Sett á lyf sem reyndust hættuleg

Ásta Þórdís Skjald­dal gekk í 25 ár á milli lækna þar til hún fékk loks rétta sjúk­dóms­grein­ingu. Aftur og aftur var hún sett á lyf við sjúk­dómi sem hún var ekki með. Í tvígang voru lyfin sem hún var á tekin úr sölu því þau voru talin hættu­leg heilsu fólks. „Það var eng­inn sem hlust­aði,“ segir Ásta.

Sett á lyf sem reyndust hættuleg
Breyting til batn­aðar Ásta var um tíma algjör­lega óvinnu­fær og kom sér varla í að vaska upp. Nú er öldin önnur, eftir að í ljós kom hvað raun­veru­lega amaði að henni. Mynd: Golli

Ásta Þórdís Skjald­dal fór fyrst að finna fyrir heilsu­bresti 23 ára gömul. Fram að því hafði hún verið alheil­brigð. Hún var ófrísk og fékk svo mik­inn bjúg að hún átti erfitt með að skrifa nafnið sitt. Eftir að dreng­ur­inn hennar kom í heim­inn fór hún að bæta hratt á sig þyngd, alveg án þess að það ætti sér eðli­legar skýr­ingar. 

Hún leit­aði til lækna en það kom ekk­ert út úr þeim sam­tölum fyrr en tveimur árum síðar, þegar hún fór í mæl­ingu sem sýndi að ekk­ert skjald­kirtils­hormón var til staðar í lík­ama hennar. Van­virkur skjald­kirt­ill var tal­inn rótin. Það var ekki fyrr en um 25 árum , þar af átta óvinnu­færum, og ótal lækn­is­heim­sóknum síðar sem í ljós kom að hún var ekki með neinn skjald­kirtil.

Ásta er við­mæl­andi í sjötta og síð­asta þætti Móð­ur­sýkiskasts­ins, hlað­varps á vegum Heim­ild­ar­innar þar sem …

Kjósa
24
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • HSR
    Hrefna S. Reynisdóttir skrifaði
    Mér var sagt af lækni að ástæða verkja í fingrum væri að ég var of þung.
    Þegar ég sagði "ætlar þú í alvöru að segja mér (nafn) að mér sé illt í puttunum því ég er feit?" gaf blessaður maðurinn sig og náðarsamlegast leyfði mér að fara til gigtalæknis þar sem ég var mjög hratt og örugglega greind með liðagigt..
    6
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Móðursýkiskastið

Efaðist í átta ár um að hún gæti eignast börn
ViðtalMóðursýkiskastið

Efaðist í átta ár um að hún gæti eign­ast börn

Elísa Ósk Lína­dóttir var 19 ára þegar kven­sjúk­dóma­læknir greindi hana með PCOS og sagði henni að drífa í barn­eignum. Engar ráð­legg­ingar um hennar eigin heilsu fylgdu og Elísa fór af stað í frjó­sem­is­með­ferðir með þáver­andi kærast­anum sínum. „Ég var ekk­ert til­búin í að verða mamma,“ segir Elísa sem efað­ist í kjöl­farið um að hún myndi geta eign­ast börn.
Innsæi Karenar öskraði: „Það er eitthvað að“
ViðtalMóðursýkiskastið

Innsæi Karenar öskr­aði: „Það er eitt­hvað að“

Þegar Karen Ösp Frið­riks­dóttir lá sár­kvalin á kvenna­deild Land­spít­ala árið 2019 var hún sökuð um verkja­lyfjafíkn. Hún hafði þá verið verkjuð síðan hún var níu ára. Geð­læknir leiddi að því líkum að verkir hennar tengd­ust gervi­óléttu. Tveimur árum síðar fékk hún loks stað­fest­ingu á því að hún væri með lík­am­legan sjúk­dóm. Hún vonar að heil­brigð­is­kerfið og sam­fé­lagið læri af hennar sögu.
Lenti í fæðingunni sem hún óttaðist mest
ViðtalMóðursýkiskastið

Lenti í fæð­ing­unni sem hún ótt­að­ist mest

„Það erf­ið­asta var að það var ekki hlustað á mig þegar ég sagði: Það er eitt­hvað óeðli­legt í gangi,“ segir Sigrún Lilja Guð­jóns­dóttir, sem gekk í gegnum mjög erf­iða fæð­ingu með eft­ir­málum á borð við lífs­hættu­legan blóð­missi, sýk­ingu, aðgerð og fæð­ing­ar­þung­lyndi. Hún kallar eftir því að betur sé hlustað á konur sem segja frá óeðli­legum sárs­auka og að ókeypis neyð­ar­þjón­ustu sé komið á fyrir þær sem lenda í alvar­legu fæð­ing­ar­þung­lyndi.
Veikindi kvenna afskrifuð: „Hún er bara móðursjúk“
ÚttektMóðursýkiskastið

Veikindi kvenna afskrifuð: „Hún er bara móð­ur­sjúk“

Ein var kölluð fík­ill þegar hún lýsti óbæri­legum lík­am­legum kvölum. Svo var hún sögð með heilsu­kvíða. Önnur var sögð ímynd­un­ar­veik. Sú þriðja áhyggju­rófa. Dóttir hennar, sem var með ógreint heila­æxli, fékk sama við­ur­nefni. Sögur þess­ara kvenna, kvenna sem hafa mætt skiln­ings­leysi innan heil­brigð­is­kerf­is­ins þrátt fyrir alvar­legan heilsu­brest, eru sagðar í nýjum hlað­varps­þáttum Heim­ild­ar­innar: Móð­ur­sýkiskast­inu.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár