Risar á ferð: Flöskuhálsar kalla á breytingar á vegum
Risastór Vind­myllu­spaði á leið upp á norska heiði í Fosen. Mynd: Statkraft

Risar á ferð: Flöskuhálsar kalla á breytingar á vegum

80 metra langir vind­myllu­spaðar eru lengstu íhlut­irnir sem munu fara um íslenska vega­kerfið ef af bygg­ingu vind­orku­vera verður hér á landi. Þessir for­dæma­lausu þunga­flutn­ingar kalla á styrk­ingar á brúm og vegum, breyt­ingar á vega­mótum og alls konar til­fær­ingar aðrar. Flytja yrði inn sér­staka flutn­inga­bíla til verks­ins og loka vegum fyrir annarri umferð enda ekki dag­legt brauð að aka með fyr­ir­bæri á pari við hæð Hall­gríms­kirkju­turns um þjóð­vegi lands­ins.

Frá Grund­ar­tanga­höfn og upp á Lax­ár­dals­heiði á Vest­ur­landi eru 130 kíló­metrar. Þessa leið hefur Qair Ísland lagt til að ekið verði með íhluti í vind­orku­verið sem fyr­ir­tækið áformar að reisa á jörð­inni Sól­heimum á heið­inni. Qair vill reisa 29 vind­myllur á svæði sem er mikið til óraskað og er í dag fyrst og fremst heima­völlur fjöl­margra fugla­teg­unda sem njóta góðs af nágrenni við vot­lendi, tjarnir og stöðu­vötn. 

Qair Ísland ehf. var stofnað árið 2018 og er alfarið í eigu Frakka. Fyr­ir­tækið er nú með fjölda vind­orku­verk­efna í þróun á Íslandi. Jafn­framt vinnur það að þróun vetnis/ammón­ía­kverk­smiðja, meðal ann­ars í Hval­firði. Fyr­ir­tækið á meiri­hluta í fyr­ir­tæk­inu Arctic Hydro sem hefur byggt og rekur nokkrar litlar og miðl­ungs­stórar vatns­afls­virkj­anir víðs vegar um landið. 

„Kostn­aður vegna flutn­ings og fram­kvæmda tengdum flutn­ingi vegna fram­kvæmda fellur að öllu leyti á fram­kvæmd­ar­að­ila
Vega­gerðin um breyt­ingar á vegum

Vind­orku­ver Qair á Lax­ár­dals­heiði yrði reist í tveimur áföngum. …

Kjósa
29
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (6)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • ÆS
    Ævar Sigdórsson skrifaði
    Hvaða" Spaðar" eru þeir sem eru þarna að verki?
    0
  • Anna Einarsdóttir skrifaði
    Sumar aðrar þjóðir mjöglega neyðast til að nýta vindorku til að koma í veg fyrir orkuskort.
    Við erum svo heppin að eiga næga orku í fallvötnum og það eigum við að nýta. Það er hægt að stækka þær virkjanir sem fyrir eru, laga dreifikerfið og kannski bæta við einni til tveimur vatnsaflsvirkjunum.
    Þessi vindtúrbínuáform eru gjörsamlega galin. Þeir sem ekki sjá það, virðast ekki hafa kynnt sér reynslu nágrannaþjóða okkar ef þessum ferlíkjum - en sú reynsla er vægast sagt ekki góð.

    Ég vil sjá þjóðaratkvæðagreiðslu um þetta risavaxna mál sem mun snerta alla landsmenn, ef af verður.
    6
  • GGJ
    Guðl. Gauti Jónsson skrifaði
    það er skelfilegt hversu stór svæði verða gerð óaðgengileg og ónothæf til útivistar við hvert einasta vindorkuver. Það sem við köllum "ósnert náttúra" skerðist um hundruð og jafnvel þúsundir ferkílómetra við hvert ver.
    4
  • HÓ
    Helga Óskarsdóttir skrifaði
    Takk fyrir þessar upplýsingar. Og hvað svo þegar spaðarnir verða ónýtir? Varla endast þeir endalaust. Þetta er sturlun og á ekki heima í Íslenskri náttúru, frekar ætti þetta heima á skerjum úti í sjó.
    2
  • Birgit Braun skrifaði
    Þetta er frönsk - íslensk megalomennska að mínu mati. Rask á náttúru og breytingar/álag á vegakerfið er eitt, annað er að byggt verður á farfuglasvæði! ..og ekki síst: það muni ekki bara sjást í rísana....það muni heyrast í þeim...rask í allar áttir...
    Og til hvess...hvert á þessi umframorku að fara?? Vantar það ekki í umræðunni? Er næsta stóriðjufyrirtækið í höndum erlendra eigenda á teikniborði??
    5
  • GS
    Gunnar Snaeland skrifaði
    Sleppum þessu bara og förum í hringtengingu
    5
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Vindorka á Íslandi

Hvalfjörðurinn endi ekki sem „ruslahaugur alls konar tilrauna“
SkýringVindorka á Íslandi

Hval­fjörð­ur­inn endi ekki sem „rusla­haugur alls konar til­rauna“

Raf­elds­neyt­is­verk­smiðjur eru sögu­lega orku­frekar. Þær eru líka fyr­ir­ferð­ar­miklar og með tengdum mann­virkjum á borð við bryggjur og virkj­anir yrði rask af þeim mikið. „Má ekki ákveða á ein­hverjum tíma­punkti að nóg sé komið?“ spyr kona í Hval­firði sem myndi sjá 60 metra háan kyndil raf­elds­neyt­is­verk­smiðju á Grund­ar­tanga frá jörð­inni sinni.
„Ég kæri mig ekki um að sveitin mín sé eyðilögð“
ViðtalVindorka á Íslandi

„Ég kæri mig ekki um að sveitin mín sé eyðilögð“

Í sjö ár hefur Steinunn M. Sig­ur­björns­dóttir háð margar orr­ustur í bar­áttu sinni gegn vind­myllum sem til stendur að reisa allt umhverfis sveit­ina hennar. Hún hefur tapað þeim öllum. „Ég er ekki búin að ákveða hvort ég hlekki mig við jarð­ýt­urnar, það fer eftir því hvað ég verð orðin gömul,” segir hún glettn­is­lega. En þó með votti af alvöru. Hún ætli að minnsta kosti ekki að sitja hjá og „horfa á þetta ger­ast”.
Sveitarstjórn Rangárþings ytra ræðst í frumkvæðisathugun á fyrirhuguðu vindorkuveri
FréttirVindorka á Íslandi

Sveit­ar­stjórn Rangár­þings ytra ræðst í frum­kvæð­is­at­hugun á fyr­ir­hug­uðu vind­orku­veri

Byggð­ar­ráð Rangár­þings ytra ákvað í gær að fela sveit­ar­stjóra að leggja mats­spurn­ingar fyrir Lands­virkjun, ýmis ráðu­neyti og stofn­anir sem koma að upp­bygg­ingu vind­orku­vers sem til stendur að byggja í sveit­ar­fé­lag­inu. Eggert Valur Guð­munds­son, odd­viti sveit­ar­stjórnar, segir nauð­syn­legt að fá svör við spurn­ing­unum áður en fram­kvæmda­leyfi fyrir vind­orku­garð­inum er gefið út.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár