­ina og reykir sígar­ettu. Hann röltir fram og til baka. Á eft­ir­lits­mynda­vél má sjá planið þar fyrir utan og það glittir í nokkur hús í bænum aðeins fjær. 

Hann fleygir sígar­ett­unni frá sér og gengur ákveðið í burtu frá bens­ín­stöð­inni. Klukkan er gengin tutt­ugu og tvær mín­útur í sjö.

Alfreð Erling gengur í vest­ur­átt eftir Strand­göt­unni, sem liggur með­fram sjónum. Hann gengur fram hjá húsi númer 30. Þar sér hann mág sinn sem er ásamt föður sínum að vinna við húsið og nikkar til hans. Hann gengur lengra vestur. 

Nes­kaup­staður er ílangur bær og þessi hluti Strand­göt­unnar er um 800 metrum frá bens­ín­stöð Olís. Klukkan 18:35 festir eft­ir­lits­mynda­vél, sem stað­sett er við úti­dyr Strand­götu 34, Alfreð Erling á filmu þar sem hann gengur úr austri eftir stétt­inni. Húsið er tví­býli og á vest­ari hlið­inni er heim­ili hjón­anna Björg­vins Ólafs Sveins­sonar, 74 ára, og Rósu G. Bene­dikts­dóttur, 73 ára.

Kjósa
33
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár