Á sunnudaginn í síðustu viku steig Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir á svið í Sjálfstæðissalnum við Austurvöll. Þar talaði hún fyrir stórum hópi fólks og tilkynnti um framboð sitt til formanns Sjálfstæðisflokksins.
Hún er sú eina sem hefur sóst eftir embættinu í aðdraganda landsfundar flokksins í febrúar, en varaformaðurinn Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir hefur tilkynnt að hún muni ekki sækjast eftir því að verða arftaki Bjarna Benediktssonar, sem hefur verið formaður frá árinu 2009.
Á ekki að koma í stað fálkans
Nokkra athygli vakti nýtt merki Áslaugar Örnu sem kynnt var á fundinum. Það er innblásið af fálkanum sem prýðir merki Sjálfstæðisflokksins og var hannað fyrir þessa tilteknu kosningabaráttu. Samkvæmt framboði Áslaugar Örnu var merkið unnið í samstarfi nokkurra aðila.
Þegar hún var spurð út í merkið á sunnudaginn sagði Áslaug Arna í samtali við fréttastofu Vísis og Stöðvar 2 að …
Athugasemdir