Innsæi Karenar öskraði: „Það er eitthvað að“

Þegar Karen Ösp Frið­riks­dóttir lá sár­kvalin á kvenna­deild Land­spít­ala árið 2019 var hún sökuð um verkja­lyfjafíkn. Hún hafði þá verið verkjuð síðan hún var níu ára. Geð­læknir leiddi að því líkum að verkir hennar tengd­ust gervi­óléttu. Tveimur árum síðar fékk hún loks stað­fest­ingu á því að hún væri með lík­am­legan sjúk­dóm. Hún vonar að heil­brigð­is­kerfið og sam­fé­lagið læri af hennar sögu.

Innsæi Karenar öskraði: „Það er eitthvað að“
Nýtt líf Karen Ösp var kvalin nán­ast dag­lega frá því hún var 9 ára gömul og þar til hún hafði náð 29 árum. Eftir leg­námið öðl­að­ist hún nýtt líf, tveimur árum eftir að sam­talið um aðgerð­ina hafði byrjað. Mynd: Golli

Þú veist þú ert með heilsu­kvíða og þú veist þú vilt bara fá verkja­lyfin,“ minn­ist Karen Ösp Frið­riks­dóttir þess að hjúkr­un­ar­fræð­ingur hafi sagt við hana þar sem hún lá sár­kvalin á kvenna­deild Land­spít­ala árið 2019.

Karen var fyrir löngu orðin vön sárs­auka. Hún var þarna komin með tæp­lega 20 ára reynslu af honum. En samt segir hún að lík­am­legur sárs­auki hennar hafi verið skýrður aftur og aftur með öðrum leiðum – heilsu­kvíða, verkja­lyfjafíkn, gervi­óléttu, reynslu af ofbeldi – þegar hún þurfti að leggj­ast inn á Land­spít­ala vegna verkja.

Það rímar við íslenska rann­sókn frá árinu 2020 á upp­lifun kvenna með endó­metríósu af heil­brigð­is­kerf­inu. Sumar þeirra höfðu fengið rangar sjúk­dóms­grein­ingar en aðrar taldar eiga við and­lega kvilla að stríða. Konurnar höfðu margar upp­lifað skiln­ings­leysi og mætt van­trú innan heil­brigð­is­kerf­is­ins. Karen upp­lifði jafn­framt að mögu­leiki hennar á barn­eignum væri settur ofar því að leysa úr …

Kjósa
28
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Móðursýkiskastið

ViðtalMóðursýkiskastið

Efaðist í átta ár um að hún gæti eign­ast börn

Elísa Ósk Lína­dóttir var 19 ára þegar kven­sjúk­dóma­læknir greindi hana með PCOS og sagði henni að drífa í barn­eignum. Engar ráð­legg­ingar um hennar eigin heilsu fylgdu og Elísa fór af stað í frjó­sem­is­með­ferðir með þáver­andi kærast­anum sínum. „Ég var ekk­ert til­búin í að verða mamma,“ segir Elísa sem efað­ist í kjöl­farið um að hún myndi geta eign­ast börn.

12 mín. lestur

ViðtalMóðursýkiskastið

Lenti í fæð­ing­unni sem hún ótt­að­ist mest

„Það erf­ið­asta var að það var ekki hlustað á mig þegar ég sagði: Það er eitt­hvað óeðli­legt í gangi,“ segir Sigrún Lilja Guð­jóns­dóttir, sem gekk í gegnum mjög erf­iða fæð­ingu með eft­ir­málum á borð við lífs­hættu­legan blóð­missi, sýk­ingu, aðgerð og fæð­ing­ar­þung­lyndi. Hún kallar eftir því að betur sé hlustað á konur sem segja frá óeðli­legum sárs­auka og að ókeypis neyð­ar­þjón­ustu sé komið á fyrir þær sem lenda í alvar­legu fæð­ing­ar­þung­lyndi.

18 mín. lestur

ÚttektMóðursýkiskastið

Veikindi kvenna afskrifuð: „Hún er bara móð­ur­sjúk“

Ein var kölluð fík­ill þegar hún lýsti óbæri­legum lík­am­legum kvölum. Svo var hún sögð með heilsu­kvíða. Önnur var sögð ímynd­un­ar­veik. Sú þriðja áhyggju­rófa. Dóttir hennar, sem var með ógreint heila­æxli, fékk sama við­ur­nefni. Sögur þess­ara kvenna, kvenna sem hafa mætt skiln­ings­leysi innan heil­brigð­is­kerf­is­ins þrátt fyrir alvar­legan heilsu­brest, eru sagðar í nýjum hlað­varps­þáttum Heim­ild­ar­innar: Móð­ur­sýkiskast­inu.

12 mín. lestur

Mest lesið undanfarið ár