Búast við að fleira trans fólk kveðji næstu fjögur árin

Forseti Trans Íslands segir of mikið af trans fólki falla fyrir eigin hendi á Íslandi. Hún segir að fólk sé ugg­andi yfir stöð­unni eftir nýaf­staðnar kosn­ingar í Banda­ríkj­unum og þær afleið­ingar sem þær geta haft fyrir stöðu hinsegin fólks.

Búast við að fleira trans fólk kveðji næstu fjögur árin
Minn­ing­ar­stund Haldin var minn­ing­ar­stund um trans fólk sem látið hefur lífið á síð­ast­liðnu ári í gær­kvöldi. Mynd: Golli

Í gær, þann 20. nóv­em­ber, var minn­ing­ar­dagur um trans fólk sem hefur lát­ist á síð­ast­liðnu ári – bæði það sem fallið hefur fyrir eigin hendi og vegna hat­urs­glæpa. Að því til­efni stóð Trans Ísland fyrir minn­ing­ar­stund í húsa­kynnum Sam­tak­anna '78.

Reyn Alpha Magn­ús­dóttir, for­seti Trans Íslands, segir að 20. nóv­em­ber sé mik­il­vægur dagur fyrir trans fólk til að koma saman og standa saman. „Af erf­iðu til­efni, vissu­lega, en það er líka alltaf mik­ill bar­áttu­andi.“

Heilbrigðiskerfið hafi brugðist

Hún segir að það séu alltaf ein­hver sjálfs­víg meðal trans fólks á Íslandi, einkum ung­menna. Erfitt sé þó að átta sig á umfangi vand­ans, til dæmis sé ekki alltaf hægt að stað­festa hver séu trans og hver ekki.

„En þetta eru of mörg. Við höfum séð ákveðnar áskor­anir á síð­ustu árum tengdar versn­andi sam­fé­lags­um­ræðu og afleið­ingum áskor­ana heil­brigð­is­kerf­is­ins – sem hefur að mörgu leyti brugð­ist trans fólki á síð­ustu …

Kjósa
8
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Kristjana Magnusdottir skrifaði
    FYRST ÖLLUM ER SAMA UM UM FOLK EINS OG MIG ÞA ÞAÐ
    0
  • Kolbrun Þorkelsdottir skrifaði
    Að stjórnmálamenn skuli beita spjótum sínum á transfólk er algjör hneysa, það eru engar heimildir um að transfolk valdi skaða á umhverfi sínu eða samfélaginu , hinsvegar hafa stjórnmálamenn vanrækt húsnæðismál, heilbrigðismál, menntamál sem valdið hefur mælanlegum skaða og ættu að finna sér eitthvað annað að gera.
    4
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár