Óléttur hjúkrunarfræðingur tekinn hálstaki

Þær eru kýldar og teknar hálstaki. Kynferðisleg áreitni gagnvart starfs­fólki bráða­móttökunnar er algengt. „Algengara en við tölum um,“ segir hjúkrunar­fræðingur. Starfs­fólk á vaktinni hefur verið lamið, það er káfað á því og hrækt á það. Hótanir sem starfs­fólk verður fyrir eru bæði um líflát og nauðganir. Í sumum tilvikum er ofbeldið það alvarlegt að starfs­fólk hefur hætt störfum eftir alvarlegar árásir.

Hlustaðu · brot1:08:26 · Á vettvangi

Þeim er hótað líkamlegu ofbeldi. Þær verða fyrir kynferðis­legu áreiti. Það er káfað á þeim. Þær fá alvarlegar hótanir sem beinast gegn fjöl­skyldu þeirra og börnum og það er hrækt á þær. Þetta er veruleiki sem kvenkyns starfs­fólk bráða­móttökunnar hefur upplifað í vinnu sinni. Þær segja karlkyns starfs­menn standa þétt við bakið á þeim þegar svona tilvik koma upp. Stjórn­endur bráða­móttökunnar segjast taka öll ofbeldismál alvarlega og yfir­læknirinn segir að þótt starfs­fólkið sé alltaf í liði með sjúklingum þá sé ofbeldi aldrei liðið og sjúklingar sem beiti ofbeldi eða hótunum sé umsvifa­laust vísað frá deildinni og fái ekki þjónustu. 

„Hann allt í einu tók mig háls­taki og hélt mér uppi við vegg“
Stella, hjúkr­un­ar­fræð­ingur

Fyrir tveimur árum var Stella hjúkrunar­fræðingur ólétt og var á vakt á biðstofunni. Hún var að forgangs­flokka sjúklinga inn á deildina. Hún var inni á …

Kjósa
49
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (3)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Josef Gunnlaugsson skrifaði
    Eru thetta islendingar? Eda utlendingar?
    0
  • GEJ
    Gudmundur Eyjólfur Jóelsson skrifaði
    Þetta er ólíðandi og sé ekki betur en að ráða þurfi öryggisverði sem eru til taks öllum stundum.
    2
  • Kristín Guðnadóttir skrifaði
    Mesta furða að konur fáist til starfa við þessar aðstæður. Það þarf að ráða öryggisverði, hafi það ekki þegar verið gert.
    3
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Á vettvangi

Á vettvangi

Vont að senda varnar­lausar konur aftur í sömu stöðu

Jóhanna Erla Guðjóns­dóttir er félags­ráðgjafi á bráða­móttöku Land­spítalans. Þar tekst hún á við myrkustu hliðar mann­lífsins, en segist helst reiðast yfir því að rekast á sömu veggina aftur og aftur, þegar úrræðin eru engin. Til dæmis varðandi konur sem búa á götunni, verða fyrir ofbeldi og eiga sér hvergi skjól. Þrátt fyrir áskoranir segir hún starfið það besta í heimi.

9 mín. lestur

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár