Hræðilega sorglegt og rangt

Það vaknar alltaf sorg í brjósti Line Harbak er hún fer upp á bæj­ar­fjallið sitt. Þar sem hún fann áður fyrir frelsi hefur verið reist vind­orku­ver sem nú gnæfir yfir húsið hennar. „Hann var enn heitur,“ segir Line um haf­örn sem fannst eftir að hafa lent í spöð­unum, missti væng­inn og dó. Hún tók hann í fangið og bar heim.

Hræðilega sorglegt og rangt
Sorg Line með haf­örn­inn sem fannst undir einni vind­myll­unni í fang­inu. Hann hafði lent í spöð­unum og misst annan væng­inn. Mynd: Úr einkasafni

Það er bæði hræði­lega sorg­legt og rangt að finna særðan eða dauðan haf­örn í vind­orku­veri, segir kona sem barð­ist lengi gegn því að vind­túrbínur yrðu reistar á fjall­inu ofan við bernsku­heim­ilið en seg­ist hafa orðið að breyta hug­ar­fari sínu eftir að fram­kvæmdin varð að veru­leika. Annars hefði hún ekki getað haldið áfram að búa þar.  

Um 140 hafernir hafa drep­ist í vind­orku­ver­inu á Smøla en það er þó langt í frá eina verið sem byggt hefur verið í eða við þekkt búsvæði hafarna í Noregi. Nokkur þeirra vera sem til­heyra Fosen-vind­orku­keðj­unni, röð 6 vind­orku­vera sem byggð voru á árunum 2019–2020, af félagi sem er í meiri­hluta­eigu rík­is­fyr­ir­tæk­is­ins Statkraft, gera það líka.

Meðal ann­ars það sem reist var á Harbaks-fjall­inu í Þrænda­lögum.

„Við eigum eina af þeim fjórum jörðum sem fjallið stendur á,“ segir blaða­mað­ur­inn Line Harbak við Heim­ild­ina, spurð hvort það sé til­viljun að eft­ir­nafn hennar sé hið sama og nafn fjalls­ins. Hún ólst þar upp, á fjár­búi, og býr þar í dag en starfar í þétt­býl­inu skammt frá. Bærinn hennar stendur á milli hafs og fjalls­ins og í þessu smáa þorpi býla búa um þrjá­tíu manns.

Það eru álíka margar mann­eskjur og vind­myll­urnar sem reistar hafa verið á fjall­inu. Þær gína yfir fólk­inu á bæj­unum fjórum, fólk­inu sem sam­þykkti vissu­lega að þær yrðu byggðar en töldu sig þá sumt ekki eiga ann­arra kosta völ. Að ann­ars hefði landið verið tekið eign­ar­námi. Svo það var skárri kostur að semja.

Lítið gert úr áhrifunum

„Faðir minn heyrði fyrst af hug­myndum um að byggja vind­orku­ver á fjall­inu árið 1997,“ segir Line. Þá var óskað eftir því að fá að setja þar upp vind­mæli­tæki. Line var ung­lingur á þeim tíma og minn­ist þess ekki að hafa heyrt nokkuð um þetta rætt. En mörgum árum síðar, lík­lega í kringum árið 2014, var athygli hennar vakin á áformunum sem þá voru orðin meira en óljós hug­mynd á blaði. Virkj­un­ar­að­il­inn hóf samn­inga­við­ræður um greiðslur við eig­endur jarð­anna sem Harbaks-fjall stendur á, meðal ann­ars við for­eldra Line. Fyrsta til­boð árið 1997 var smán­ar­legt. Örfáir þús­und­kallar á ári. Að lokum náð­ust svo samn­ingar. „En við höfðum ekki gert okkur grein fyrir umfang­inu,“ útskýrir hún, „og hversu miklu þyrfti að raska til að koma vind­túrbín­unum þarna upp.“

Eftir á að hyggja finnst Line að lítið hafi verið gert úr áhrif­unum fyrir fram. Íbúunum var sagt að þeir myndu varla verða varir við vind­orku­verið, það yrði ekki mjög sýni­legt og þar fram eftir göt­unum. Og sumum finnst eins og blekk­ingum hafi verið beitt. 

Í spaðLine með haf­örn­inn sem hún kom að dauðum á Harbaks-fjalli. Hann hafði flogið inn í spaða einnar vind­túrbín­unnar og misst annan væng­inn.

Það var ýmis­legt við áformin sem sló Line illa frá upp­hafi. Hversu stór mann­virkin yrðu var eitt. Hversu mikið rask yrði að eiga sér stað á fjall­inu var annað. Hún velti einnig vöngum yfir því hvort ekki væri verið að ganga frek­lega á rétt­indi Sama, frum­byggja svæð­is­ins, sem hafa lögum sam­kvæmt rétt til að fara með hrein­dýra­hjarðir sínar um þennan hluta Noregs. Þar reynd­ist hún sann­spá því mikil mála­ferli urðu nýverið einmitt vegna þessa í tengslum við önnur ver sem reist voru í Fosen-vind­orku­keðj­unni. Mála­ferla sem enn sér ekki fyrir end­ann á.

En það voru líka aðrar og per­sónu­legri ástæður fyrir því að Line lagð­ist frá upp­hafi gegn bygg­ingu orku­vers­ins. „Þetta fjall hefur alla tíð verið svæði þar sem ég hef upp­lifað mig frjálsa og geta tengst nátt­úr­unni.“ Þær til­finn­ingar sem hún ber til fjalls­ins og nátt­úr­unnar allrar eru eng­inn til­bún­ingur. Heldur raun­veru­legar.

Um nokk­urra ára skeið bjó Line ann­ars staðar í Noregi, meðal ann­ars í höf­uð­borg­inni Osló og í Þránd­heimi. Er hún sneri aftur heim var bygg­ing virkj­un­ar­innar á fjall­inu komin með grænt ljós og þá upp­hófst fyrir alvöru bar­átta hennar gegn henni. Hún fór í við­töl við fjöl­miðla og lýsti áhyggjum sínum. Til að gera langa sögu stutta þá bar sú bar­átta ekki þann árangur sem hún von­að­ist eftir. Vind­orku­verið var byggt og spað­arnir tóku að snú­ast árið 2020. 

„Eftir það þurfti ég að breyta hug­ar­fari mínu,“ segir Line. „Því ef ég gerði það ekki gæti ég ein­fald­lega ekki búið hérna. Þá hefði þetta eyði­lagt líf mitt.“

Rusl og olía

Það hafði tekið veru­lega á hana að fylgj­ast með bygg­ingu vers­ins. Sjá þegar klettarnir sem hún þekkti vel voru sprengdir. Þegar breiðir vegir voru lagðir. Vind­túrbín­unum komið fyrir. „Allt þetta mál hefur breytt miklu í lífi mínu. Ég sagði að ég myndi aldrei fara aftur upp á fjallið. En ég geri það. Ég hleyp þar stundum. Mér finnst þó alltaf að eitt­hvað rangt hafi átt sér stað. Það vaknar alltaf sorg í brjósti mér þegar ég er þarna upp frá. Ég þekki varla þetta svæði. Ég hef meira að segja villst þar, á þessu svæði sem ég hef mörg þús­und sinnum farið um í gegnum árin. Lands­lagið er gjör­breytt.“ 

Á ströndum NoregsMörg vind­orku­ver hafa verið reist í Fosen og nágrenni. Verið á Harbaks-fjalli er nyrst.

Ekki bara vegna vind­túrbín­anna heldur líka vegna veg­anna sem liggja þarna um. Vegir sem áttu að vera fimm metrar á breidd urðu á sumum stöðum fimmtán metra breiðir. Vinnu­svæðið hefur heldur enn ekki verði hreinsað að fullu. Þar má finna plast og búta af vírum, svo dæmi sé tekið.

Fyrir nokkrum miss­erum hóf olía að leka úr einni vind­myll­unni. Um 800 lítrar af dísilolíu láku út í jarð­veg­inn. Enginn hafi áttað sig á bil­un­inni fyrr en nokkrum dögum síðar. Fyr­ir­tækið sagð­ist hafa hreinsað olí­una upp en Line sá olíu­brák lengi liggja yfir svæð­inu. „Og maður fann olíu­lykt­ina.“ Þetta fór illa í bænd­urna enda er vatns­ból þeirra í næsta nágrenni. 

Enn heitur

En það er ekki síst dýra­lífið sem Line hafði áhyggjur af allt frá upp­hafi. „Við höfum alla tíð séð haferni hér nán­ast á hverjum degi,“ segir hún. Það sé því eng­inn vafi á því að allir hefðu mátt vita að háar vind­túrbínur, sem skaga tugi metra upp í loftið á fjall­inu, sem fugl­arnir eru vanir að fljúga yfir, yrðu þeim hættu­legar. 

„Þegar ég fer upp á fjallið að hlaupa þá sé ég þá oft, hafern­ina. Þeir sveima í kringum spað­ana og ég fórna höndum og hrópa til þeirra að passa sig

Enda kom það á dag­inn. Hinn 1. maí árið 2021, um ári eftir að vind­orku­verið á Harbaks-fjalli var tekið í notkun, hafði nágranni Line ekið virkj­ana­veg­ina upp á fjallið ásamt barna­barni sínu. Þau stöðv­uðu bíl­inn við eina vind­myll­una og sáu þá fljót­lega líf­vana haf­örn á jörð­inni. „Hann var enn heitur svo þetta hafði gerst aðeins stuttu áður,“ rifjar Line upp.

Nágrann­inn vissi ekki hvað hann átti að gera annað en að hringja í Line sem hljóp heiman frá sér og á vett­vang. Henni var veru­lega brugðið. Þarna lá hann, þessi stóri fugl, og á hann vant­aði annan væng­inn. Spaðar vind­myll­unnar höfðu hoggið hann af. Line kveikti á mynda­vél­inni á sím­anum og lagði hann frá sér. Mynd­irnar, sem hafa farið víða síðan, sýna Line halda á dauðum hafern­inum í fang­inu. Aug­ljós­lega mjög brugðið. „Svo setti ég hann í bak­pok­ann minn og bar hann heim.“

Bróðir hennar fann annan dauðan haf­örn nokkru síðar. Og vitað er að fleiri hafa flogið í spað­ana. Hins vegar er ekki haldið nákvæmt bók­hald um dauða þeirra við þetta vind­orku­ver líkt og gert hefur verið á Smøla. Line bendir líka á að rán­dýr á borð við refi séu á fjall­inu og þeir séu fljótir að éta fugls­hræ. „Þegar ég fer upp á fjallið að hlaupa þá sé ég þá oft, hafern­ina. Þeir sveima í kringum spað­ana og ég fórna höndum og hrópa til þeirra að passa sig.“

Haf­örn­inn á Harbaks-fjalliLine mynd­aði það þegar hún kom að hafern­inum vorið 2021.

Sundrung samfélaga

Bygging vind­orku­ver­anna í Fosen hefur valdið sundr­ungu í litlum sam­fé­lögum. Sumir geta enn ekki heyrt á þessi mál minnst. Gáfu allt sitt í bar­átt­unni gegn þeim. Aðrir voru jákvæðir í garð ver­anna í byrjun og eru það ýmist enn eða hefur snú­ist hugur. Um það eru líka dæmi. Virkj­an­irnar hafi skilað fjár­munum til sveit­ar­fé­lag­anna, oft lít­illa sveit­ar­fé­laga sem hafa ekki mörg tæki­færi til tekju­öfl­unar. Það hefur einnig spilað inn í afstöðu fólks.

„Sumir spyrja: Hvað er málið? Þetta er bara fjall,“ segir Line um það við­mót sem hún á það til að mæta. Sér­stak­lega áður fyrr. „Aðrir hafa sagt við mig: Það er hvort eð er eng­inn þarna! En í mínum huga er þetta ekki bara fjall. Og það eru vissu­lega ein­hverjir þarna, þótt það séu ekki menn. Þarna eru dýr, heilu vist­kerfin. Náttúra sem við þurfum svo mikið á að halda. Því við stöndum ekki aðeins frammi fyrir lofts­lags­ham­förum heldur ham­förum gegn nátt­úr­unni.“

Enn aðrir hafa svo sagt að með virkj­un­inni hafi aðgengi fólks að Harbaks-fjalli auk­ist til muna. Vegir liggi um það allt og núna geti fleiri notið þess að fara þangað en áður. „En helm­ing árs­ins er ekki hægt að fara þangað því það er hættu­legt vegna ískasts frá spöð­unum,“ segir Line sem hefur séð slíkt ger­ast. „Ég fer til dæmis mun sjaldnar þar upp eftir en ég gerði áður en verið var byggt.“ 

 Blaða­maður Heim­ild­ar­innar hafði sent Line fyr­ir­spurn um við­tal fyrir nokkru og var far­inn að efast um að hún myndi vilja veita það. „Ég var hik­andi við að tala við þig,“ játar Line. „Það tekur á mig and­lega að ræða þetta. Ég hef þurft að ákveða að láta þetta ekki eyði­leggja líf mitt. Ef ég ætla að búa hérna verð ég að lifa með þessu. Ég veit auð­vitað að ekk­ert er svart-hvítt í þessum heimi og ég hef hlustað á þá sem eru fylgj­andi vind­orku­ver­inu. En ég vildi óska að það væri ekki þarna.“

Fjöl­skylda Line fær á hverju ári greitt fyrir afnot vind­orku­fyr­ir­tæk­is­ins af Harbaks-fjalli. Henni finnst það snúið. Rangt jafn­vel. Að vilja ekki verið en taka við pen­ingum vegna þess á sama tíma. „Ein­hverjum finnst ég vera fölsk. Hræsnari. Og stundum finnst mér það sjálfri.“

Stærðin og raskið

Og þótt tugir vind­orku­vera hafi risið í Noregi er Line á því að nær­sam­fé­lögin átti sig oft ekki fyrir fram á hversu umfangs­miklar þessar fram­kvæmdir eru. Hversu miklu þurfi að raska til að byggja þessar virkj­anir. „Og stærðin á þessu,“ heldur hún áfram. „Þegar ég er þarna uppi þá er ég örsmá miðað við þessi mann­virki. Þetta er svo gríð­ar­lega stórt.“

„Ég hef heyrt þessu lýst eins og hljóði frá flug­vél sem taki aldrei á loft
Line um hljóðin frá vind­orku­ver­inu

Almenn­ings­á­litið hefur sveifl­ast nokkuð síð­ustu ár gagn­vart vind­orku­nýt­ingu. Árið 2019 voru um 40 pró­sent Norð­manna fylgj­andi vind­orkunni en á árunum á eftir fækk­aði þeim tölu­vert. Þeim fjölg­aði hins vegar aftur árið 2022 er orku­krísa herj­aði á Evrópu vegna stríðs­ins í Úkraínu og raf­orku­verð í sunn­an­verðum Noregi rauk upp, í þeim hluta lands­ins sem tengdur er orku­kerfi álf­unnar. En almennt telur Line færri styðja vind­orku­ver nú en áður en farið var að byggja þau.

Stöðugur hvinur

Fjallið verður aldrei eins aftur þótt vind­myll­urnar verði ein­hvern tím­ann í fram­tíð­inni teknar niður. Að vind­orku­ver séu aft­ur­kræfar fram­kvæmdir stenst ekki skoðun, að mati Line. Að minnsta kosti ekki þar sem gíf­ur­legt rask þurfi til bygg­ing­ar­innar. 

Line getur ekki staðið fyrir utan húsið sitt án þess að sjá vind­myll­urnar, vind­túrbín­urnar eins og hún kallar þær, á Harbaks-fjalli. En henni finnst sjón­rænu áhrifin ekki vera stærsta vanda­málið þegar vind­orku­ver séu ann­ars vegar. Þau gefi líka frá sér hljóð sem heyr­ist mis­mikið eftir því hver vind­áttin sé. Þetta er stöðugt hljóð, hvinur, eins konar lágur titr­ingur, sem fólk finnur og heyrir inni í hús­unum fyrir neðan fjallið. Þetta truflar fólk mis­mikið. „Ég hef heyrt þessu lýst eins og hljóði frá flug­vél sem taki aldrei á loft.“ 

Þá skapi stöð­ugur snún­ingur spað­anna skuggaflökt sem fari, líkt og hljóðið, misilla í fólk.

„Þetta er ekki bara fjallið mitt,“ segir Line þegar hún reynir að útskýra þau ósýni­legu áhrif sem hún telur rask vegna vind­orku­vers­ins valda. „Og þetta snýst heldur ekki bara um fjallið mitt. Náttúran er okkar allra og ekki síst alls þess sem í henni býr. Líka þess sem við vitum ekki að býr þar. Svo við vitum ekki hverju við höfum tapað. Hvaða áhrif það hefur á fólk að tapa nátt­úru. Því fylgir raun­veru­legur harmur. Mér fannst ég hafa tapað hluta af sjálfri mér.“  

Kjósa
50
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • ÓS
    Ólöf Sverrisdóttir skrifaði
    Getum við ekki einu sinni lært af mistökum annara þjóða? Mikið vildi ég að við hættum við öll áform um vindmyllur..
    9
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Vindorka á Íslandi

Hvalfjörðurinn endi ekki sem „ruslahaugur alls konar tilrauna“
SkýringVindorka á Íslandi

Hval­fjörð­ur­inn endi ekki sem „rusla­haugur alls konar til­rauna“

Raf­elds­neyt­is­verk­smiðjur eru sögu­lega orku­frekar. Þær eru líka fyr­ir­ferð­ar­miklar og með tengdum mann­virkjum á borð við bryggjur og virkj­anir yrði rask af þeim mikið. „Má ekki ákveða á ein­hverjum tíma­punkti að nóg sé komið?“ spyr kona í Hval­firði sem myndi sjá 60 metra háan kyndil raf­elds­neyt­is­verk­smiðju á Grund­ar­tanga frá jörð­inni sinni.
Risar á ferð: Flöskuhálsar kalla á breytingar á vegum
SkýringVindorka á Íslandi

Risar á ferð: Flösku­hálsar kalla á breyt­ingar á vegum

80 metra langir vind­myllu­spaðar eru lengstu íhlut­irnir sem munu fara um íslenska vega­kerfið ef af bygg­ingu vind­orku­vera verður hér á landi. Þessir for­dæma­lausu þunga­flutn­ingar kalla á styrk­ingar á brúm og vegum, breyt­ingar á vega­mótum og alls konar til­fær­ingar aðrar. Flytja yrði inn sér­staka flutn­inga­bíla til verks­ins og loka vegum fyrir annarri umferð enda ekki dag­legt brauð að aka með fyr­ir­bæri á pari við hæð Hall­gríms­kirkju­turns um þjóð­vegi lands­ins.
„Ég kæri mig ekki um að sveitin mín sé eyðilögð“
ViðtalVindorka á Íslandi

„Ég kæri mig ekki um að sveitin mín sé eyðilögð“

Í sjö ár hefur Steinunn M. Sig­ur­björns­dóttir háð margar orr­ustur í bar­áttu sinni gegn vind­myllum sem til stendur að reisa allt umhverfis sveit­ina hennar. Hún hefur tapað þeim öllum. „Ég er ekki búin að ákveða hvort ég hlekki mig við jarð­ýt­urnar, það fer eftir því hvað ég verð orðin gömul,” segir hún glettn­is­lega. En þó með votti af alvöru. Hún ætli að minnsta kosti ekki að sitja hjá og „horfa á þetta ger­ast”.
Sveitarstjórn Rangárþings ytra ræðst í frumkvæðisathugun á fyrirhuguðu vindorkuveri
FréttirVindorka á Íslandi

Sveit­ar­stjórn Rangár­þings ytra ræðst í frum­kvæð­is­at­hugun á fyr­ir­hug­uðu vind­orku­veri

Byggð­ar­ráð Rangár­þings ytra ákvað í gær að fela sveit­ar­stjóra að leggja mats­spurn­ingar fyrir Lands­virkjun, ýmis ráðu­neyti og stofn­anir sem koma að upp­bygg­ingu vind­orku­vers sem til stendur að byggja í sveit­ar­fé­lag­inu. Eggert Valur Guð­munds­son, odd­viti sveit­ar­stjórnar, segir nauð­syn­legt að fá svör við spurn­ing­unum áður en fram­kvæmda­leyfi fyrir vind­orku­garð­inum er gefið út.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár