Hrund og Sigrún 25 ár eru liðin síðan mæðgurnar mættu hindr­unum í heil­brigð­is­kerf­inu. Minn­ing­arnar af því hafa rifj­ast upp fyrir Hrund ítrekað í gegnum árin, í hvert sinn sem hún heyrir aðra móður lýsa svip­aðri reynslu. Mynd: Golli

Grátbað um myndatöku fyrir barnið sem leiddi í ljós heilaæxli

Mánuðum saman þurfti Hrund Ólafs­dóttir að grát­biðja lækni um að senda Sigrúnu, dóttur hennar, í mynda­töku vegna alvar­legra veik­inda sem voru skil­greind sem mígreni. „Barnið bara kvald­ist og kvald­ist og kvald­ist og kvald­ist.“ Þegar hún loks fékk ósk sína upp­fyllta kom í ljós fimm sentí­metra stórt æxli í litla heila Sigrúnar.

Þú veist að hún er nátt­úr­lega áhyggju­rófa.“ 

„Já, er hún það?“

„Já, svona eins og mamma sín.“ 

Svona minn­ist Hrund Ólafs­dóttir sam­tals við lækni um veik­indi dóttur hennar fyrir 25 árum síðan. Þó að langt sé um liðið vill Hrund segja sögu þeirra mæðgna nú vegna þess að hún hefur aftur og aftur séð sama mynstur end­ur­taka sig: Að áhyggjur mæðra af heilsu­fari barna sinna séu hunds­aðar, stundum með mjög alvar­legum afleið­ingum. 

Sögur mæðra af því að vera sendar burt og sagt að róa sig yfir heilsu­fari barna sinna birt­ast um það bil árlega í við­tölum við mæður í íslenskum fjöl­miðlum. Í þessum frá­sögnum hafa þær lýst því að betur hefði verið hlustað á áhyggjur þeirra því þá hefði verið hægt að grípa fyrr inn í alvar­leg veik­indi. Síðast vakti slíkt mál mikla athygli í fyrra þegar móðir lýsti því að hafa farið með sjö vikna dóttur sína á …

Kjósa
40
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Sigríður Karlsdóttir skrifaði
    Mjög þörf umræða.
    4
  • ÓS
    Ólöf Sverrisdóttir skrifaði
    Mikið finnst mér þessi dálkur um Móðursýkiskast þarfur. Og takk Hrund fyrir að deila <3
    5
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Móðursýkiskastið

Efaðist í átta ár um að hún gæti eignast börn
ViðtalMóðursýkiskastið

Efaðist í átta ár um að hún gæti eign­ast börn

Elísa Ósk Lína­dóttir var 19 ára þegar kven­sjúk­dóma­læknir greindi hana með PCOS og sagði henni að drífa í barn­eignum. Engar ráð­legg­ingar um hennar eigin heilsu fylgdu og Elísa fór af stað í frjó­sem­is­með­ferðir með þáver­andi kærast­anum sínum. „Ég var ekk­ert til­búin í að verða mamma,“ segir Elísa sem efað­ist í kjöl­farið um að hún myndi geta eign­ast börn.
Innsæi Karenar öskraði: „Það er eitthvað að“
ViðtalMóðursýkiskastið

Innsæi Karenar öskr­aði: „Það er eitt­hvað að“

Þegar Karen Ösp Frið­riks­dóttir lá sár­kvalin á kvenna­deild Land­spít­ala árið 2019 var hún sökuð um verkja­lyfjafíkn. Hún hafði þá verið verkjuð síðan hún var níu ára. Geð­læknir leiddi að því líkum að verkir hennar tengd­ust gervi­óléttu. Tveimur árum síðar fékk hún loks stað­fest­ingu á því að hún væri með lík­am­legan sjúk­dóm. Hún vonar að heil­brigð­is­kerfið og sam­fé­lagið læri af hennar sögu.
Lenti í fæðingunni sem hún óttaðist mest
ViðtalMóðursýkiskastið

Lenti í fæð­ing­unni sem hún ótt­að­ist mest

„Það erf­ið­asta var að það var ekki hlustað á mig þegar ég sagði: Það er eitt­hvað óeðli­legt í gangi,“ segir Sigrún Lilja Guð­jóns­dóttir, sem gekk í gegnum mjög erf­iða fæð­ingu með eft­ir­málum á borð við lífs­hættu­legan blóð­missi, sýk­ingu, aðgerð og fæð­ing­ar­þung­lyndi. Hún kallar eftir því að betur sé hlustað á konur sem segja frá óeðli­legum sárs­auka og að ókeypis neyð­ar­þjón­ustu sé komið á fyrir þær sem lenda í alvar­legu fæð­ing­ar­þung­lyndi.
Veikindi kvenna afskrifuð: „Hún er bara móðursjúk“
ÚttektMóðursýkiskastið

Veikindi kvenna afskrifuð: „Hún er bara móð­ur­sjúk“

Ein var kölluð fík­ill þegar hún lýsti óbæri­legum lík­am­legum kvölum. Svo var hún sögð með heilsu­kvíða. Önnur var sögð ímynd­un­ar­veik. Sú þriðja áhyggju­rófa. Dóttir hennar, sem var með ógreint heila­æxli, fékk sama við­ur­nefni. Sögur þess­ara kvenna, kvenna sem hafa mætt skiln­ings­leysi innan heil­brigð­is­kerf­is­ins þrátt fyrir alvar­legan heilsu­brest, eru sagðar í nýjum hlað­varps­þáttum Heim­ild­ar­innar: Móð­ur­sýkiskast­inu.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár