Inga Sæland og Kristrún ræddu nýja ríkisstjórn í beinni

Með stóran kosn­inga­sigur í sjón­máli brást Inga Sæland, for­maður Flokks fólks­ins, vel við hug­mynd um rík­is­stjórn með Sam­fylk­ing­unni og Viðreisn.

Inga Sæland og Kristrún ræddu nýja ríkisstjórn í beinni
Kosn­inga­sjón­varp RÚV Hlýtt var á milli Kristrúnar og Ingu í leið­togaum­ræðum á RÚV. Mynd: Golli

Inga Sæland, for­maður Flokks fólks­ins, tók jákvætt í hug­mynd um rík­is­stjórn með Sam­fylk­ing­unni í beinni útsend­ingu í kosn­inga­sjón­varpi RÚV í nótt. Kristrún Frosta­dóttir, for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, sem vinnur stór­sigur í kosn­ing­unum, lýsti efa­semdum um rík­is­stjórn með Sjálf­stæð­is­flokki. 

Samkvæmt taln­ingu um miðja nótt var Sam­fylk­ingin að bæta við sig 10 þing­mönnum, Viðreisn 6 og Flokkur fólkisns 4 þing­sætum.

„Langar okkur í rík­is­stjórn?“ svar­aði Inga Sæland spurn­ingu þátt­ar­stjórn­anda Rík­is­sjón­varps­ins. „Þetta var furðu­leg spurn­ing. Við erum í stjórn­málum einmitt til þess að hafa áhrif. Við erum í stjórn­málum til að gera gagn. Ég stofn­aði flokk fólks­ins á eld­hús­gólf­inu heima hér fyrir átta árum síðan,“ sagði hún. Spurð um óska­sam­starfs­flokk svar­aði Inga: „Ég elska alla flokka. Mér finnst við öll frá­bær.“

„Ég er jafnaðarkona“

Síðar var Inga spurð út hvort hún gæti hugsað sér að sitja í rík­is­stjórn með Sam­fylk­ingu og Viðreisn, sem hefði miðað við stöð­una 37 þing­menn af 63 á Alþingi.

„Bara svo það sé sagt þá var ég einu sinni Krata­kona og ég er jafn­að­ar­kona,“ sagði Inga. „Og þó að það sé nú ekki allt saman sam­eig­in­legt hjá okkur og ástæða þess að ég stofn­aði nýjan stjórn­mála­flokk að mér þótti á sínum tíma, eftir efna­hags­hrunið, að Sam­fylk­ingin hafi í raun svikið okkur. Alveg, eins og við segjum á góðri íslensku: „Big time“. Það breytir ekki þeirri stað­reynd að núna, þá er ég að sjá það að eftir að Kristrún tekur við for­ystu Sam­fylk­ingar að þá er hún að fær­ast meira inn á þá línu, sem ég hef verið að leggja með Flokki fólks­ins, um jöfnuð, vel­ferð og að koma til móts við þá sem höllustum fæti standa í sam­fé­lag­inu, þannig að ef það er réttur skiln­ingur minn, þá hljótum við að standa frekar nálægt hvað það varðar og ég get ekki betur heyrt heldur á öllu orð­færi á Alþingi Íslend­inga síð­ustu tvo vet­urnar að þau séu nú hrein­lega að reyna að fara í okkar skó. Þannig að það lítur vel út í mínum huga.“

BaksviðsÞor­gerður Katrín og Kristrún sögð­ust báðar vilja mynda sam­henta rík­is­stjórn sem væri á miðj­unni.

Þorgerður þögul

Þegar þátt­ar­stjórn­andi Rík­is­út­varps­ins, Sigríður Hagalín Björns­dóttir, bað Þorgerði Katrínu Gunn­ars­dóttur, for­mann Við­reisnar, og Kristrúnu Frosta­dóttur, um við­brögð við orðum Ingu, þagði Þor­gerður, en Kristrún svar­aði og hló: „Við erum ekk­ert að fara að mynda hérna rík­is­stjórn í beinni útsend­ingu.“

„Þið sjáið hvað er að ger­ast,“ sagði Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, for­maður Mið­flokks­ins. „Þið heyrið það bara: Sam­fylk­ing, Viðreisn og Flokkur fólks­ins.“

Sjálfur var­aði Sig­mundur Davíð við því að slík rík­is­stjórn yrði Evr­ópu­sam­bands­stjórn. Þá tók hann fyrr í umræð­unum í hönd­ina á Bjarna Bene­dikts­syni, for­manni Sjálf­stæð­is­flokks­ins, upp á bar­áttu beggja gegn aðild að Evr­ópu­sam­band­inu. Inga Sæland svar­aði hins vegar spurn­ingu Sig­mundar Davíðs um afstöðu hennar til ESB í nýrri CFS rík­is­stjórn: „Við höfum nú alltaf sagt það að það er bara þjóð­ar­innar að taka ákvörðun um það. Ekki Ingu Sæland.“

Leggja áherslu á samstíga stjórn

Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir svar­aði því til að „nóttin væri ung“ en lagði ekki mat á rík­is­stjórn með Sam­fylk­ingu og Flokki fólks­ins. Hún lagði almennt áherslu á sam­henta rík­is­stjórn í orðum sínum á kosn­inga­nótt. Spurð hvort hún vildi verða for­sæt­is­ráð­herra neit­aði hún því að hún legði áherslu á það, heldur skipti öllu að stjórn yrði sam­stíga. „Ég er orðin það gömul í þessum bransa að ég nenni ekki hinu. Ég kem úr íþróttum og það skiptir máli að vera með sterka liðs­heild og sam­henta liðs­heild.“

Mögu­leiki á „borg­ara­legri“ stjórn var hins vegar enn til staðar, með 33 þing­menn í hugs­an­legri rík­is­stjórn Sjálf­stæð­is­flokks, Við­reisnar og Mið­flokks.

Inga lýsir áhugaFormaður Flokks fólks­ins lýsti áhuga á rík­is­stjórn með Viðreisn og Sam­fylk­ingu. Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir úr Viðreisn þagði en Kristrún Frosta­dóttir hló að ágengum spurn­ingum þátt­ar­stjórn­enda og hrós­aði Ingu.

Kristrún lýsti í umræð­unum efa­semdum um hug­mynd um rík­is­stjórn með Viðreisn og Sjálf­stæð­is­flokknum.

„Ég held að það þurfi ýmis­legt að breyt­ast í Sjálf­stæð­is­flokknum í stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræðum ef svo á að fara.“ Hún var­aði við rík­is­stjórn „með alltof breitt lit­róf“. „Við verðum að fá sam­stíga rík­is­stjórn og það verður lyk­il­at­riði ef við förum í stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræður,“ sagði Kristrún.

Kjósa
11
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Sigurður Sigurðsson skrifaði
    Inga, þú ert vonarstjarnan.
    0
  • HÓ
    Helga Óskarsdóttir skrifaði
    Til hamingju Inga Sæland og Kristrún! Þorgerður verður til trafala enda stefnulaus með öllu.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Alþingiskosningar 2024

Mest lesið

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
3
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár