Efaðist í átta ár um að hún gæti eignast börn

Elísa Ósk Lína­dóttir var 19 ára þegar kven­sjúk­dóma­læknir greindi hana með PCOS og sagði henni að drífa í barn­eignum. Engar ráð­legg­ingar um hennar eigin heilsu fylgdu og Elísa fór af stað í frjó­sem­is­með­ferðir með þáver­andi kærast­anum sínum. „Ég var ekk­ert til­búin í að verða mamma,“ segir Elísa sem efað­ist í kjöl­farið um að hún myndi geta eign­ast börn.

Efaðist í átta ár um að hún gæti eignast börn
Mæðgur Elísa Ósk og Snæbjörg Fanney dóttir hennar. „Það er ekki rétt að þetta geti ekki tek­ist,“ segir Elísa um barn­eignir kvenna með PCOS. Mynd: Golli

Þú ert með PCOS, ef þú ætlar ein­hvern tím­ann að eign­ast barn þá myndi ég byrja að reyna núna,“ sagði kven­sjúk­dóma­læknir Elísu Óskar Lína­dóttur þar sem hún sat inni á stofu hjá honum 19 ára gömul og nýbúin í ómskoðun.

Elísu var brugðið. Hún hafði alltaf ímyndað sér að hún yrði móðir og gekk því út hugs­andi: „Ef ég ætla að verða mamma þá þarf ég bara að byrja núna.“

Þó að Elísa hafi þarna verið greind með sjúk­dóm sem hefur áhrif á margt annað en frjó­semi kvenna þá fylgdu engar ráð­legg­ingar um hennar eigin heilsu. Áherslan var öll á barn­eignir.

„Það var engin ráð­gjöf, það var ekki neitt,“ segir Elísa. „Ég var ekk­ert til­búin í að verða mamma. Ég var að útskrif­ast úr fjöl­braut og var að fara í háskóla­nám og bara lifa líf­inu.“

Kjósa
9
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Móðursýkiskastið

Innsæi Karenar öskraði: „Það er eitthvað að“
ViðtalMóðursýkiskastið

Innsæi Karenar öskr­aði: „Það er eitt­hvað að“

Þegar Karen Ösp Frið­riks­dóttir lá sár­kvalin á kvenna­deild Land­spít­ala árið 2019 var hún sökuð um verkja­lyfjafíkn. Hún hafði þá verið verkjuð síðan hún var níu ára. Geð­læknir leiddi að því líkum að verkir hennar tengd­ust gervi­óléttu. Tveimur árum síðar fékk hún loks stað­fest­ingu á því að hún væri með lík­am­legan sjúk­dóm. Hún vonar að heil­brigð­is­kerfið og sam­fé­lagið læri af hennar sögu.
Lenti í fæðingunni sem hún óttaðist mest
ViðtalMóðursýkiskastið

Lenti í fæð­ing­unni sem hún ótt­að­ist mest

„Það erf­ið­asta var að það var ekki hlustað á mig þegar ég sagði: Það er eitt­hvað óeðli­legt í gangi,“ segir Sigrún Lilja Guð­jóns­dóttir, sem gekk í gegnum mjög erf­iða fæð­ingu með eft­ir­málum á borð við lífs­hættu­legan blóð­missi, sýk­ingu, aðgerð og fæð­ing­ar­þung­lyndi. Hún kallar eftir því að betur sé hlustað á konur sem segja frá óeðli­legum sárs­auka og að ókeypis neyð­ar­þjón­ustu sé komið á fyrir þær sem lenda í alvar­legu fæð­ing­ar­þung­lyndi.
Veikindi kvenna afskrifuð: „Hún er bara móðursjúk“
ÚttektMóðursýkiskastið

Veikindi kvenna afskrifuð: „Hún er bara móð­ur­sjúk“

Ein var kölluð fík­ill þegar hún lýsti óbæri­legum lík­am­legum kvölum. Svo var hún sögð með heilsu­kvíða. Önnur var sögð ímynd­un­ar­veik. Sú þriðja áhyggju­rófa. Dóttir hennar, sem var með ógreint heila­æxli, fékk sama við­ur­nefni. Sögur þess­ara kvenna, kvenna sem hafa mætt skiln­ings­leysi innan heil­brigð­is­kerf­is­ins þrátt fyrir alvar­legan heilsu­brest, eru sagðar í nýjum hlað­varps­þáttum Heim­ild­ar­innar: Móð­ur­sýkiskast­inu.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár