„Örfáir nemendur“ en ráðuneytið veit ekki hversu margir

Námsúr­ræði sem Kletta­bær býður börnum og ung­mennum með fjöl­þættan vanda sem þar dvelja er ekki með við­ur­kenn­ingu sem fram­halds­skóli. Umboðs­maður barna óskar svara frá mennta- og barna­mála­ráð­herra vegna mats á árangri og gæðum. Ráðherra hefur ekki svarað fimm mán­aða gam­alli fyr­ir­spurn um hversu margir nýta úrræðið.

„Örfáir nemendur“ en ráðuneytið veit ekki hversu margir
Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barna­mála­ráð­herra, hefur ekki svarað Salvöru Nordal, umboðs­manni barna, sem skyldi vegna námsúr­ræðis fyrir nem­endur á fram­halds­skóla­aldri sem rekið er af Klettabæ ehf.

Þann 15. maí sendi umboðs­maður barna bréf til mennta- og barna­mála­ráð­herra vegna námsúr­ræðis fyrir nem­endur á fram­halds­skóla­aldri sem rekið er af Klettabæ ehf. Erindi umboðs­manns var ítrekað 24. sept­em­ber. Svar frá mennta- og barna­mála­ráð­herra barst 9. októ­ber, fimm mán­uðum eftir að fyr­ir­spurin var send. Þar kom þó ekki fram hversu mörg börn nýta úrræðið, sem var meðal þess sem umboðs­maður barna vildi vita. 

Ráðherra svar­aði því til í sumar að umrætt námsúr­ræði sé fyrir „örfáa nem­endur“ en það hefur síðan ekki verið skýrt nánar. Þetta kom reyndar fram í svari við allt annarri fyr­ir­spurn sem var almennt um fræðslu­skyldu stjórn­valda og rétt barna til að hefja nám við hæfi í fram­hálds­skóla.

Í svari ráð­herra, Ásmundar Einars Daða­sonar, fyrr í þessum mán­uði kom fram að úrræði Kletta­bæjar sé ekki með við­ur­kenn­ingu sem fram­halds­skóli en ákveðið hafi verið að tengja fram­halds­skóla sem fag­legan bak­hjarl við Klettabæ og ráðu­neytið hafi fengið …

Kjósa
15
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • JE
    Jóhann Einarsson skrifaði
    Enn og aftur er Barnamálaráđherra sakađur um vanrækslu í sínum störfum, er ekki bara best ađ kjósa Framsókn og fá einhverja frændur um ađ sjá um málin !
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár