„Ég kæri mig ekki um að sveitin mín sé eyðilögð“
Heima Steinunn M. Sig­ur­björns­dóttir við húsið sitt á jörð­inni Víg­holts­stöðum sem hún ólst upp á. Hún horfir út á Hvamms­fjörð­inn en snýr baki í heið­ina þar sem Storm orka áformar að reisa vind­orku­ver. Annað ver er svo áformað eilítið sunnar. Og enn eitt tölu­vert norðar. Mynd: Golli

„Ég kæri mig ekki um að sveitin mín sé eyðilögð“

Í sjö ár hefur Steinunn M. Sig­ur­björns­dóttir háð margar orr­ustur í bar­áttu sinni gegn vind­myllum sem til stendur að reisa allt umhverfis sveit­ina hennar. Hún hefur tapað þeim öllum. „Ég er ekki búin að ákveða hvort ég hlekki mig við jarð­ýt­urnar, það fer eftir því hvað ég verð orðin gömul,” segir hún glettn­is­lega. En þó með votti af alvöru. Hún ætli að minnsta kosti ekki að sitja hjá og „horfa á þetta ger­ast”.

Á túnum jarð­ar­innar Víg­holts­staða í Dölum hafa tré víða tekið við af sauðfé á beit. Þar hefur skóg­rækt verið stunduð frá alda­mótum og nú, ald­ar­fjórð­ungi síðar, er sums staðar orðið ágætt skjól fyrir norð­an­átt­inni. Á þessum slóðum er nokkuð flat­lent og því víð­sýnt til allra átta. Alla leið til Ljósu­fjalla á Snæ­fells­nesi í suð­vestri. Þau hafa tekið að skjálfa síð­ustu miss­eri. Minnt á að eld­stöðin sé enn virk og að á henni beri að hafa gætur.    

En það er þó í þver­öf­uga átt sem fjöl­skyldan á Víg­holts­stöðum hefur þurft að beina athygli sinni síð­ustu ár. Athygli og áhyggjum. Þau hafa horft til heið­ar­innar í norð­austri, þaðan sem kaldir vindar alla leið frá Norður-Íshafinu blása, þeir hinir sömu og þau hafa reynt að verj­ast með trjá­gróðri.

Það er þessi vindur, þessi oft og tíðum jök­ul­kaldi vindur, sem varð skyndi­lega fyrir nokkrum árum fyr­ir­ferð­ar­meiri en nokkru sinni í lífi fjöl­skyld­unnar. …

Kjósa
78
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (3)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Sveinn Ingólfsson skrifaði
    Vindmyllukallarnir eru eins og minkir í hæsnakofa. Vilja eyðileggja landið til að græða peninga og er alveg sama hvað þeir eyðileggja mikið bara ef þeir geta fengið sem mest í eigin vasa.
    4
  • Kristbjörn Árnason skrifaði
    Þessar hugmyndir um raforkuver eru ekki hugsaðar til að leggja íslendingum til raforku. Hugmyndin er örugglega útflutningur sem líklega myndi hækka raforkuverð til íslendinga.
    4
  • Einar Skúli Hjartarson skrifaði
    það þarf að setja upp bannmerki þar sem von er á Tryggva Þór þar eru skemmdarverk í uppsiglingu.
    8
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Vindorka á Íslandi

23 mín.
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.
SkýringVindorka á Íslandi

Hval­fjörð­ur­inn endi ekki sem „rusla­haugur alls konar til­rauna“

Raf­elds­neyt­is­verk­smiðjur eru sögu­lega orku­frekar. Þær eru líka fyr­ir­ferð­ar­miklar og með tengdum mann­virkjum á borð við bryggjur og virkj­anir yrði rask af þeim mikið. „Má ekki ákveða á ein­hverjum tíma­punkti að nóg sé komið?“ spyr kona í Hval­firði sem myndi sjá 60 metra háan kyndil raf­elds­neyt­is­verk­smiðju á Grund­ar­tanga frá jörð­inni sinni.

15 mín. lestur

Mest lesið undanfarið ár