Mögulegar meirihlutastjórnir miðað við stöðuna

Þegar tæp­lega hund­rað þús­und atkvæði hafa verið talin er hægt að hefja sam­kvæm­is­leik um mögu­legar meiri­hluta­stjórnir. Minnsta mögu­lega meiri­hluta­stjorn þarf 32 þing­menn. Nokkrir kostir eru í stöð­unni.

Mögulegar meirihlutastjórnir miðað við stöðuna
Á Alþingi sitja 63 þing­menn. Allt stefnir í að sex flokkar sitji á þingi á kom­andi kjör­tíma­bili en á því síð­asta voru þeir átta. Mynd: Wikimedia / Zinneke (CC license) D'Gebai vum Alþingi, dem islännesche Parlament

Nokkrir mögu­leikar blasa við þegar kemur að myndun nýrrar rík­is­stjórnar en allir byggj­ast þeir á for­send­unni á að þing­menn hennar nái meiri­hluta á þingi, þar sem þing­menn­irnir eru 63.

Tekið skal fram að enn stendur taln­ing yfir og þetta er því fyrst og fremst sam­kvæm­is­leikur á þess­ari stundu, og er hér byggt á töl­fræði en ekki mál­efnum. Til að ná meiri­hluta þarf minnst 32 þing­menn.

Miðað við stöð­una gætu Sam­fylk­ing, Sjálf­stæð­is­flokkur og Viðreisn myndað meiri­hluta með 41 þing­manni. Þá gætu Sam­fylk­ing og Viðreisn einnig myndað meiri­hluta með Flokki fólks­ins, með alls 36 þing­menn. 

Sjálf­stæð­is­flokkur, Viðreisn og Mið­flokk­ur­inn gætu sömu­leiðis myndað 33 þing­manna meiri­hluta.

Allir ofan­greindir mögu­leikar miða við þriggja flokka stjórn.

Einnig er í stöð­unni að Sjálf­stæð­is­flokkur, Flokkur fólks­ins, Mið­flokkur og Framsókn myndi meiri­hluta með 36 þing­mönnum.  Þarna er um fjóra flokka að ræða sem gera má ráð fyrir að geti flækt stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræður enn meira en þegar um er að ræða þrjá flokka.

Hér má nálg­ast töl­fræði í raun­tíma með nýj­ustu upp­lýs­ingum í graf­ískri fram­setn­ingu á vef Heim­ild­ar­innar.

Einn mögu­leiki til við­bótar er í stöð­unni þegar kemur að þriggja flokka stjórn, miðað við stöð­una á fjórða tím­anum aðfar­arnótt 1. des­em­ber. Þetta er meiri­hluti Sam­fylk­ingar, Við­reisnar og Fram­sóknar. Þessir flokkar gætu myndað meiri­hluta með 32 þing­mönnum en það þarf einmitt 32 til að ná meiri­hluta. Með þann þing­manna­fjölda má þó lítið sem ekk­ert koma upp í sam­starf­inu því meiri­hlut­inn væri fall­inn við atkvæða­greiðslu á þingi þó aðeins einn þing­maður væri á móti því sem við­kom­andi rík­is­stjórn vildi ná fram.

Þegar þetta er birt hafa verið talin yfir 98 þús­und atkvæði en á kjör­skrá eru rúm­lega 268 þús­und. 

Samkvæmt tölum sem nú hafa borist úr öllum kjör­dæmum eru yfir­gnæf­andi líkur á að stjórn­mála­flokkum sem eiga sæti á Alþingi fækki úr átta í sex, að bæði Píratar og Vinstri græn falli af þingi og til við­bótar, að Sós­í­alista­flokk­ur­inn fái engan þing­mann kjör­inn. 

Þetta kemur til með að breyta lands­lag­inu á þing­inu tölu­vert, en flokkar á Alþingi hafa verið átta tals­ins frá árinu 2017. Síðast náðu ein­ungis sex flokkar kjöri í alþing­is­kosn­ing­unum árið 2013.

Eins og Heim­ildin greindi frá í kvöld tók Inga Sæland, for­maður Flokks fólks­ins, jákvætt í hug­mynd um rík­is­stjórn með Sam­fylk­ing­unni í beinni útsend­ingu í kosn­inga­sjón­varpi RÚV í nótt. Kristrún Frosta­dóttir, for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, sem vinnur stór­sigur í kosn­ing­unum, lýsti efa­semdum um rík­is­stjórn með Sjálf­stæð­is­flokki. 

Þegar þátt­ar­stjórn­andi Rík­is­út­varps­ins, Sigríður Hagalín Björns­dóttir, bað Þorgerði Katrínu Gunn­ars­dóttur, for­mann Við­reisnar, og Kristrúnu Frosta­dóttur, um við­brögð við orðum Ingu, þagði Þor­gerður, en Kristrún svar­aði og hló: „Við erum ekk­ert að fara að mynda hérna rík­is­stjórn í beinni útsend­ingu.“

Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir svar­aði því til að „nóttin væri ung“ en lagði ekki mat á rík­is­stjórn með Sam­fylk­ingu og Flokki fólks­ins. Hún lagði almennt áherslu á sam­henta rík­is­stjórn í orðum sínum á kosn­inga­nótt.

Kristrún var­aði við rík­is­stjórn „með alltof breitt lit­róf“. „Við verðum að fá sam­stíga rík­is­stjórn og það verður lyk­il­at­riði ef við förum í stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræður,“ sagði Kristrún.

Kjósa
6
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Alþingiskosningar 2024

Mest lesið

2
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.
3
Viðskipti

Hagnaður Krón­unnar jókst um 500 millj­ónir en afkoma N1 versn­aði

Krónan hagn­að­ist um 2,6 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins, um hálfum millj­arði meira en á sama tíma í fyrra. Versl­un­ar­keðjan hefur aukið sölu sína og frysti í sept­em­ber verð á 647 vörum í tengslum við bar­átt­una gegn verð­bólgu. Á sama tíma hefur hagn­aður N1 dreg­ist veru­lega saman og heild­ar­hagn­aður móð­ur­fé­lags­ins Festis minnkað.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

1
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár