Selja aðgang að bílastæðum við Laugardalshöll á 5.990 krónur

Bíla­stæðin næst Laug­ar­dals­höll­inni verða frá­tekin fyrir þau sem eru til­búin að borga hátt í 6 þús­und krónur fyrir að leggja bílum sínum þar á meðan tón­leik­arnir Jóla­gestir Björg­vins fara fram á laug­ar­dags­kvöld. Hluti stæð­anna sem Sena selur aðgang að standa á landi Reykja­vík­ur­borgar við Engjaveg, utan lóð­ar­marka Laug­ar­dals­hall­ar­innar.

Selja aðgang að bílastæðum við Laugardalshöll á 5.990 krónur
Laug­ar­dals­höll Samkvæmt upp­lýs­ingum í borg­ar­vefsjá er hluti bíla­stæð­anna við Laug­ar­dals­höll, sem nú eru boðin til sölu eina kvöld­stund, ekki innan lóð­ar­marka Laug­ar­dals­hall­ar­innar, heldur standa þau á almennu borg­ar­landi.

Þeim sem ætla að sækja jólatón­leika í Laug­ar­dals­höll á laug­ar­dags­kvöld býðst að kaupa sér sér­stakan aðgang að bíla­stæð­unum næst hús­inu af tón­leika­höld­ur­unum, Senu Live. Uppsett verð á hverju bíla­stæði er 5.990 krónur fyrir kvöldið. 

Þetta hefur nokkrum sinnum verið gert við við­burða­hald í hús­inu, til dæmis á tón­leikum Backstreet Boys fyrir nokkrum árum sam­kvæmt svari sem Heim­ild­inni barst frá Senu, en alla jafna eru bíla­stæðin við húsið og raunar Laug­ar­dalnum öllum gjald­frjáls.

Hluti bíla­stæð­anna sem boðin eru til sölu þetta kvöld eru á landi sem til­heyrir ekki lóð Laug­ar­dals­hall­ar­innar, heldur standa þau á landi Reykja­vík­ur­borgar við Engjaveg. 

Þrátt fyrir mikið bíla­stæða­flæmi við íþrótta­mann­virkin á svæð­inu, auk fjölda ókeypis bíla­stæða við Suð­ur­lands­braut og víðar í grennd­inni, skap­ast oft ófremd­ar­á­stand þegar fjöl­sóttir við­burðir standa yfir í Laug­ar­dalnum. Bílum er þá gjarnan lagt ólög­lega á svæð­inu.

Búast má við því að tón­leik­arnir á laug­ar­dag­inn, Jóla­gestir Björg­vins, verði vel sóttir. Þeir eru aug­lýstir sem kveðju­tón­leikar í þess­ari tón­leika­röð, sem hefur verið fastur liður fyrir jólin um langa hríð.

Hafa selt aðgang að stæðum af og til 

Heim­ildin fékk ábend­ingu um bíla­stæða­söl­una frá manni sem blöskr­aði verð­lagn­ingin á stæð­unum og taldi að þarna væri um bæði okur og græðgi að ræða af hálfu Senu.

Samkvæmt svari frá Senu hefur fyr­ir­tækið af og til selt aðgang að bíla­stæðum með svip­uðum hætti, allt frá því að Justin Tim­berlake kom til lands­ins og spil­aði í Kórnum árið 2014. Þetta hafi svo verið gert af og til, nú nýlega í tengslum við tón­leika Backstreet Boys í Laug­ar­dals­höll. 

Í svar­inu frá Senu, sem barst frá Ísleifi Þór­halls­syni fram­kvæmda­stjóra, segir einnig að verið sé að leit­ast við að auka gæði tón­leika­halds­ins og auka þjón­ustu við tón­leika­gesti.

Þar kemur einnig fram að fyr­ir­tæki reikni með að það verði upp­selt í stæðin fyrir tón­leika. 

Málið útskýrt á sérstakri bílastæðasíðu

Á sér­stakri bíla­stæða­síðu tón­leika­hald­ar­ans er fyr­ir­komu­lagið útskýrt. Þar segir að öll þrjú bíla­stæðin sem eru í boði, A-, B- og C-stæði, kosti það sama.

Bíla­stæðiAðgangur að þessum þremur bíla­stæðum kostar 5.990 kr. á laug­ar­dags­kvöld. Stæðin fyrir framan Höllina, A-svæðið, er utan lóð­ar­marka Laug­ar­dals­hallar og því á borg­ar­landi.

Starfs­menn munu hleypa inn á bíla­stæðin og skanna sér­staka miða sem fólk kaupir fyrir stæðin. Engar hömlur verða á fjölda gesta í hvern bíl, sam­kvæmt því sem segir á vef Senu. 

Þar segir jafn­framt að engin ábyrgð sé tekin á bif­reiðum, ein­ungis verði vakt við inn­keyrslur á svæðið til að skanna mið­ana, en bíl­arnir ekki vaktaðir sér­stak­lega í kjöl­farið.

Sér­stak­lega er svo tekið fram að Sena Live hafi „enga stjórn á umferð­inni“ og að miði í bíla­stæði gefi engan for­gang í umferð­inni á leið á tón­leik­ana. „Búast má við því að umferð í kringum Höllina verði þung á tón­leika­degi og það er á ábyrgð gesta að koma sér að stæð­unum í tæka tíð,“ segir á vef Senu. 

Einnig er tekið fram að ekki sé selt inn í stæði fyrir hreyfi­haml­aða við Laug­ar­dals­höll­ina og að þeir sem eru með blátt P-merki geti fengið aðgang að stæð­unum, á meðan plássið leyfir.

Forgangur að bílastæðakaupum fylgdi dýrustu miðunum

Miðarnir á Jóla­gesti Björg­vins kosta frá 9.990 krónum og upp í 29.990 krónur, en það eru þá sér­stakir VIP Gull-miðar, miðar á besta stað í hús­inu, með sér­inn­gangi í Laug­ar­dals­höll­ina og ókeypis drykk á barnum.

Til við­bótar fengu þeir sem keyptu VIP Gull-mið­ana for­gang á að kaupa sér aðgang að bíla­stæð­unum. Uppselt er orðið í flest sæti Laug­ar­dals­hall­ar­innar, sam­kvæmt upp­lýs­ingum á miða­sölu­vefnum Tix. Hins vegar er enn hægt að kaupa aðgang að bíla­stæð­unum, á öll þrjú svæðin.

Félagið Íþrótta- og sýn­inga­höllin hf., sem er í jafnri eigu Reykja­vík­ur­borgar og Samtaka iðn­að­ar­ins, rekur Laug­ar­dals­höll­ina. Blaða­maður hringdi þangað inn og fékk þau svör að fyr­ir­tækið hefði ekki upp­lýs­ingar um bíla­stæða­söl­una. 

Starfs­maður Laug­ar­dals­hall­ar­innar benti því á ýmist tón­leika­hald­ara eða Reykja­vík­ur­borg fyrir frek­ari upp­lýs­ingar. Heim­ildin sendi fyr­ir­spurnir á bæði Senu og Reykja­vík­ur­borg vegna þessa máls.

Fréttin hefur verið upp­færð með svörum sem bár­ust frá Senu Live.

Kjósa
10
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (3)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Sigurður Sigurðsson skrifaði
    Hvert rennur peningurinn?
    0
    • HR
      Hildigunnur Rúnarsdóttir skrifaði
      nú, til tónleikahaldara (Senu). Þau eru bókað ekki að fara að skila neinu af þessu gjaldi til borgarinnar.
      0
  • Hlynur Jörundsson skrifaði
    Selja bílastæði sem þeir eiga ekki ? Ólögmætur gjörningur sem er full ástæða að lögreglan skoði.
    1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

2
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.
4
Viðskipti

Hagnaður Krón­unnar jókst um 500 millj­ónir en afkoma N1 versn­aði

Krónan hagn­að­ist um 2,6 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins, um hálfum millj­arði meira en á sama tíma í fyrra. Versl­un­ar­keðjan hefur aukið sölu sína og frysti í sept­em­ber verð á 647 vörum í tengslum við bar­átt­una gegn verð­bólgu. Á sama tíma hefur hagn­aður N1 dreg­ist veru­lega saman og heild­ar­hagn­aður móð­ur­fé­lags­ins Festis minnkað.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

2
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár