Veikindi kvenna afskrifuð: „Hún er bara móðursjúk“

Ein var kölluð fík­ill þegar hún lýsti óbæri­legum lík­am­legum kvölum. Svo var hún sögð með heilsu­kvíða. Önnur var sögð ímynd­un­ar­veik. Sú þriðja áhyggju­rófa. Dóttir hennar, sem var með ógreint heila­æxli, fékk sama við­ur­nefni. Sögur þess­ara kvenna, kvenna sem hafa mætt skiln­ings­leysi innan heil­brigð­is­kerf­is­ins þrátt fyrir alvar­legan heilsu­brest, eru sagðar í nýjum hlað­varps­þáttum Heim­ild­ar­innar: Móð­ur­sýkiskast­inu.

Veikindi kvenna afskrifuð: „Hún er bara móðursjúk“

Heil­brigð­is­kerfið hefur brugð­ist konum. Ekki öllum konum og sjaldn­ast með­vitað en dæmin liggja víða og snerta fæð­ingar, frjó­sem­is­með­ferðir, grein­ingar á krabba­meini, með­ferð á endó­metríósu, skjald­kirtils­vanda og svo mætti lengi telja.

Síðan í apríl síð­ast­liðnum hefur Heim­ildin tekið á móti sögum kvenna sem hafa mætt hindr­unum í heil­brigð­is­kerf­inu. Í mörgum til­vikum er um að ræða sögur af því hvernig læknar og annað heil­brigð­is­starfs­fólk hafa hundsað áhyggjur þeirra eða ekki hlustað nægi­lega vel, stundum með þeim afleið­ingum að þær hafa hlotið var­an­legan skaða af.

Sögurnar sem Heim­ild­inni hafa borist eru á þriðja tug tals­ins og spanna um þriggja ára­tuga tíma­bil. Sögur nokk­urra af þeim konum sem hafa sagt Heim­ild­inni frá birt­ast í nýjum hlað­varps­þáttum sem bera tit­il­inn Móð­ur­sýkiskastið. Móð­ur­sýki er orð sem hefur frá átj­ándu öld verið notað til þess að þagga niður í konum og gera lítið úr þeim. Það er orð sem sumar kvenn­anna sem Heim­ildin hefur …

Kjósa
37
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (4)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • SGIG
    Sigurlaug Guðrún I Gísladóttir skrifaði
    Þetta er því miður fremur regla en undantekning sama hvað heilbrigðisfólk segir. En það gildir ekki bara um konur. Þetta gildir líka um fólk sem er með einhvers konar greiningu, eins og misþroska, einhverfu, asperger og svo framvegis, en einnig líka ef fólk er í yfirþyngd og þá sérstaklega konur í yfirþyngd, öll þeirra mein eru vegna ofþyngdar.
    Heimilslæknir minn var hreinskilin þegar ég spurði hann um, er ég og karlmaður úr sömu sýslu láum nánast með hljóðum á biðstofu heilsugæslunnar, bæði greind með brjósklos, hann var sendur suður í aðgerð, en ég var send heim og það hefur markað líf mitt alla tíð, læknir minn sagði er ég spurði hann hvers vegna? Silla mín, þú ert ekki með tippi. Hann var þó í það minnsta hreinskilin.
    0
    • EK
      Elísabet Kjárr skrifaði
      Þetta er ömurlegt... og svo erum við líka flestar greindar með "kulnun" þegar breytingarskeiðið bankar uppá. Kulnunarstéttin kennarar samsanstendur mestmegnis af konum eftir fertugt.
      1
  • EK
    Elísabet Kjárr skrifaði
    Pólsk vinkona mín fékk hnúð á sköflunginn fyrir rúmum 10 árum. Hún fór á milli lækna í marga mánuði og fékk að heyra að hnúðurinn væri vegna álags, hún ætti bara að hvíla fótinn og slaka á.

    Þegar hún hneig svo niður í vinnunni vegna sársauka fékk hún loks aðhlynningu og kom í ljós að hún var með krabbamein.

    Hún missti fótinn fyrir neðan hné.

    Er hægt að kæra svona dæmi til landlæknis ef hún er með allt skráð?
    3
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Móðursýkiskastið

Efaðist í átta ár um að hún gæti eignast börn
ViðtalMóðursýkiskastið

Efaðist í átta ár um að hún gæti eign­ast börn

Elísa Ósk Lína­dóttir var 19 ára þegar kven­sjúk­dóma­læknir greindi hana með PCOS og sagði henni að drífa í barn­eignum. Engar ráð­legg­ingar um hennar eigin heilsu fylgdu og Elísa fór af stað í frjó­sem­is­með­ferðir með þáver­andi kærast­anum sínum. „Ég var ekk­ert til­búin í að verða mamma,“ segir Elísa sem efað­ist í kjöl­farið um að hún myndi geta eign­ast börn.
Innsæi Karenar öskraði: „Það er eitthvað að“
ViðtalMóðursýkiskastið

Innsæi Karenar öskr­aði: „Það er eitt­hvað að“

Þegar Karen Ösp Frið­riks­dóttir lá sár­kvalin á kvenna­deild Land­spít­ala árið 2019 var hún sökuð um verkja­lyfjafíkn. Hún hafði þá verið verkjuð síðan hún var níu ára. Geð­læknir leiddi að því líkum að verkir hennar tengd­ust gervi­óléttu. Tveimur árum síðar fékk hún loks stað­fest­ingu á því að hún væri með lík­am­legan sjúk­dóm. Hún vonar að heil­brigð­is­kerfið og sam­fé­lagið læri af hennar sögu.
Lenti í fæðingunni sem hún óttaðist mest
ViðtalMóðursýkiskastið

Lenti í fæð­ing­unni sem hún ótt­að­ist mest

„Það erf­ið­asta var að það var ekki hlustað á mig þegar ég sagði: Það er eitt­hvað óeðli­legt í gangi,“ segir Sigrún Lilja Guð­jóns­dóttir, sem gekk í gegnum mjög erf­iða fæð­ingu með eft­ir­málum á borð við lífs­hættu­legan blóð­missi, sýk­ingu, aðgerð og fæð­ing­ar­þung­lyndi. Hún kallar eftir því að betur sé hlustað á konur sem segja frá óeðli­legum sárs­auka og að ókeypis neyð­ar­þjón­ustu sé komið á fyrir þær sem lenda í alvar­legu fæð­ing­ar­þung­lyndi.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár