Mynd: Heimildin

Hvort, hvar og hver á að byggja vindorkuver?

Á að reisa vind­orkuver á Íslandi? Af hverju? Af hverju ekki? Hvar á að byggja þau, hver á að gera það og til hvers? Augljós skoðana­munur er milli stjórn­málaflokka í vind­orkumálum en sameiginleg stef eru þó til staðar. Flestir vilja til dæmis að farið verði varlega í slíka uppbyggingu, meðal annars í ljósi sérstöðu íslenskrar náttúru.

Samfylkingin segir mikilvægt að vindorku­kostir verði á hendi opinberra fyrir­tækja í eigu almennings, á meðan ekki hefur verið mótuð stefna og lagarammi um nýtinguna. Þá vill flokkurinn að megin­hluti raforku­framleiðslu á Íslandi verði áfram á hendi ríkis og sveitar­félaga og að vind­orkuver verði byggð í grennd við vatnsafls­virkjanir. 

Viðreisn styður nýtingu vindorku og að hæf orku­fyrirtæki, í opinberri eða einkaeigu, fái að reisa vind­orkuver. Tryggja þurfi sanngjörn auðlinda­gjöld af nýtingu vindorku og að gjald­takan renni að hluta til nærsamfélagsins.

Sósíalista­flokki Íslands þykja þau stór­felldu vindmyllu­áform sem nú eru í kortunum fara langt fram úr allri skynsemi. Flokkurinn vill leyfa náttúru landsins og almenningi að njóta vafans á meðan enn hafi ekki verið fundin lausn á því hvernig nýta megi vindorku á þann máta að ekki þurfi að koma til náttúru­spjöll og yfir­gangur stór­fyrirtækja.

Framsóknar­flokkurinn vill að farið verði hægt í uppbyggingu vind­orkuvera og að lögð verði áhersla á vönduð skref á afar afmörkuðum stöðum. Áhrif vind­orkuvera á náttúruna séu töluvert frábrugðin þeim áhrifum annarra virkjana. Því sé það mikilvægt náttúruverndarmál að uppbygging slíkra orkuvera fari fram af varfærni.

Píratar tala sömuleiðis fyrir varfærnum skrefum þannig að nýir orku­kostir séu ekki þróaðir á kostnað umhverfis og náttúru. Þá segist flokkurinn hafa efasemdir um þær forsendur sem liggja fyrir í áætlunum um að byggja upp vind­orkuver hér á landi eins og staðan sé núna. 

Vinstri græn telja að rannsaka þurfi nánar afleiðingar orku­öflunar með vindi og kynna fyrir almenningi áður en teknar verði óafturkræfar ákvarðanir. Þá hugnast flokknum ekki að erlendir aðilar fái að nýta vind til raforku­framleiðslu í hagnaðar­skyni.

Sjálfstæðis­flokkurinn styður hvers konar græna orkuöflun, hvort sem það er virkjun fallvatna, jarðhita, vinds, birtu, sjávar­falla eða annað svo lengi sem gætt sé jafnvægis milli nýtingar og verndar nátt­úrunnar. Flokkurinn styður að æskilegt sé að vind­orkuver byggist upp á afmörkuðum svæðum nærri tengi­virkjum og flutnings­línum.

Flokkur fólksins vill helst engin vind­orkuver og að tryggt verði að erlendir fjár­festar geti aldrei eignast orkuna okkar. 

Heimildin spurði flokka sem bjóða fram til Alþingis um stefnu þeirra í vind­orkumálum. Spurt var:

Á að byggja vind­orkuver á Íslandi?

Ef já, hvar á að byggja þau og hver á að byggja þau?

Ef nei, af hverju ekki?

Telur flokkurinn að setja þurfi stefnu um í hvað orkan eigi að fara?

Hér að neðan fara svör hvers flokks fyrir sig. Miðflokkurinn skilaði ekki svörum.

Flokkur fólksins

Á að byggja vind­orkuver á Íslandi?

Nei.

„Við viljum fyrst og fremst tryggja orku til heim­il­anna“

Það er hins vegar þegar búið að gefa leyfi fyrir byggingu eins vind­orkuvers á Íslandi, Búrfells­lundi. Flokkur fólksins vill fá 100 prósent reynslu á það orkuver, ef og þegar af því verður, áður en farið verður að líta lengra. Þá vill flokkurinn tryggja að erlendir fjár­festar geti aldrei komið hingað og eignast orkuna okkar.

Flokkur fólksins vill fyrst og fremst tryggja orku til heimil­anna. 

Framsóknarflokkurinn

Á að byggja vind­orkuver á Íslandi?

Vindorka er ný auðlind sem Ísland getur nýtt bæði á hafi og landi. Um þessar mundir eru tugir vind­orkuvera af ýmsum stærðum og gerðum í undir­búningi, og fjöldi þeirra gæti aukist verulega víðs vegar um landið samkvæmt núverandi reglu­verki. Eins og staðan er þá er er svo mikill fjöldi vind­orkuvera til skoðunar í kerfinu og er samanlagt uppsett afl þeirra meira en núverandi stærð íslenska orku­kerfisins.

„Það er mik­il­vægt að ábati af vind­orku­nýt­ingu sé skýr og skili sér beint til sam­fé­lags­ins, í sam­ræmi við stefnu okkar um sjálf­bæra nýt­ingu auð­linda“

Framsókn vill snúa frá þeirri þróun og að farið verði hægar í uppbyggingu vindorku og að lögð verði áhersla á vönduð skref á afar afmörkuðum stöðum. Með þessu viljum við draga úr ágreiningi, tryggja vernd nátt­úrunnar og hámarka hagkvæmni verkefna í samræmi við markmið stjórn­valda. Nú þegar hafa tvö vind­orkuver verið samþykkt – Búrfells­lundur og Blöndu­lundur – og mikilvæg lærdómsrík reynsla mun fást af þessum verkefnum sem hægt er að byggja á við frekari uppbyggingu. Þessi reynsla getur verið grunnur að frekari þróun, í anda þess sem gert var í fyrri uppbyggingu raforku­kerfisins, sem gert var í skrefum og þekking efldist um leið. Mögulega er einnig hægt að meta fá hagkvæm verkefni til viðbótar sem hafa lágmarks­áhrif á umhverfið en stuðla að auknu orku­öryggi á mismun­andi svæðum landsins. Það er mikilvægt að ábati af vind­orkunýtingu sé skýr og skili sér beint til samfélagsins, í samræmi við stefnu okkar um sjálfbæra nýtingu auðlinda.

Auk þess er mikil þörf á heild­stæðu reglu­verki fyrir vindorku á hafi. Þar þarf að móta fram­tíðarsýn og skilgreina möguleg hafsvæði fyrir útboð og nýtingu, í stað þess að bregðast einungis við einstaka beiðnum frá einka­aðilum sem þegar hafa lýst yfir áhuga á nýtingu hafsvæða. Vind­orkuver hafa áhrif á náttúruna sem eru töluvert frábrugðin þeim áhrifum sem vatnsafl og jarðhiti hafa. Því er það mikilvægt náttúruverndarmál að uppbygging vind­orkuvera fari fram af varfærni og með vandaðri útfærslu til að tryggja að þessi nýja auðlind verði nýtt á sjálf­bæran og ábyrgan hátt í þágu samfélagsins.

Ef já, hvar á að byggja þau og hver á að byggja þau?

Framsókn telur mikilvægt að uppbygging vindorku á Íslandi fari fram með yfir­veguðum og varfærnum hætti, þar sem tekið er eitt skref í einu og svæðin afmörkuð vandlega. Upphafs­skrefin ætti að miða við þau verkefni sem þegar hafa verið samþykkt í ramma­áætlun. Framsókn telur að opinbert eignar­hald sé almennt fýsilegri leið í þessum efnum þar sem slíkt eignar­hald tryggir að ábati verkefna renni til samfélagsins. Mikilvægt er að bæði nærsamfélagið og ríkið njóti góðs af nýtingu þessarar auðlindar, enda styður slíkt við langtíma markmið um sjálfbæra þróun og aukið orku­öryggi.

Telur flokkurinn að setja þurfi stefnu um í hvað orkan eigi að fara?

Framsókn leggur mikla áherslu á að skýr stefna verði mótuð um nýtingu orku­auðlinda, þar sem markmiðið er að orkan verði fyrst og fremst nýtt til að mæta innlendri orkuþörf. Það er forgangsmál að styðja orku­skipti innanlands og skapa fjöl­breyttari atvinnu­starfsemi um allt land sem skilar samfélags­legum ávinningi. Með þessu tryggjum við að orkan stuðli að sjálf­bærum hagvexti og lífsgæðum fyrir landsmenn, ásamt því að styrkja innviði sem stuðla að aukinni sjálfbærni og orku­öryggi á Íslandi. Í allri vinnu skal gæta að lágmarka umhverfis­áhrif og hlú að náttúru landsins sem einnig er verðmæt auðlind.

Píratar

Á að byggja vind­orkuver á Íslandi?

Píratar hafa sett spurningar­merki við þann mikla þrýsting sem ríkis­stjórnin hefur sett á aukna orku­vinnslu, sem virðist oft notaður til að breiða yfir það aðgerða­leysi sem ríkt hefur í loftslags­málum á kjör­tímabilinu. Við tölum fyrir varfærnum skrefum þannig að nýir orku­kostir séu ekki þróaðir á kostnað umhverfis og náttúru. Það hefur verið kostulegt að fylgjast með umræðu um orkumál á undan­förnum árum, þar sem ríkis­stjórnin hefur verið leiðandi í áróðri um meintan orkuskort í landi sem fram­leiðir meiri raforku miðað við höfðatölu en nokkurt annað ríki. Á sama tíma hefur skort regluverk til að tryggja að ný orka fari í orku­skipti og standa vörð um stöðu almennings á raforku­markaði.

„Þarna er um að ræða fjár­festa með stórar hug­myndir um vind­orku­ver sem tengj­ast síðan enn stærri hug­myndum um raf­elds­neyt­is­fram­leiðslu til útflutn­ings“

Áður en orku­skipti eru notuð sem réttlæting fyrir nýrri orku­vinnslu þarf að gera skýra áætlun um samdrátt í losun gróðurhúsa­lofttegunda, sem ríkis­stjórnin hefur ekki gert. Þá þarf raunhæfa áætlun um orkuþörf til framtíðar, þar sem meðal annars er horft til þess að draga úr vægi stór­iðjunnar sem í dag notar bróður­hluta þeirrar raforku sem er framleidd. Ef niður­staðan af þessu verður að auka þurfi orku­framleiðslu þá þarf að gæta þess við þróun vindorku að settur sé skýr lagarammi þar sem tryggt sé að saman fari hagsmunir almennings, náttúru og nærsamfélags. 

Ef nei, af hverju ekki?

Píratar hafa efasemdir um þær forsendur sem liggja fyrir í áætlunum um að byggja upp vind­orkuver hér á landi eins og staðan er núna. Vindorkan hefur farið fram á öðrum forsendum en orku­vinnsla fyrri tíma, þar sem einka­aðilar eru drif­krafturinn í framkvæmdum. Þarna er um að ræða fjárfesta með stórar hugmyndir um vind­orkuver sem tengjast síðan enn stærri hugmyndum um rafeldsneytis­framleiðslu til útflutnings. Þær áætlanir virðast hins vegar almennt gera ráð fyrir því að hið opinbera sé í raun bakhjarl, hvort sem er með því að Lands­virkjun sé skikkuð til að tryggja jöfnunarafl, eins og lagt er til í stjórnar­frumvarpi um vind­orkuna, eða með því að byggðir séu upp innviðir sem eru nauðsyn­legir til að koma verk­efnunum á koppinn, eins og með því að styrkja þjóðvegi til að bera gríðar­stóra flutninga­bíla á framkvæmda­tíma eða flutnings­kerfi til að hægt sé að koma orkunni á kerfið.

Ef já, hvar á að byggja þau og hver á að byggja þau?

Píratar vilja tryggja varúðar­sjónarmið svo nýir orku­kostir séu ekki þróaðir á kostnað umhverfis og náttúru. Vindorka krefst þess að settur sé skýr lagarammi þar sem tryggt sé að saman fari hagsmunir almennings, náttúru og nærsamfélags. 

Telur flokkurinn að setja þurfi stefnu um í hvað orkan eigi að fara?

Pírötum þykir mikilvægt að gera raunhæfa áætlun um orkuþörf til framtíðar, þar sem meðal annars er horft til að draga úr vægi mengandi stóriðju í raforku­kerfinu. Það þarf að tryggja að orku­vinnsla gangi til orku­skipta og að orka sé nýtt til uppbyggingar grænnar nýsköpunar – en frum­forsenda fyrir slíkri forgangs­röðun er að setja skýra stefnu um samdrátt í losun gróðurhúsa­lofttegunda. Við viljum standa með almenningi og smærri notendum þannig að þeim sé tryggt aðgengi að áreiðanlegri endurnýjanlegri orku á viðráðanlegu verði og að fólk sitji við sama borð hvar sem er á landinu.

Samfylkingin

Á að byggja vind­orkuver á Íslandi? 

Sjónarmið náttúru­verndar og kröfur um aðra land­nýtingu en til hefð­bundinnar orku­vinnslu gera að verkum að eðlilegt er horfa til nýrra orkugjafa við mótun stefnu um orkuöflun næstu áratugi. Þar er um að ræða vindorku, sólarorku og sjávarfalla­orku. Samfylkingin er reiðubúin til samstarfs um nýtingu allra þessara orkugjafa, að því gefnu að starfsemin lúti reglum um umgengni við náttúru, skipulag og framlag auðlindarentu til þjóðarinnar. Sólar- og sjávar­orka eru spennandi orku­kostir sem nú þegar þarf að kanna hvort og hvernig henta hérlendis. Vindorka er á hinn bóginn þegar orðinn raunhæfur kostur sem þarf að leggja grunn að með laga­setningu og skipulags­vinnu.

„Það er rétt­læt­is­mál að orku­fyr­ir­tæki greiði fyrir aðgang að auð­lindum og að hluti af tekjum renni til nær­sam­fé­lags“

Ef já, hvar á að byggja þau og hver á að byggja þau?

Hvers kyns ákvarðanir um orku­vinnslu, þar með talið hvar byggja eigi vind­orkuver, eiga að byggjast á heild­stæðu hagsmuna­mati þar sem tekið er tillit til verndar­gildis náttúru og menningar­sögulegra minja og til hagkvæmni ólíkra nýtingar­kosta með sjálfbæra þróun að leiðar­ljósi. Með ramma­áætlun, sem lögfest var í stjórnartíð Samfylkingarinnar, voru skapaðar leik­reglur um þetta. Þau lög og annað regluverk þarf að bæta með langtíma­sjónarmið og rétt komandi kynslóða í huga.

Samfylkingin tók þátt í afgreiðslu 3. áfanga ramma­áætlunar vorið 2022 á Alþingi. Flokkurinn studdi tvo vindorku­kosti í þeirri áætlun, við Búrfell og Blöndu. Forsendur þess voru þrenns konar. Í fyrsta lagi er mikilvægt að vindorku­kostir séu á hendi opinberra fyrir­tækja í eigu almennings, á meðan ekki hefur verið mótuð stefna og lagarammi um nýtingu vindorku, í þessu tilviki Lands­virkjunar, þannig að þróun verk­efnanna sé á hendi stærstu og reynslumestu fyrir­tækjanna. Í öðru lagi er mjög mikilvægt að við þróun nýtingar vindorku sé hugað að því að vind­orkuver séu staðsett nálægt vatnsafls­virkjunum. Þannig nýtist orkan langbest og mestar líkur til þess að vind­orkuver sé sett niður þar sem þegar hefur verið framkvæmt vegna virkjana, þ.e. ekki á óröskuðu landi. Í þriðja lagi  þá styður Samfylkingin eindregið að allir orku­kostir hér á landi fari til faglegrar skoðunar og röðunar á vettvangi ramma­áætlunar. Samfylkingin vill að megin­hluti raforku­framleiðslu á Íslandi verði áfram á hendi ríkis og sveitar­félaga og leggst gegn hvers kyns hugmyndum um einka­væðingu eða uppskiptingu Lands­virkjunar.

Telur flokkurinn að setja þurfi stefnu um í hvað orkan eigi að fara?

Já, Samfylkingin telur nauðsynlegt að setja í lög ákvæði um að almenningur og almenn fyrirtæki hafi aðgang að forgangs­orku frá orku­veitum. Einnig er eðlilegt að sett verði þak á arðsemi raforku­sölu til heimila, á sama hátt og um sölu heits og kalds vatns. Það er réttlætismál að orku­fyrirtæki greiði fyrir aðgang að auðlindum og að hluti af tekjum renni til nærsamfélags vegna stað­bundinna áhrifa af nýtingunni, óháð eignar­haldi og hvort sem orku­vinnslan nýtir vatnsafl, jarðvarma, vind eða aðra orkugjafa.

Sjálfstæðisflokkurinn

Á að byggja vind­orkuver á Íslandi?

Sjálfstæðis­flokkurinn leggur áherslu á að Ísland stefni að fullum orku­skiptum og orku­sjálfstæði. Það verður aðeins gert með því að hætta notkun innflutts jarðefna­eldsneytis og nýta í staðinn innlenda græna orku sem unnin er með sjálf­bærum og ábyrgum hætti. Tryggja þarf að þau orku­skipti dragi ekki úr samkeppnis­hæfni íslenskra fyrir­tækja og að lágt orkuverð til heimila verði áfram tryggt. 

„Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn styður atvinnu­frelsi og dæmir því ekki um hverjir mega eða mega ekki byggja upp virkj­un­ar­kosti á Íslandi“

Hlutverk stjórn­valda er að skapa það umhverfi að hægt sé að ná settum markmiðum m.a. varðandi orku­skipti. Í því samhengi er ljóst að afla þarf grænnar orku svo hægt sé að skipta út jarðefna­eldsneyti fyrir græna orkugjafa. Sjálfstæðis­flokkurinn styður hvers konar græna orkuöflun, hvort sem það er virkjun fallvatna, jarðhita, vinds, birtu, sjávar­falla eða annað svo lengi sem gætt er að jafnvægis milli nýtingar og verndar nátt­úrunnar.

Ef já, hvar á að byggja þau og hver á að byggja þau?

Ramma­áætlun er það fyrir­komulag sem notað er til að ákveða hvar má byggja orkuver og á það einnig við um vindorku. Það fyrir­komulag er í endur­skoðun og niður­staða þeirrar vinnu er væntanleg. Ráðherra Sjálfstæðis­flokksins hefur lagt fram tillögu til þings­ályktunar um stefnu um uppbyggingu vindorku á Íslandi sem og laga­frumvarp þar sem settar eru fram megin­forsendur uppbyggingar virkjunar­kosta í vindorku. Frum­varpið gerir ráð fyrir því að virkjana­kostir sem uppfylla skilyrði þings­ályktunar­tillögunnar geti farið í flýti­meðferð en þó þannig að sveitar­félög ákveði hvort viðkomandi kostur verði samþykktur.

Í þings­ályktunar­tillögunni er lagt til að uppbygging vindorku­kosta verði óheimil á frið­lýstum svæðum á A-hluta náttúru­minjaskrár, svæðum á B-hluta náttúru­minjaskrár, svæðum innan marka frið­helgunar menningar­minja, á svæðum á heims­minjaskrá UNESCO, Ramsar-svæðum, á viðkvæmum fugla­svæðum og svæðum innan marka miðhálendis­línu. Þing­flokkur Sjálfstæðis­flokksins samþykkti að tillagan gengi með þessum hætti til Alþingis.

Sjálfstæðis­flokkurinn styður að æskilegt sé að vind­orkuver byggist upp á afmörkuðum svæðum nærri tengi­virkjum og flutnings­línum þar sem unnt verði að tryggja afhendingar­öryggi og lágmarka umhverfis­áhrif.

Sjálfstæðis­flokkurinn styður atvinnu­frelsi og dæmir því ekki um hverjir mega eða mega ekki byggja upp virkjunar­kosti á Íslandi enda vandséð hvernig það samrýmist stjórnar­skrá lýðveldisins að banna einhverjum að taka þátt í virkjunar­framkvæmdum. Sjálfstæðis­flokkurinn hefur ekki í hyggju að selja Lands­virkjun hvorki að hluta né að fullu.

Telur flokkurinn að setja þurfi stefnu um í hvað orkan eigi að fara?

Sjálfstæðis­flokkurinn telur nauðsynlegt að ríkið setji skýra eigenda­stefnu gagnvart orku­fyrirtækjum og raforku­flutnings­fyrirtækjum í eigu ríkisins sem tryggi m.a. að þau styðji stjórn­völd í að ná markmiðum sínum í loftslags­málum. Stjórn­völd þurfa að skilgreina ábyrgð á því að tryggja fullnægjandi framboð raforku til heimila og annarra almennra notenda og tryggja jafnframt orku­öryggi landsins. Jafnframt er hagsmunum Íslands best borgið með því að byggja upp grænt atvinnulíf í tengslum við orku­skipti hér á landi og tengjast ekki raforku­kerfi annarra ríkja. Sjálfstæðis­flokkurinn stendur heilshugar á bak við hugmyndir um atvinnu­uppbyggingu innanlands á grunni hagkvæmrar nýtingar orku­auðlinda.

Sósíalistaflokkur Íslands

Vind­myllur eru hluti af tækni­lausnum til orku­öflunar í heims­byggðinni til að losna undan ofurvaldi jarðefna­eldsneyta. Sósíal­istar eru umhverfis­sinnar og eru sem slíkir jákvæðir gagnvart öllum lausnum sem leiða til lækkunar losunar koltvísýrings út í andrúms­loftið. Sósíal­istar gera hins vegar kröfu um að allar slíkar framkvæmdir á Íslandi séu á vegum Lands­virkjunar og í eigu almennings og að Lands­virkjun leitist eftir því að virða vilja almennings. Þau stór­felldu vindmyllu-áform sem nú eru í kortunum fara langt fram úr allri skynsemi og taka ekkert mið af langtíma­áhrifum á samfélag og náttúru. Vind­myllur geta í fyrstu virst vera góð lausn til orku­öflunar, umhverfisvæn lausn í átt að minnkandi neyslu til að uppfylla loftslags­markmið og samninga. En hættan er að framkvæmdin feli í sér óafturkræft inngrip í náttúru landsins.  

„Við megum ekki afsala okkur ábyrgð á nátt­úr­unni í hendur auð­hringja og verðum að vera upp­lýst um óaft­ur­kræf áhrif á nátt­úru okkar“

Undir­búningur orku­skipta hefur því miður verið helst til ólýðræðislegur og ógagnsær þar sem hagsmuna­aðilar hafa frítt spil en ekki nógsam­lega hlustað á íbúa umræddra svæða og sérfræðinga sem hafa athugað aðgerðirnar í samhengi. Spurningar hafa vaknað um óeðlilega íhlutun einka­fyrirtækja í viðkvæm byggða- og vistkerfi. Sósíalista­flokkurinn krefst þess að slíkir virkjana­kostir séu ræddir og rann­sakaðir frá öllum sjónar­hornum áður en tekin er ákvörðun um framkvæmdina, sérstak­lega þegar rík andstaða íbúa á svæðunum er fyrir hendi. Sú andstaða er í sjálfu sér ástæða til að efast um virkjana­kostinn. Afar ólíklegt er að sú gríðar­lega orkuþörf sem verið er að mæta sé til staðar og yfir­gengileg áform um vind­orkuver um allt land séu réttlætanleg. 

Sósíalista­flokkurinn vill leyfa náttúru landsins og almenningi á Íslandi að njóta vafans á meðan enn er ekki fundin lausn á því hvernig nýta megi vindorku á þann máta að ekki þurfi að koma til náttúru­spjöll og yfir­gangur stór­fyrirtækja sem áforma stór­fellda vindmyllu­garða, stundum í takt við sveita­stjórnir en yfirleitt – í trássi við nærsamfélögin, reynslu­þekkingu og stað­reyndir byggðar á vísinda­legum prófunum sem lúta að líffræði­legum fjöl­breytileika og samtengingu loftslags­sjónarmiða, dýra- og náttúru­verndar. Öll orku­virkjunar­uppbygging þarf öllu heldur að undir­gangast ströng skilyrði um raun­verulega sjálfbæra þróun, þ.e. hvort tiltekinn virkjana­kostur stuðli frekar að eða hamli grósku samfélag­anna með almannahag að leiðar­ljósi, bæði félags­lega og efnahags­lega, og sé liður í vernd nátt­úrunnar þar sem hringrásir hennar séu virtar í ljósi raun­verulegs endurnýjanleika. 

Við megum ekki afsala okkur ábyrgð á nátt­úrunni í hendur auðhringja og verðum að vera upplýst um óafturkræf áhrif á náttúru okkar og samfélög á lands­byggðinni og um allt land, og einnig um hugsanlega samtryggingu hagsmuna­aðila þar sem almenningur er yfirleitt úr myndinni. Náttúru­auðlindir skulu samkvæmt Sósíalista­flokknum vera í almanna­eigu og ábyrgðinni gagnvart samfélaginu og nátt­úrunni má aldrei afsala eða útvista fyrir skammtíma­sjónarmið gróða og orku­stefnu sem slítur úr sambandi einstök loftslags­markmið og heildar­mynd náttúru­verndar og almanna­heilla. Vindmyllu­áform stór­fyrirtækja, erlendra og/eða innlendra einka­fyrirtækja og hluta­félaga í þeim stór­felldu áformum sem liggja nú fyrir geta því ekki samrýmst stefnu Sósíalista­flokks Íslands. 

Vind­orkuver hafa í för með sér gríðarlegt og oftast óafturkræft inngrip í náttúru landsins og raska einnig hagfræði­lega ákjósanlegum jarðvegi fyrir lítil samfélög og blómlegt atvinnulíf almennings. Uppbygging vindmyllu­garða hér á landi hefur hingað til í flestum tilfellum ef ekki öllum verið á forsendum stór­fyrirtækja sem sjá sér leik á borði að ráðast í aðgerðir á svæðum sem þau telja ómerkileg og með litinn fórnar­kostnað. Í tengslum við þau áform og íhlutanir hafa andmæli almennings og íbúa á svæðunum, fagfólks á sviði orku­nýtingar, náttúru­verndar og loftslags­mála ítrekað verið hunsuð. Sósíalista­flokkur Íslands getur ekki afgreitt öll vindorku­áform í eitt skipti fyrir öll, enda á sér stað ör þróun á sviði iðnaðarins sem vonandi verður að æ ákjósanlegri kostum, en krefst þess að tekið verði mið af nýjustu rann­sóknum í geiranum og hlustað á raddir íbúa og almennings sem og raddir fagfólks sem tekur heildar­samhengi íhlutunar inn í myndina og leyfir almenningi og náttúru landsins að njóta vafans. Því þar sem orku­skortur er ekki aðkall­andi eins og látið er að liggja í aðgerðar­áætlun stjórn­valda þarf að ganga úr skugga um að heildar­mynd uppbyggingarinnar hvað varðar eignar­hald, ábyrgð og áhrif sé til staðar, skýr og opin fyrir áfram­haldandi umræðu. 

Viðreisn

„Hafa skal í huga að tak­marka nei­kvæð áhrif á fugla­líf og nær­sam­fé­lög eins vel og unnt er þegar valið er hvar skal reisa vind­orku­ver“

Viðreisn styður nýtingu vindorku. Vind­orkuver ætti að staðsetja utan þjóðgarða og beina uppbyggingu þeirra þangað þar sem viðeigandi innviðir eru til staðar (t.d. sterkt flutnings­kerfi og aðgengi að sveigjanlegri raforku­vinnslu). Hafa skal í huga að takmarka neikvæð áhrif á fuglalíf og nærsamfélög eins vel og unnt er þegar valið er hvar skal reisa vind­orkuver. Hæf orku­fyrirtæki, í opinberri eða einkaeigu, eiga að fá að reisa vind­orkuver og tryggja þarf sanngjörn auðlinda­gjöld af nýtingu vindorku og tryggja að gjald­takan renni að hluta til nærsamfélagsins. Viðreisn styður að mótuð verði atvinnu- og iðnaðar­stefna fyrir Ísland þar sem stjórn­völd forgangs­raða orku í þágu orku­skipta og grænnar atvinnu­uppbyggingar auk þess að tryggja forgang heimila og minni fyrir­tækja ef til orku­skorts kemur.

Vinstri hreyfingin – grænt framboð

Afleiðingar orku­öflunar með vindi þarf að rannsaka nánar á Íslandi og kynna fyrir almenningi áður en teknar eru óafturkræfar ákvarðanir. Gera skal ríka kröfu til þess að sýnt sé fram á hvort vind­orkuver samræmist og falli að íslenskum aðstæðum, náttúru, lífríki, víðernum, samfélagi og orku­innviðum.

„Ef vind­orku­ver verða að veru­leika hér­lendis þá eiga opin­berir aðilar að sjá um upp­bygg­ing­una og á landi eiga þau aðeins heima á þegar rösk­uðum svæðum“

Að mati okkar í VG þarf að marka stefnu hið fyrsta um nýtingu vindorku á landi og hafi í íslenskri lögsögu og setja þarf skýrar reglur um innheimtu auðlinda­gjalds af vind­orku­virkjunum sem renna á til samfélagsins alls. Ef vind­orkuver verða að veruleika hérlendis þá eiga opinberir aðilar að sjá um uppbygginguna og á landi eiga þau aðeins heima á þegar röskuðum svæðum með tengingu við orku­innviði sem fyrir eru í almanna­eigu. Skýrar reglur þurfa að gilda um vind­orkuver t.d. um stærð þeirra, efni, lit og annað eftir því hver áhrif þeirra eru á umhverfið. Vind­orkuver skulu falla undir ramma­áætlun og lúta lögum og reglum um mat á umhverfis­áhrifum. Útgefin leyfi þurfa að kveða á um ábyrgð á niðurrifi og förgun úrsér­genginna vind­orku­mannvirkja. Okkur í VG hugnast ekki að erlendir aðilar fái að nýta vind til raforku­framleiðslu í hagnaðar­skyni.

Meta þarf orkuþörf landsins til framtíðar af vísinda­mönnum sem ekki hafa hagsmuna að gæta. Það mat getur þá vísað veginn um hvort þörf sé á því að byggja vind­orkuver hérlendis. Við í VG viljum að orku­auðlindir landsins verði nýttar til að byggja upp kolefnis­hlutlaust samfélag. Eigi nýjar virkjanir að ná markmiðum Íslands um full orku­skipti fyrir árið 2040 verður að ríkja sátt um það hvernig og hvar orkunnar er aflað. Mestu skiptir að það verði gert af varfærni gagnvart viðkvæmri náttúru landsins og í sátt við samfélagið. Kalla þarf eftir afstöðu almennings og félaga­samtaka m.t.t. náttúru- og umhverfis­verndar­sjónarmiða vegna þessa.

Kjósa
6
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Vindorkumál

Vindorkumál

Ný ógn við haförninn rís á Íslandi

Hafernir falla blóðugir og vængja­lausir til jarðar í vind­orkuverum Noregs sem mörg hver voru reist í og við búsvæði þeirra og helstu flug­leiðir. Hættan var þekkt áður en verin risu og nú súpa Norðmenn seyðið af því. Sagan gæti endur­tekið sig á Íslandi því mörg þeirra fjörutíu vind­orkuvera sem áformað er að reisa hér yrðu á slóðum hafarna. Þessara stórvöxnu ránfugla sem ómæld vinna hefur farið í að vernda í heila öld.

20 mín. lestur

Mest lesið undanfarið ár