Yfir 40% stuðningsmanna Miðflokksins kusu Sjálfstæðisflokkinn síðast

Könn­un­ar­fyr­ir­tækið Maskína hefur opin­berað nið­ur­stöður sem gefa nýja inn­sýn í það hvernig kjör­fylgið frá 2021 dreif­ist á flokka nú. Fylgið sem skóp kosn­inga­sigur Fram­sóknar árið 2021 virð­ist hafa tvístr­ast í allar áttir og helm­ingur kjós­enda Pírata hyggst nú kjósa Sam­fylk­ingu eða Viðreisn. Einn af hverjum fjórum kjós­endum Sjálf­stæð­is­flokks árið 2021 gefur sig upp á Mið­flokk­inn, sam­kvæmt nið­ur­stöðum Maskínu.

Yfir 40% stuðningsmanna Miðflokksins kusu Sjálfstæðisflokkinn síðast
Fjórð­ungur far­inn Samkvæmt nið­ur­stöðum Maskínu segj­ast 26 pró­sent þeirra sem kusu Sjálf­stæð­is­flokk­inn árið 2021 nú ætla að kjósa Mið­flokk­inn. Mynd: Golli

Rétt rúm 40 pró­sent þeirra sem segj­ast ætla að kjósa Mið­flokk­inn í nýj­ustu skoð­ana­könnun Maskínu, segja að þau hafi kosið Sjálf­stæð­is­flokk­inn í Alþing­is­kosn­ing­unum árið 2021. 

Þetta kemur fram í mæl­ingum sem könn­un­ar­fyr­ir­tækið hefur gert aðgengi­legar á sér­stöku mæla­borði á vef sínum, sem byggir á svörum við nýj­ustu könnun fyr­ir­tæk­is­ins, sem birt var 28. októ­ber.

Þar er hægt að sjá bæði hvaðan fylgi ein­staka flokka er og hvert fylgi flokka hefur færst frá síð­ustu kosn­ingum, miðað við svörin sem Maskína fékk frá þátt­tak­endum í könn­un­inni. 

Yfirlit sem þetta hefur ekki verið birt opin­ber­lega sam­fara birt­ingu skoð­ana­kann­anna til þessa, nú í aðdrag­anda kosn­inga, og veitir grein­ing Maskínu því nýja inn­sýn í það hvernig fylgið virð­ist hafa hreyfst á milli flokk­anna.

Framsóknarfylgið frá 2021 er ekki bara hjá Samfylkingu

Í umræðum um fylgi flokk­anna síð­ustu miss­eri hefur stundum verið nefnt að fylgið sem sóp­að­ist á Fram­sókn­ar­flokk­inn í síð­ustu kosn­ingum og skóp kosn­inga­sigur flokks­ins undir slag­orð­inu Er ekki bara best að kjósa Framsókn? gæti hafa leitað til Sam­fylk­ingar eftir því liðið hefur á kjör­tíma­bilið og skýrt stóran hluta þeirra fylg­is­aukn­ingar sem Sam­fylk­ingin hefur notið.

Samkvæmt nið­ur­brot­inu á könnun Maskínu er það þó ekki til­fellið, heldur kvarn­ast kjör­fylgi Fram­sóknar frá 2021 aðal­lega niður á þrjá flokka; Mið­flokk­inn sem hefur hrifsað til sín um 20 pró­sent kjós­enda Fram­sóknar og svo Sam­fylk­ingu og Viðreisn, en hvor hreyf­ing um hefur náð til sín um 15 pró­sentum kjós­enda Fram­sókn­ar­flokks­ins frá 2021, sam­kvæmt nið­ur­stöðum Maskínu.

Ef horft er á það hvaða flokk kjós­endur Fram­sókn­ar­flokks­ins frá 2021 segj­ast ætla að kjósa nú má sjá að ein­ungis 33 pró­sent þeirra segj­ast ætla að kjósa Framsókn aftur. Einungis Vinstri grænum og Pírötum hefur hald­ist verr á kjós­endum sínum frá 2021, en aðeins 21 pró­sent kjós­enda VG segj­ast ætla að kjósa flokk­inn á nýjan leik og rúm 30 pró­sent kjós­enda Pírata.

Hærra hlut­fall kjós­enda beggja flokka frá 2021 segj­ast nú ætla að kjósa Sam­fylk­ing­una en þessa tvo flokka, sam­kvæmt könnun Maskínu. Á hinum end­anum eru Mið­flokk­ur­inn, Viðreisn og Sam­fylk­ingin, sem halda vel í kjós­enda­hópa sína frá 2021.

Kjósendur Pírata og VG flykkjast á Samfylkingu

Sam­fylk­ingin hefur mælst stærsti flokkur lands­ins í skoð­ana­könn­unum um lengri tíma og í nýj­ustu könnun Maskínu er fylgið 22,2 pró­sent. En hvað kaus kjós­enda­hópur Sam­fylk­ing­ar­innar síð­ast? Rúm 42 pró­sent kusu Sam­fylk­ing­una.

Stærstu hóp­arnir sem hafa fært sig yfir á Sam­fylk­ing­una kusu Pírata og Vinstri græn síð­ast, en sam­an­lagt tæp 32 pró­sent væntra kjós­enda flokks­ins kaus annan hvorn þess­ara flokka síð­ast. Tæp 10 pró­sent þeirra sem segj­ast ætla að kjósa Sam­fylk­ing­una í þess­ari könnun Maskínu segj­ast hafa kosið Fram­sókn­ar­flokk­inn árið 2021. 

Ef við horfum á dæmið frá hinni hlið­inni og sjáum hvert fylgi Pírata og Vinstri grænna virð­ist vera að fara þá segj­ast alls helm­ingur kjós­enda Pírata frá 2021 ætla að kjósa ýmist Sam­fylk­ing­una eða Viðreisn.

Kjós­endur VG frá 2021 eru einnig lík­leg­astir til þess að hafa fært sig á þessa tvo flokka, tæp 29 pró­sent á Sam­fylk­ing­una og rúm 13 pró­sent á Viðreisn.

Sjálfstæðisflokkurinn sækir nær enga nýja

Það þarf ef til vill ekki að koma á óvart miðað við stöðu flokks­ins og nær helm­ingað fylgi frá síð­ustu kosn­ingum, en sam­kvæmt nið­ur­stöðum Maskínu sækir Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn nær ekk­ert nýtt fylgi frá öðrum flokkum. Heil 88 pró­sent þeirra sem segj­ast ætla að kjósa flokk­inn nú segj­ast hafa kosið flokk­inn síð­ast líka. 

Einungis 26 manns sem svara könn­un­inni og segj­ast ætla að kjósa Sjálf­stæð­is­flokk­inn kusu ein­hverja aðra flokka síð­ast. Þar af kusu 18 ýmist Framsókn eða Vinstri græn, sam­starfs­flokka Sjálf­stæð­is­flokks­ins. 

Af kjós­endum Sjálf­stæð­is­flokks­ins árið 2021 eru 26 pró­sent farin yfir á Mið­flokk­inn, tæp 8 pró­sent á Viðreisn, um 5 pró­sent á Sam­fylk­ingu en færri yfir á aðra flokka. 

Viðreisn sækir svipað í margar áttir

Þegar horft er á hvaðan fylgi Við­reisnar er að koma sést að 44 pró­sent þeirra sem segj­ast ætla að kjósa flokk­inn nú segj­ast einnig hafa kosið hann árið 2021.

Viðreisn sækir hins vegar nokkuð jafnt til ann­arra flokka, en rúmur þriðj­ungur kjós­enda hans kemur úr mengi þeirra sem kusu stjórn­ar­flokk­ana þrjá í síð­ustu kosn­ingum – á bil­inu 10-13 pró­sent hjá hverjum þeirra. Hartnært 10 pró­sent væntra kjós­enda Við­reisnar kusu svo Sam­fylk­ing­una og litlu færri, eða 8 pró­sent, Pírata.

Kjósa
26
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Alþingiskosningar 2024

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár